Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 7. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 65. tölublað 108. árgangur
NÚ LES ÞJÓÐIN
UM SÓTTIR
OG PLÁGUR
VILJA NÝTA
VINDINN
Á HEIÐINNI
LOGI PRÓFAR
BREYTTAN
RAM 3500
VIRKJUN Á MOSFELLSHEIÐI? 1000 SÉRBLAÐ UM BÍLA BÆKUR Í VEIRUTÍÐ 28
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Foreldrar skilja þessar aðstæður
mjög vel. Ég hef skynjað mikið
þakklæti fyrir að skólanum verði
haldið opnum,“ segir Ásta Bjarney
Elíasdóttir, skólastjóri Breiðholts-
skóla.
Skólastarf hefst víðast hvar á ný í
dag eftir að samkomubann gekk í
gildi. Skipulag skólastarfsins er þó
annað og minna í sniðum en alla
jafna enda þarf að tryggja að ekki
séu fleiri en 20 nemendur í sömu
kennslustofu og að nemendur bland-
ist ekki á milli hópa, til að mynda í
mötuneytum. Sótthreinsa þarf skóla-
byggingar dag hvern. Útfærslur eru
mismunandi eftir skólum enda bekk-
ir misstórir og taka þarf mið af húsa-
kosti svo dæmi séu tekin.
„Þetta hefur krafist smá skipulags
en það þarf bara að taka þessum að-
stæðum af æðruleysi. Við erum mjög
mikilvæg stofnun og það þarf að
halda samfélaginu gangandi eins
lengi og hægt er,“ segir Ásta Bjarn-
ey en í Breiðholtsskóla mæta nem-
endur í 1.-7. bekk annan hvern dag. Í
5.-7. bekk er skóladagurinn skertur.
Nemendur á unglingastigi mæta að-
eins tvo tíma í þessari viku en fá
verkefni til að vinna heima.
Í Hagaskóla í Reykjavík hefur
bekkjum verið skipt í tvennt og
mæta nemendur annan hvern dag í
skólann. Í Vesturbæjarskóla mæta
nemendur sömuleiðis annan hvern
dag og er kennt í um það bil tvær
klukkustundir. Nemendur í skólum í
Vestmannaeyjum munu vera fjórar
kennslustundir á dag í skólanum, alls
þrjá klukkutíma. Nemendur verða
aðeins í sínum bekk og munu mæta á
misjöfnum tíma í skólann. »2
Taka aðstæðun-
um af æðruleysi
Skólar opnaðir á ný Skert þjónusta
„Þetta eru mikil tíðindi og bar mjög
brátt að,“ sagði Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir dómsmálaráðherra í sam-
tali við mbl.is í gærkvöldi um fyrir-
ætlan Evrópusambandsríkjanna að
loka Schengen-svæðinu og að það
verði að mestu lokað fyrir utanaðkom-
andi umferð næstu þrjátíu daga til að
stemma stigu við útbreiðslu kórónu-
veirunnar. Ursula von der Leyen, for-
seti framkvæmdastjórnar ESB,
beindi þeim tilmælum til íslenskra
stjórnvalda og ríkisstjórna Noregs,
Lúxemborgar og Sviss, sem standa ut-
an ESB en eru aðilar að Schengen-
samstarfinu, að taka þátt í aðgerðun-
um.
Ríkisstjórnin mun funda í dag og
ræða tilmælin. Búist er við að leiðtog-
ar ESB-ríkjanna samþykki tillöguna
formlega á fundi í dag. Bretland yrði
undanþegið ferðabanninu.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík-
isráðherra og Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir dómsmálaráðherra fund-
uðu um tilmælin með Michael Mann,
sendiherra ESB á Íslandi, í gærkvöldi.
Áslaug Arna sagði að verið væri að
meta stöðuna. Fram að þessu hefðu ís-
lensk stjórnvöld talið ferðabann hafa
takmarkaða þýðingu.
„Við erum ekki búin að átta okkur á
því hvað þetta þýðir og hvað Ísland
gerir,“ sagði Bogi Nils Bogason, for-
stjóri Icelandair, í gærkvöldi.
Leiðtogar Þýskalands hvöttu í gær
Þjóðverja til að halda sig heima og
hætta við ferðir í leyfum, innanlands
og til útlanda. Einnig var tekið upp
landamæraeftirlit að hluta. Emmanu-
el Macron, forseti Frakklands, til-
kynnti að ferðafrelsi Frakka yrði
skert enn frekar í dag og landsmenn
ættu að halda sig heima næstu 15 daga
hið minnsta að viðlögðum refsingum.
Spænsk stjórnvöld tilkynntu að
landamærum landsins yrði lokað. Þá
hefur Kanada lokað landinu fyrir er-
lendum ríkisborgurum. Hlutabréfa-
markaðir heimsins voru í frjálsu falli í
gær.
Evrópa verði að mestu
lokuð í einn mánuð
Tilmæli ESB mikil tíðindi, segir dómsmálaráðherra
AFP
Ferðabann Ursula von der Leyen
kynnti hugmyndina á fundi í gær.
MKórónuveira »2, 4, 6, 8, 12-13, 14
„Þetta hefur allt gengið að óskum og flestir
hafa brugðist vel við breyttum aðstæðum og
kröfum á þessum óvenjulegu tímum sem nú
eru uppi,“ segir Ingibjörg Eir Sigurðardóttir,
öryggisvörður í verslun Bónuss í Skeifunni í
Reykjavík. Hún stóð vaktina í anddyri búð-
arinnar í gær og taldi þá sem fóru inn og út
en samkvæmt samkomubanninu vegna kór-
hendurnar á sér en með slíku er reynt að
halda í lágmarki smithættu vegna veirunnar
vondu sem nú skekur heiminn og skelfir
mannanna börn. sbs@mbl.is
ónuveirunnar sem tók gildi í gær mega ekki
fleiri en 100 vera í húsi hverju sinni. Einnig
er fólk hvatt til að gæta að hreinlæti og fólki
sem kom í búðina var gert að sótthreinsa
Morgunblaðið/Eggert
Talið í Bónusbúð og viðskiptavinum gert að sótthreinsa hendurnar