Morgunblaðið - 17.03.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.03.2020, Qupperneq 8
Happatala Maríanna Sigurðardóttir áskrifandi lukkuleg með nýja símann. „Fyrirgefðu, viltu segja mér þetta aftur,“ sagði Maríanna Sigurðar- dóttir áskrifandi við útvarpsmenn á K100 í gærmorgun þegar hún fékk þau tíðindi að hafa unnið nýjan Samsung-síma í Happatölu Morgunblaðsins og Samsung. Maríanna hefur verið áskrifandi í nokkur ár og var kampakát þegar hún sótti vinninginn í Hádegismóa í gær, sagðist ætla beint heim og skipta út gamla símanum. Sá nýi er af gerðinni Samsung Galaxy S20+. Happatöluna er að finna í Morgunblaðinu á fimmtudögum og laugardögum. Geta lesendur farið inn á mbl.is/happatala og gefið upp töluna til að komast í pottinn. Dreg- ið er í beinni útsendingu á K100 á föstudags- og mánudagsmorgnum. Endurtaka þurfti boðun um vinning 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2020 Ath! Lagersalan er eingöngu á vefnum okkar fastus.is Fastus ehf | Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is LAGERSALA Á FASTUS.IS Allt að AFSLÁTTUR Þegar forseti Bandaríkjannaákvað fyrir fáeinum dögum að loka fyrir ferðir frá stærstum hluta Evrópu, þar með talið frá Ís- landi, til Bandaríkj- anna, hófst sér- kennileg umræða með einkennilegum viðbrögðum. Þetta fór ekki aðeins af stað hér á landi heldur einnig á æðstu stöðum inn- an Evrópusambandsins.    Ursula von der Leyen, forsetiframkvæmdastjórnar ESB, gagnrýndi bandarísk stjórnvöld og fann meðal annars að því að ferðabannið hefði verið „án sam- ráðs“, rétt eins og það væri þýð- ingarmikið atriði í þessu sam- bandi.    Meginatriðið var að Bandaríkintöldu sig þurfa að grípa til harðra aðgerða og höfðu til þess fullan rétt þó að fólk geti haft misjafnar skoðanir á því hvort að ástæða var til að ganga svo langt.    Innan ESB hefur síðan hvert rík-ið af öðru lokað landamærum sínum og ekki er vitað til að þau hafi haft sérstakt samráð við Bandaríkin, Ísland eða aðra vegna þess.    Í gær gerðist það svo að Ursulavon der Leyen steig sjálf fram og greindi frá því að hún hygðist leggja til lokun ytri landamæra Evrópusambandsins, en sambandið hefur sætt gagnrýni fyrir að bregðast ekki við kórónufaraldr- inum.    Upphlaupið vegna lokunarBandaríkjanna virðist því hafa stafað af einhverju öðru en málefnalegum ástæðum. Ursula von der Leyen Ekki er sama hver skellir í lás STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Alls verða sextán lóðir við leik- og grunnskóla Reykjavíkurborgar ýmist endurgerðar eða lagfærðar í ár fyrir samtals 500 milljónir. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í maí og að þeim ljúki í ágúst. Fram kemur í tilkynningu frá borginni að sex grunn- og leik- skólalóðir verða endurgerðar. Skólarnir sem um ræðir eru grunnskólarnir Ártúnsskóli, Brú- arskóli og Rimaskóli og leikskól- arnir Furuskógur-Furuborg, Garðaborg og Ægisborg. Lóðirnar eru endurgerðar í áföngum en frekari upplýsingar um framkvæmdina má finna á vef Reykjavíkurborgar. Enn fremur verða gerðar ýmsar lagfæringar á tíu leikskólalóðum til viðbótar, en þær eru við Engja- borg, Fífuborg, Geislabaug, Hóla- borg, Klettaborg, Langholt-Sunnu- borg, Litla-Holt, Lyngheima, Nes-Hamra og Sólborg. Á þessum lóðum verða leiktæki endurnýjuð á hluta leiksvæða og öryggismöl skipt út með nýju fall- varnarefni og/eða gervigrasi. Það er stefna borgarinnar að hætta notkun öryggismalar sem fallvarn- ar á leiksvæðum. Framkvæmt fyrir 500 milljónir kr.  Lóðir við sextán leik- og grunnskóla í borginni lagfærðar í sumar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Skólar Miklar lagfæringar verða á lóðum skóla borgarinnar í sumar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.