Morgunblaðið - 17.03.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 17.03.2020, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2020 17. mars 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 134.19 134.83 134.51 Sterlingspund 169.09 169.91 169.5 Kanadadalur 97.15 97.71 97.43 Dönsk króna 20.029 20.147 20.088 Norsk króna 13.358 13.436 13.397 Sænsk króna 13.76 13.84 13.8 Svissn. franki 141.84 142.64 142.24 Japanskt jen 1.2617 1.2691 1.2654 SDR 185.08 186.18 185.63 Evra 149.71 150.55 150.13 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.6768 Hrávöruverð Gull 1588.15 ($/únsa) Ál 1676.5 ($/tonn) LME Hráolía 32.85 ($/fatið) Brent ● Hagnaður Varðar nam 1,8 milljörðum króna á árinu 2019 en var 1,2 milljarðar árið 2018 og því hækkaði hann um 46% milli ára, að því er fram kemur í afkomutilkynningu félagsins. Þar kemur fram að tekjur af iðgjöldum hafi hækk- að um 9% milli ára og voru í fyrra 11,7 milljarðar króna en tjón námu tæpum 8,4 milljörðum sem er 7% hækkun frá árinu 2018. Þá segir í tilkynningunni að góða af- koma Varðar megi rekja til líf- og per- sónutryggingastarfsemi félagsins og góðum árangri í fjárfestingum auk þess sem afkoman í skaðatryggingarekstri hafi batnað milli ára. Hins vegar hafa nokkrir þættir leitt til útgjaldaaukningar. „Uppgjörskostn- aður vegna slysa [hefur] hækkað mikið, sem leitt hefur af sér mikla útgjalda- aukningu. Þá er umtalsvert kostn- aðarsamara að gera við bíla sem búnir eru nútíma tækni- og tölvubúnaði.“ Á síðasta ári hækkaði kostnaðarhlut- fall um 1,5 prósentustig milli ára og nam 19,8%. En hækkunina má aðallega rekja til fjárfestinga í stafrænum þjón- ustulausnum. Þá voru heildareignir Varðar í árslok tæplega 25 milljarðar sem er hækkun um rúmlega 15% á árinu. Milli ára hækkaði eigið fé um 20% og var í árslok 8,1 milljarður. Eig- infjárhlutfall hækkaði í 32,5% úr 31,2%. 1,8 milljarða hagnaður af rekstri Varðar STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjun- um tóku skarpa dýfu við opnun í gær. Voru viðskipti í Kauphöllinni í New York stöðvuð í 15 mínútur eft- ir að ljóst varð í hvað stefndi en með því reyndu forsvarsmenn Kauphallarinnar í þriðja sinn á sex dögum að ná skjálftanum úr mark- aðnum og koma í veg fyrir upp- lausnarástand. Aðgerðin hafði ekki tilætluð áhrif og féll S&P500-vísital- an um 11,98% og er það mesta fall sem orðið hefur á henni frá hruninu í október 1987. Þá féll Dow Jones um 12,93%. Nasdaq-kauphöllin í Bandaríkjunum, sem byggist að miklu leyti á tæknifyrirtækjum hef- ur aldrei orðið fyrir jafn þungu höggi og í gær. Nasdaq Composite- vísitalan féll t.d. um 12,32%. Meðal fyrirtækja sem tóku á sig miklar lækkanir í gær voru tæknirisarnir Apple sem lækkaði um 12,86%, Microsoft sem lækkaði um 14,74% og Facebook sem lækkaði um 14,25%. Telja vopnabúrið tæmt Segja hlutabréfagreinendur að sí- fellt aukinnar taugaveiklunar gæti á mörkuðum í kjölfar þeirrar ákvörð- unar Seðlabanka Bandaríkjanna að lækka stýrivexti niður í 0% og auka innspýtingu lausafjár inn á fjár- málamarkaði um hundruð milljarða dollara. Virðist það mat margra að þar hafi bankinn nýtt síðustu kúl- una í vopnabúri sínu án þess að það hafi náð að rétta markaði af. Þeir eru allir illa staddir vegna áhrifa af útbreiðslu kórónuveirunnar. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 5,22% í viðskiptum gærdagsins. Ekkert félag hækkaði á markaðnum. Mest var lækkunin á bréfum Icelandair Group eða 17,86%. Félagið hefur lækkað um rúm 52% frá áramótum. Og er markaðsvirði félagsins rúmir 18,8 milljarðar króna. Bréf Kviku banka lækkuðu um 11,28%. Nemur lækkun bréfa bank- ans tæpum 34% frá áramótum. Þá lækkuðu bréf Arion banka um tæp 7,96% og hefur markaðsvirði bank- ans skroppið saman um 31,6% frá áramótum. Stendur það nú í 107 milljörðum króna. Til samanburðar má geta að eigið fé bankans var bókfært 189,6 milljarðar við nýliðin áramót. Bréf Marels lækkuðu um 4,56%. Hafa bréf félagsins rýrnað að verðgildi í kauphöll um 100 millj- arða króna frá áramótum. Mikil lækkun í Evrópu Gríðarlegur titringur fór um evrópska hlutabréfamarkaðinn. Þannig lækkaði Europe 600-vísital- an, sem gefur besta mynd af gengi stærstu fyrirtækja álfunnar, um 10%. Þá féll þýska DAX-vísitalan og CAC 40 í Frakklandi um 10% einn- ig. Um svipað leyti og markaðnum hér heima var lokað barst tilkynn- ing frá Brussel um að fram- kvæmdastjórn ESB hefði lagt til miklar ferðatakmarkanir til ríkja sambandsins næstu 30 dagana. Lækkuðu bréf Norwegian um 11,75% og hafa þau nú lækkað um 83% frá áramótum. Nemur mark- aðsvirði félagsins jafnvirði 15,5 milljarða íslenskra króna. Bréf Lufthansa lækkuðu um 7,91%. Bréf Air France-KLM um 10,1%. Bréf SAS lækkuðu um 7,11%. Þá lækk- uðu bréf IAG, móðurfélags British Airways, um 27,01%. Eins kom mikill skellur á banda- rísku flugfélögin. Delta lækkaði um 6,65 og United Airlines um 14,82%. American Airlines skar sig að þessu sinni úr og hækkuðu bréf félagsins um 11,25%. Olían lækkar áfram Olíuverð hélt áfram að lækka í gær og þannig fór verðið á Brent- norðursjávarolíu niður um 12,75% og niður í 29,53 dollara á tunnuna. Hefur verðið ekki verið svo lágt síð- an um miðjan janúarmánuð 2016. Hafði verðlækkunin mikil áhrif á helstu olíufélög heimsins. Equinor, norska ríkisolíufélagið, lækkaði um 13,29%. Félagið hefur frá áramótum lækkað um rúm 55%. Royal Dutch Shell lækkaði um 15,82%, Exxon Mobil, lækkaði um 9,52, BP lækkaði um 15,02% og franska olíufélagið TOTAL lækkaði um 15,76%. Hlutabréfamarkaðir enn í frjálsu falli víða um heim AFP Hriktir í stoðunum Verðbréfamiðlari í kauphöllinni í Pakistan ræðir áhyggjufullur við samstarfsmann sinn í síma með grímu fyrir vitum. Hamfarir » Hlutabréfamarkaðir um heim allan hafa tekið á sig gríðarlegar lækkanir. » Stærstu flugfélög heimsins hafa kallað eftir aðgerðum stjórnvalda til að forða þeim frá gjaldþroti. » Nær allir eignamarkaðir hafa orðið fyrir skakkaföllum. » Meira að segja gullverð hef- ur gefið eftir sem gjarnan styrkist á óvissutímum.  Olíuverð lækkar áfram  Stöðva þurfti viðskipti á Wall Street við opnun markaða Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við höfum farið yfir málið. Lend- ingin er sú að vera með opin hús en að fólki verði gert að bóka skoðun áð- ur. Þannig má tryggja að við tökum ekki við mörgum í einu,“ segir Þórarinn M. Friðgeirsson, lög- giltur fasteigna- sali hjá Eigna- miðlun. „Við reynum að viðhafa allar ráð- stafanir sem hægt er að gera í opnum húsum,“ segir Þórarinn. Tilefnið er útbreiðsla kórónuveir- unnar og ýmsar takmarkanir á við- skiptum af hennar völdum. Þórarinn segir aðspurður viðbúið að útbreiðsla veirunnar muni setja strik í reikning fasteignaviðskipta. Var þyngra eftir fall WOW „Maður finnur að þetta hefur áhrif. Þó hefur verið furðu mikið að gera miðað við allt og allt. Ástandið var verra í fyrra eftir gjaldþrot WOW air. Þá róaðist markaðurinn talsvert meira. Nú fáum við töluvert margar fyrirspurnir. Til dæmis fékk ég nú fleiri bókanir í opin hús en á venjulegum degi,“ sagði Þórarinn. Almennt séu seljendur fasteigna ekki hikandi við að leyfa opin hús. „Við beinum þeim tilmælum til fólks að það gangi öðruvísi um en vanalega og að seljendur bjóði upp á sprittbrúsa,“ segir Þórarinn. Gott aðgengi að fjármagni Hann segir aðspurður að ástandið hafi verið miklu verra í efnahags- hruninu. Bankakerfið hafi þá lokast. Þótt dregið hafi úr útlánum til verktaka sé nú almennt mun meira fjármagn í boði en til dæmis frá miðju ári 2007 og fram að alþjóðlegu fjármálakreppunni haustið 2008. Ekki séu komnar vísbendingar um að vaxtalækkanir Seðlabanka Ís- lands hafi örvað eftirspurn. Bankinn lækkaði vexti í síðustu viku. Þá segir Þórarinn sölutímann hafa lengst. Það taki að öllu jöfnu lengri tíma að selja fasteign en fyrir ári. Seljendur geti búist við að það taki 2-3 mánuði að selja eignir. Hleypa inn í opin hús í áföngum  Fasteignasalar viðhafa ráðstafanir  Seljendur ekki hikandi við opin hús Þórarinn Friðgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.