Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 13
AFP Eftirlit Þýsk lögregla ræðir við ökumann við landamærin að Danmörku en Þjóðverjar tóku upp landamæraeftirlit í gær vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Fyrstu prófanir bóluefnis gegn kór- ónuveirunni voru ráðgerðar í Seattle í Bandaríkjunum síðdegis í gær að staðartíma vestanhafs. Skyldu 45 heilbrigðir sjálfboðaliðar þá fá sprautu með bóluefni sem gæti ekki valdið þeim Covid-19-sjúkdómnum, sem veiran veldur, aðeins líkt eftir honum. Prófanirnar eru þó aðeins fyrsta skrefið á lengri vegferð þar sem fyrst verður ljóst eftir nokkra mánuði hvort þetta bóluefni, eða önnur lík því, hafi nokkuð að segja í baráttunni. Til að flýta ferlinu sniðganga vísinda- menn þá vanalegu framkvæmd að kanna hvort bóluefnið kalli fram ónæmisviðbrögð hjá dýrum. Keppa við veiruna Moderna Therapeutics, framleið- andi bóluefnisins, fullyrðir þó að framleiðslan hafi átt sér stað eftir viðurkenndum leiðum og verklags- reglum. „Þetta bóluefni er framleitt eftir viðurkenndum uppskriftum,“ sagði dr. John Tregoning, farsótta- sérfræðingur við Imperial College í London, í samtali við breska ríkisút- varpið BBC í gær. Hann sagði ströngustu öryggis- reglum hafa verið fylgt við fram- leiðslu bóluefnisins sem væri öruggt til notkunar á mönnum auk þess sem grannt væri fylgst með þeim sem boðið hefðu sig fram til prófana. „Já, þetta gengur mjög hratt fyrir sig, þarna keppa menn við veiruna, ekki innbyrðis sem vísindamenn. Þetta er í þágu mannkynsins,“ sagði Tregoning við BBC um nýja bólu- efnið sem gengur undir nafninu „mRNA-1273“ og er ætlað að vekja varnarviðbrögð ónæmiskerfisins við veirunni sem það líkir eftir. Yfir til Evrópu Dr. Anders Tegnell, sóttvarna- læknir í Svíþjóð, gagnrýnir ná- grannaþjóðirnar Dani og Norðmenn fyrir það sem Tegnell telur allt of harkaleg viðbrögð við faraldrinum. Hafa Svíar hvorki lokað landamær- um sínum né menntastofnunum og segir Tegnell enga ástæðu til þess, að sögn sænska dagblaðsins Ex- pressen. Engin vísindaleg rök „Engin vísindaleg rök eru fyrir því að loka landamærunum, sú ráðstöf- un er þvert á það sem WHO [Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunin] hef- ur ráðlagt,“ sagði Tegnell í gær. „Ástæðan fyrir því að við setjum það í forgang að prófa heilbrigðis- starfsfólk fyrir veirunni er að þeir sem fyrst og fremst eru í áhættuhóp- um smitist ekki af heilbrigðisstarfs- fólkinu. Fólkið í áhættuhópunum er það sem sóttin kemur til með að leggjast þyngst á,“ sagði læknirinn. Nýtt bóluefni prófað í Seattle  45 sjálfboðaliðar sprautaðir með efninu  Sænskur læknir gagnrýnir lokanir FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2020 Gæðavörur í umhverfisvænum umbúðum Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Hollt, bragðgott og þægilegt Vegan - Keto - Pascaterian - Glutenlaust Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Heilsuhúsin, Fjarðarkaup, Melabúðin, Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi Þrítugur Japani, Satoshi Uematsu, var í gær dæmdur til dauða í héraðs- dómi í Yokohama í Japan fyrir fjölda- morð árið 2016. Uematsu gekk þá berserksgang á Tsukui Yamayuri-en, dvalarheimili fyrir fatlaða skammt frá Tókýó, og stakk 19 vistmenn til bana. Japanska fréttastofan Kyodo greindi frá dómsuppkvaðningunni. Uematsu sagðist við réttarhöldin hafa þær málsbætur að fólk sem væri ófært um að tjá sig nyti ekki mann- réttinda. Sagðist hann hafa neyðst til að fremja ódæði sitt til bóta fyrir samfélagið. Tilgangur lífs fatlaðra væri enginn. Fórnarlömbin voru á aldrinum 19 til 70 ára. Ritaði þinginu bréf Uematsu gaf sig fljótlega fram á lögreglustöð eftir atlöguna. Vist- menn á heimilinu voru 150 þegar hann lét til skarar skríða og voru níu starfsmenn á vakt. Bréf sem morðinginn sendi jap- anska þinginu nokkrum mánuðum fyrir fjöldamorðið hefur vakið nokk- urn óhug. Þar skrifaði hann að hann hygðist myrða 470 fatlaðar mann- eskjur fengi hann leyfi þingsins til þess. Hann var tafarlaust nauðungar- vistaður á stofnun en sleppt þaðan tveimur vikum síðar. Ofbeldisglæpir eru fátíðir í Japan sem rekur mjög harða refsistefnu. Verjandi Uematsu sagði hann hafa ofneytt maríjúana og strítt við and- leg veikindi. Saksóknari kvað Ue- matsu hins vegar hafa verið full- komlega meðvitaðan á verknaðarstundu og ætti hann sér engar málsbætur. Dauðarefsingu Uematsu verður framfylgt með hengingu. Sagði lífstilgang fatlaðra engan  Dæmdur í snöruna fyrir fjöldamorð AFP Fjöldamorðingi Satoshi Uematsu í lögreglufylgd á leið í réttarsal. Bandarískir her- menn eru á för- um frá al-Qaim- herstöðinni í Írak og tveimur til þar í landi á næstu vikum. Viðsjár hafa ver- ið vaktar með ná- grannaríkjunum Íran og Írak síð- an drónaárás af hálfu Bandaríkjamanna varð ír- anska hershöfðingjanum Qasem Soleimani að aldurtila í byrjun jan- úarmánaðar. Formleg kveðjuathöfn verður haldin síðar í vikunni þar sem bandaríska herliðið mun afhenda íraska hernum búnað til að sinna öryggismálum á svæðinu, sem er eitt það fyrsta sem féll í hendur hryðjuverkasamtakanna Ríkis ísl- ams árið 2014. Eftir að þeim var stökkt á flótta hafa íranskar her- sveitir að mestu ráðið lögum og lof- um beggja vegna landamæranna. Bandaríkjamenn yfirgefa þrjú vígi Írak Yfirgefa þrjár herstöðvar. Á FÖRUM FRÁ ÍRAK Upp úr hádegi í gær hafði norska úrvalsvísitalan fallið um tíu pró- sent, ekki síst vegna ört lækk- andi olíuverðs, en verð olíu- tunnunnar stóð þá í 30,54 dölum, aðeins 80 sentum meira en það varð lægst í síðasta olíuverðhruni, 29,74 dalir í janúar 2016. Öll verðhækkun norskra hluta- bréfa síðustu fjögur ár er nú horfin á braut og var úrvalsvísitalan 611 stig í gær, það var hún síðast sum- arið 2016. Verðmæti skráðra félaga hefur þar með rýrnað um þriðjung. „Allt er ófyrirsjáanlegt og við höfum ekki séð annað eins ástand á olíumarkaðnum,“ sagði Helge Andre Martinsen, greinandi hjá DNB Markets, í samtali við norska ríkisútvarpið NRK í gær. NOREGUR Olíuverð ekki lægra síðan í janúar 2016 Olíutunnan kostar nú rúma 30 dali.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.