Morgunblaðið - 17.03.2020, Page 14

Morgunblaðið - 17.03.2020, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fréttafundirvarnar-sveitar gegn kórónuveiru eru prýðilegir og þakk- arefni. Vafalaust er að fjöldinn fylgist vel með og vill bæði fylgja tilmælum og nýta upplýsingarnar sem fram koma. En það þýðir ekki að all- ur almenningur gæti í kjölfarið gengið undir munnlegt próf í fróðleiknum og fengið fyrstu einkunn. En hann er miklu nær en ella og er með það mikilvæg- asta á hreinu. Nú síðast var nefnt að misskilnings gætti varðandi „hjarðmarkmið“ út- breiðslu veirunnar. Hversu stórt mengi sýktra og í yfir- gnæfandi tilvika þá læknaðra þyrfti til svo að mótvægi haml- aði veirunni að breytast í far- aldur. Á opnum upplýsingafundi vakti Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir athygli á að víða gætti misskilnings um hugtakið hjarðónæmi. Sóttvarnalæknir sagði þetta hugtak koma úr bólusetning- arfræðum. Það segði til um hve stóran hluta af þjóðinni þyrfti að bólusetja til að veira fengi ekki þrifist til að skapa far- aldur. Sagði hann að hægt væri að reikna hjarðónæmi fyrir kór- ónuveiruna út frá útbreiðslustuðli hennar, sem væri 3. Og hann undirstrikaði svo: „Ekki er takmarkið að 60-70% þjóðarinnar sýkist.“ Og bætti svo við: „Ef við hefðum bóluefni þá gætum við því sagt að við þyrft- um að bólusetja 60-70% þjóð- arinnar til að verjast veirunni. En það þýðir ekki að það sé tak- mark okkar að 60-70% þjóð- arinnar muni sýkjast.“ Um þetta atriði væri misskilningur. Ekki væri enn þá hægt að vita hversu margir myndu sýkj- ast af veirunni. „Vonandi verða þeir sem fæstir,“ sagði Þórólfur og minnti á að langflestir sem smituðust af veirunni fengju væga sýkingu. Miklu máli skipti hins vegar að vernda viðkvæm- ara fólk í áhættuhópum. Þetta var þörf áminning. Hvarvetna þyrstir almenning í fréttir um efnið. Og hann fær flóð misgóðra „upplýsinga“. Jafnvel verður vísindamönnum, sem koma fram undir merkjum traustvekjandi aðila, það á að ýta undir misskilning. Og mis- þarfar „upplýsingar“ berast hvaðanæva því kórónuveiran hefur heltekið heimsumræðu og selur því best alls núna. Og net- umræðan umlykur svo allt og þangað sækja of margir allan sinn daglega fróðleik og hafa ekki varann á. Netið á sér ekki landamæri og ber sjaldnast nokkra ábyrgð. En nokkur meg- inefni eru komin í gegn: Kórónu- pestin er nýtt af- brigði. Bóluefni er ekki til og hjálpar ekki nú, þótt vonir standi til að það finnist. Enn sem komið er telja þeir sem halda um púls þessa máls, okkar fólk hér heima og samsvarandi stjórn- endur erlendis, að þótt þessi veira sé hraðsmitandi og hafi komið flatt upp á veröldina þá sé hún ekki mikil ógn fyrir þá sem hafa mótstöðu sína óskerta. Þetta hafa þeir rökstutt ræki- lega. Og þrátt fyrir bóluefna- skort þá séu ýmsar varnir til- tækar til að styðja þá í veikasta hópnum sem kynnu að sýkjast. En þeir séu engu að síður í áhættuhópi og því mikilvægt að tryggja að þeir smitist ekki. Um það þarf baráttan að snúast á næstu vikum. Almenningur gerir sér grein fyrir því að úrslitum getur ráðið að við missum ekki vald á mál- inu. Haldist markmið stýrihóps- ins þar til faraldurinn hjaðnar þá munu batahorfur þeirra sem sýkjast og eru í áhættuhópi styrkjast verulega. Forsenda þess er sú að heilbrigðiskerfið fái ekki of stóran kúf smitaðra úr slíkum hópi í fangið í einu. Samhliða því að halda utan um varnarviðbúnað gegn veir- unni hefur teyminu tekist að koma því sem mestu skiptir yfir til almennings. Það er ekki létt í því ástandi óttans sem nú er. Myndir sem birtast á skjáum frá löndum Evrópu þar sem drónar fljúga yfir mönnum og skipa þeim með lögregluvaldi að hverfa til húsa sinna eru ekki til þess fallnar að draga úr ótta. Ekki heldur tölur sem birtast oft á dag, eins og nýjar tölur í kosningum, um að síðasta sólarhring (sunnudag) hafi 382 dáið á Ítalíu og svo og svo margir í löndunum í kring. Fréttir um að forsætisráð- herra Bretlands biðji bíla- framleiðendur að gera hlé á sinni iðju og framleiða nú önd- unarvélar, eins og væru þeir á stríðstímum sýna baráttuvilja en vekja einnig ugg og spurn- ingar um hver sé staðan í nær umhverfinu, komi kúfurinn sem verið er að forðast. En samt er staðan þessi: Áhyggjur voru eðlilegar á fyrstu vikum fársins. En nú þegar meira er vitað hafa skapast nýjar forsendur og nýtt traust. Við vitum öll að þessi barátta vinnst. Við viljum öll eiga þátt í þeim sigri. Tökum fast á móti og stuðlum að því með öðrum að frekar fyrr en síðar rofi til. Það er raunhæft markmið. Vágesturinn í mynd kórónuveiru er yfirstíganlegur. Það er ástæðulaust að halda annað} Staðan snúin en markmiðin ljós Í lok síðustu viku kynnti ég ákvörðun mína um að virkja heimildir sótt- varnalaga til að takmarka samkomur í fjórar vikur, frá og með 16. mars. Til- gangurinn er að hefta útbreiðslu CO- VID19-sjúkdómsins, verja heilsu fólks og við- halda starfsgetu heilbrigðiskerfisins meðan á faraldri stendur og er ákvörðunin tekin að til- lögu sóttvarnalæknis. Samhliða samkomubanni verður skólahald takmarkað í fjórar vikur. Þetta er mikilvæg sóttvarnaaðgerð sem allur almenningur þarf að hlíta og vera meðvitaður um. Á vefsíðunni covid.is er hægt að finna góð- ar upplýsingar um COVID-19, samkomub- annið, nýjustu fréttir, svör við algengum spurn- ingum o.fl. Með samkomubanni er átt við skipulagða viðburði þar sem fleiri en 100 manns koma saman og verða þeir óheimilir. Við öll mannamót þarf auk þess að tryggja að nánd milli manna sé að minnsta kosti yfir tveir metrar og að aðgengi að handþvotti og hand- spritti sé gott. Háskóla- og framhaldsskólakennslu verður sinnt með fjarkennslu og í grunnskólum skal tryggja að ekki séu fleiri en 20 nemendur í kennslunni í sömu stofu. Tryggja skal að börn í leikskólum séu í eins litlum hópum og mögulegt er. Fram til þessa höfðu viðbrögð á Íslandi beinst að fljótri greiningu einstaklinga, rakningu smita, einangrun sýktra og sóttkví þeirra sem grunur er á að séu smitaðir. Má telja líklegt að þessar ráðstafanir hafi komið í veg fyrir fjölmörg innlend smit. Margvíslegar aðr- ar ráðstafanir hafa verið gerðar með leiðbein- ingum og upplýsingagjöf til almennings, stofn- ana og fyrirtækja til að sporna við útbreiðslu veirunnar og sérstök áhersla hefur verið lögð á að vernda viðkvæma hópa og verður svo áfram. Nú hefur samkomubann og takmörkun á skólahaldi verið sett á, með það að markmiði að hefta útbreiðslu veirunnar enn frekar. Mat sóttvarnalæknis var að nú væri rétti tíminn til að ráðast í aðgerðir sem þessar, í ljósi þess að smitum á Íslandi fjölgar dag frá degi og svokölluðum þriðja stigs smitum einn- ig. Þá eru dæmi um smit sem ekki hefur tekist að rekja til utanferða annarra einstaklinga. Að mati sóttvarnalæknis gefi þetta vísbendingu um að COVID-19 geti nú farið að smitast hrað- ar milli fólks en hingað til. Á sama tíma sé hópur starfs- manna Landspítala í sóttkví og gæti frekari útbreiðsla far- aldursins dregið úr getu spítalans til að sinna hlutverki sínu. Nú er það verkefni okkar allra að fylgja fyrirmælunum og hjálpast að. Verkefnið er stórt og krefjandi en ég er sannfærð um að við komumst í gegnum þetta saman. Gangi öllum sem best sem eru að glíma við stórar breyt- ingar á sínum högum og daglegu lífi. Svandís Svavarsdóttir Pistill Samkomubann Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Tilfellum kórónuveirufarald-ursins virðist fjölga nokkuðhægar í Asíu en í Evrópu,samkvæmt tveimur frétta- skýringum breska blaðsins Daily Telegraph, sem birtust um helgina. Er þar fjallað um þann mun sem virðist vera á milli þessara tveggja heimsálfa og hvaða ástæður geti legið þar að baki. Í umfjöllun Telegraph er meðal annars bent á að stjórn- völd í Singapúr, sem og yfirvöld í Hong Kong og Taívan, hafi gripið til fremur harðra aðgerða þegar kórónuveirufarald- urinn kom upp, sem meðal annars fólu í sér farbann og samkomubann, og að almenningur hafi almennt séð tekið vel í þær aðgerðir og fylgt þeim með þeim afleiðingum að hægst hef- ur á fjölgun smita. Er nú horft til þess að heildarfjölli tilfella hjá þess- um þjóðum tvöfaldist ekki nema á um það bil þriggja vikna fresti. Til samanburðar skoðaði Tele- graph einnig þróunina á Ítalíu, Frakklandi og Stóra-Bretlandi, en þar virðist samkvæmt sömu við- miðum, vera nær því að fjöldi tilfella í þeim ríkjum tvöfaldist á innan við viku. Raunar fjölgaði tilfellum á bæði Ítalíu og Frakklandi mjög hratt í upphafi, og tvöfaldaðist heildarfjöldi tilfella þar nánast dag- lega áður en hægjast fór á útbreiðsl- unni. Í fréttaskýringum Telegraph er rakið að viðbrögð Asíuþjóðanna þriggja sem og almennings í ríkj- unum sem tekið hefur vel í ráðstaf- anirnar megi rekja til þess að þar hafi fólk verið áður í þessum sporum þegar SARS-faraldurinn reið yfir árið 2003. Þá hafi það lært hvernig veirur dreifi sér og hvernig sé best að koma í veg fyrir það með hand- þvotti og með því að halda góðri fjarlægð á milli fólks. Því hafi al- menningur skilið hvers vegna stjórnvöld þar ákváðu snemma að grípa í taumana. Farið eftir sömu bók og hér Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir segir í samtali við Morgunblaðið það hafa verið vitað að þjóðir Asíu hafi byggt á lærdómi sínum af SARS-faraldrinum. „Við vitum að þar sem SARS gekk á sín- um tíma voru menn búnir að und- irbúa sig mjög vel, með því að rekja smit, sóttkví og einangrun, svipað og við erum að gera hér. Þeir gripu fljótt til þeirra ráða og það er alveg mögulegt að það hafi skilað sér,“ segir Þórólfur, en hann þorir ekki að fullyrða hvort Ítalir hafi verið seinni að taka við sér en t.d. stjórn- völd í Hong Kong eða Suður-Kóreu. En er aðferðafræði Asíuþjóðanna önnur en sú sem tíðkast hér? „Það sem þær hafa verið að gera er bara samkvæmt bókinni og samkvæmt fræðunum,“ segir Þórólfur. „Og það er það sama og við höfum verið að gera, þannig að fræðin og bókin segja nokkuð skýrt frá hvernig eigi að gera þetta. En svo er það mis- munandi á milli landa hvernig þau framkvæma þessa hluti.“ Þórólfur segir viðbrögðin hér á landi hafa byggst á sömu fræðum og önnur ríki hafa beitt. „Ég tel okkur hafa gert þetta eftir kenning- unni. Þannig virðist til dæmis ekki vera mikið um samfélagslegt smit í gangi hér á landi, sem er ánægju- legt og gefur okkur tækifæri á að hafa útbreiðsluna hæga, en við eig- um eftir að fá fleiri tilfelli, það er al- veg klárt,“ segir Þórólfur sem seg- ist binda vonir við að hér verði hægt að teygja á fjölda tilfella, þannig að „kúrfan“ verði nær því sem sjáist hjá þeim ríkjum sem hafa náð hvað bestum tökum á far- aldrinum. Þróun kórónuveirusmita í nokkrum Asíu- og Evrópulöndum Fjöldi tilfella fyrstu fjórar vikur eftir 15 greind smit 15.000 1.500 150 15 Fjöldi smita Tvöföldun: 1 Daglega 2 Vikulega 3 Fjórðu hverja viku 1 2 3 4 1 2 3 15.000 1.500 150 15 1 2 3 4 1 2 3 15.000 1.500 150 15 1 2 3 4 1 2 3 15.000 1.500 150 15 1 2 3 4 1 2 3 15.000 1.500 150 15 1 2 3 4 1 2 3 15.000 1.500 150 15 1 2 3 4 1 2 3 15.000 1.500 150 15 1 2 3 4 1 2 3 15.000 1.500 150 15 1 2 3 4 1 2 3 Bretland Hong Kong Frakkland Taívan Ísland Singapúr Ítalía S-Kórea Heimild: Johns Hopkins CSSU Fyrri reynsla af SARS geti útskýrt mun milli heimsálfa Þórólfur Guðnason SARS-faraldurinn » 8.098 tilfelli af SARS spruttu upp í faraldrinum, sem stóð yfir frá 2002-2004. » 774 létust í faraldrinum, en útbreiðsla SARS var langmest í Kína og Hong Kong. » Dánartíðni SARS er 9,8%, en sjúkdómurinn getur einnig valdið varanlegum skaða hjá þeim sem lifa hann af.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.