Morgunblaðið - 17.03.2020, Page 15

Morgunblaðið - 17.03.2020, Page 15
15 Um 98% af íslensku sjávarfangi eru flutt úr landi og seld á al- þjóðlegum markaði. Og sjávarafurðir eru um 40% af vöruút- flutningi frá Íslandi. Þetta segir okkur að minnsta kosti tvennt: íslenskur sjávar- útvegur á allt sitt undir tryggri fótfestu á alþjóðlegum mark- aði og sjávarútvegur spilar afar stórt hlutverk í efnahagslegri hag- sæld þjóðarinnar. Staða íslensks sjávarútvegs á erlendum markaði hefur verið góð og á undanförnum árum hefur hún byggst á miklum fjár- festingum í nýjustu tækni og framleiðslu á úrvals hráefni, í samræmi við þarfir og kröfur. Að selja af- urðir á vel borgandi markaði er árangur sem næst með mikilli vinnu og er langt í frá að vera sjálfgefinn. Ýmsir atburðir, sem ekki verður við ráðið, geta valdið því að staða á markaði raskast, eins og hætta er á að gerist núna með kórónu- veirunni, og hefur í raun gerst. Á fundi Samtaka fyrirtækja í sjávar- útvegi á miðvikudaginn um ábata af auðlindinni kom fram í máli ræðumanna að fyrirsjáanleiki væri Eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur » Í ljósi þess sem nú er að gerast ættu stjórnvöld að íhuga hvaða hlutverk þau hafa ætlað íslenskum sjávar- útvegi. Heiðrún Lind Marteinsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Óvissa af völdum manna eða náttúru lykilatriði við rekstur fyrirtækja. Óvissa er eitur í beinum stjórn- enda, fjárfesta og lánveitenda. Þetta á enn frekar við í rekstri sem felur í sér mikla óvissu og sveiflur frá náttúrunnar hendi. Í ljósi þess sem nú er að gerast ættu stjórnvöld að íhuga hvaða hlutverk þau hafa ætlað íslenskum sjávarútvegi. Grunnstoð í efnahagslegri hagsæld þjóðarinnar ætti ekki að þurfa að búa við það að reglulega séu boðaðar róttækar breytingar á umhverfi hennar. Sú er hins vegar raunin, því miður. Að hafa slíka manngerða óvissu vofandi yfir sjávarútveginum, ofan á þá sem er óumflýjanleg, hefur neikvæð áhrif á langtímahugsun, fjárfestingu og nýsköpun í greininni. Þótt líklega verði aldrei algjör sátt um fyrirkomulag fiskveiða og réttinn til að hagnýta auðlindirnar væri mikil framför fólgin í því ef hægt væri að eiga slíkt samtal án undirliggjandi hótunar um algjöra kollsteypu. Eins og staðan blasir við mér er íslenskur sjávarútvegur einstakur í sinni röð og þeirri stöðu tel ég að okkur beri skylda til þess að viðhalda. Ábatinn af honum hrísl- ast um allt samfélagið. Um hann verður meðal annars rætt á næsta fundi Samtaka fyrirtækja í sjávar- útvegi, í fundaröðinni Samtal um sjávarútveg. Fundurinn er sá fjórði í röðinni og á honum verður sjónum sérstaklega beint að ný- sköpun og hvernig gera megi bet- ur í þeim efnum þegar kemur að sjávarútvegi. Fundurinn hefst kl. 9.00 á miðvikudag og vegna til- mæla stjórnvalda verður honum að þessu sinni aðeins streymt á netinu í gegnum Facebook-síðu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Ég hlakka til að heyra alls konar hugmyndir úr ólíkum áttum um það hvernig við getum aukið enn frekar virði sjávarauðlindarinnar með íslensku hugviti. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2020 Vetrarmánuðir eru kjörinn tími til umhugs- unar. Við erum stödd á góu og einmánuður fram undan. Í kjölfar hans kemur harpa með vorið. Skipulag er sá farvegur sem menn reyna að marka sér um framtíðaráform, jafnt einstaklingar, fyrirtæki og samfélag. Fyrir hönd samfélagsins fara sveitarfélög og ríki með skipulagsvaldið, hvort um sig og sumpart sameiginlega. Inn í skipulagsrammann eiga m.a. að falla náttúruvernd og verndun sögulegra minja. Forsendur fyrir hvorutveggja hafa breyst hratt að undanförnu með breytingum í atvinnulífi og búsetu. Svæði þar sem hver bújörð var setin fyrir einni öld eða aðeins fáeinum ára- tugum hafa breyst í eyðibyggðir, sem helst eru heimsóttar af forvitnum ferðamönnum. Augljós dæmi um þessa þróun blasa við á Úthéraði og á svæðum beggja vegna, þ.e. í hluta af Borgarfjarðar- og Vopnafjarð- arhreppi. Miklu skiptir að við þessum breytingum sé brugðist af framsýni og með skipulagi sem tryggi vernd og þróun margbreytilegra staðarkosta þótt búseta leggist af. Jafnframt þarf með löggjöf að koma í veg fyrir að út- lendingar kaupi upp heilu landsvæðin eins og gerst hefur að undanförnu norðaustanlands. Breytingar vatnsfalla frá landnámi Litið til Úthéraðs blasa við miklar breytingar á vatnafari frá fyrstu öld- um byggðar. Þá lá strönd Héraðsflóa nokkru innar en síðar varð vegna framburðar. Á þessu skeiði var berg- haft í Hafrahvammagljúfri við Kára- hnjúka enn að rofna og Jökla bar kynstur af aur úr setfyllu innan við, þaðan sem nú er botn Hálslóns, út eftir farvegi sínum og til hafs. Lengi vel og allt fram undir miðja síðustu öld rann drjúgur hluti Jöklu (Geira- staðakvísl) austur í Lagarfljót innan við Húsey og áfram skilaði flaum- urinn sér á fyrstu öldum byggðar um Jökullæk austur í Selfljót sem þá var skipgengt a.m.k. inn að Arnarbæli í landi Klúku. Þar eru miklar rústir lítt kannaðar og munnmæli um skipalægi og verslun til forna. Örnefnin Eyjar hafa frá fornu fari náð yfir stór og marflöt svæði inn af Héraðssöndum og milli þeirra er Húsey sem líklegt er talið að ekki hafi verið byggileg fyrr en á 13. öld. Þessar aðstæður skýra það, sem lengi var ráðgáta sér- fróðra um fornsögur, að landnám Þorsteins torfa sem „nam Hlíð alla“ er sagt hafa náð „utan frá Ósfjöllum og upp til Hvannár“. (Landnáma. Ís- lenzk fornrit I, s. 292-93) Hluti af landnámi hans var þá Héraðssandar og „eyj- arnar“ svonefndu utan við meginstraum Jöklu og Lagarfljóts sem þá lá um Jökullæk austur í Selfljót við Ósfjöll. Geysiverðmætar blár og sandar Á Austurlandi nær nafnorðið blá (hún blá- in) yfir marflatt vot- lendi, mýrar og flóa, og hvergi er jafn mikið um þær og á Úthéraði, ekki síst í Út- mannasveit eins og Hjaltastaða- þinghá lengi var kölluð. Blárnar þar lifðu af skurðgraftarskeiðið á seinni hluta 20. aldar vegna þess að ekki reyndist unnt að ræsa þær fram þrátt fyrir tilraunir í þá átt. Vatnið í þeim fann einfaldlega ekki halla til að renna burt og bakkar síkja og fljóta sem um blárnar liðast liggja víða hærra en umhverfið. Blár voru bestu heyforðabúr fyrri tíðar, með auðs- lægu kafgresi þegar kom fram á sum- ar. Þekktust þeirra er líklega Hjal- tastaðabláin vegna málverks Ásgríms frá 1926 með Beinageitarfjall í bak- sýn. Aðrar blár eru þó víðlendari, kenndar við bæina Bóndastaði og Hrollaugsstaði, en allar liggja þær að Selfljóti. Rómuð er líka Gláma nokkru vestar nær Lagarfljóti og Blautamýri nyrst í Jökulsárhlíð, en heyfengur þaðan bjargaði miklu kal- árið 1967. – En blárnar eru ekki að- eins gróskumiklar á sumrum heldur kjörland fjölda fuglategunda, svo sem kjóa, kríu, máva, álfta, grágæsa og jaðrakans, og við þetta bætist lax og silungur og stundum selagöngur í Selfljóti. Á vetrum er ásýnd blánna gjörólík, þær eru þá ísilagðar með endalausa skautagljá og auðvelt að tapa þar áttum í blindhríð og skaf- renningi. – Blárnar í Hjalta- staðaþinghá hafa ásamt Héraðs- söndum lengi verið hluti af stóru svæði á opinberri náttúruminjaskrá. Sandarnir yfir tuttugu talsins voru timburforðabúr Fljótsdalshéraðs allt fram á síðustu öld, nákvæmlega skipt milli rétthafa til reka, en lengdin var mjög misjöfn. Það voru kirkjustað- irnir Eiðar og Hallormsstaður sem áttu lengstu fjörurnar, þ.e. Eiðasand og Péturssand. Fornar eldstöðvar mynda rammann Það sem lyftir síðan ásýnd Úthér- aðs í hæðir er fjöllin á báðar hendur með litríki sem fylgir bergmyndunum í fornum eldstöðvum. Að austanverðu er það Dyrfjalla-megineldstöðin í Njarðvík og Dyrfjöllum, að norð- anverðu Fagradalseldstöð á skag- anum milli Héraðsflóa og Vopna- fjarðar. Báðar eru með fjölbreyttum bergtegundum súrum og basískum, Dyrfjallaeldstöðin virk fyrir um 9 milljónum ára en Fagradalseldstöð talin 14,5 milljón ára gömul og þar með ein sú elsta hérlendis. Héraðs- megin Dyrfjalla er hin rómaða Stórurð með þursabergsbjörgum sem jöklar hafa tálgað úr hömrum fjallsins og flutt langar leiðir niður eftir Urðardal, en í austurhlíðum Kol- múla (Kollumúla) lýsir af Þerribjargi sem opinberar okkur miðju þess mikla eldfjalls. Bæði þessi fjalllendi hvort um sig bjóða upp á daglangar ógleymanlegar gönguferðir. Á útnesj- unum báðum megin Héraðsflóa gefur jafnframt að líta fornar útgerðar- stöðvar fyrri alda, m.a. í Eiðaveri og á Selvogsnesi austan flóans og á Geld- ingsnesjum og við Múlahöfn að norð- anverðu. Héraðsbúa dreymdi lengi um örugga höfn til uppskipunar við flóann og sjást þess merki frá síðustu öld í Stapavík. Sögusvið Jóns lærða Úthérað hefur fóstrað marga þekkta einstaklinga fyrr og síðar. Enginn hefur þó orðið jafn langlífur í minningunni og Vestfirðingurinn Jón lærði Guðmundsson (1574-1658). Hann leitaði hér skjóls á miðjum aldri undan ofsóknum yfirvalda, fyrst í heimabyggð sinni í Árneshreppi á Ströndum, síðar á Snæfellsnesi og Bessastöðum. Hann var sjálfmennt- aður alþýðumaður sem ólst upp á tím- um þegar enn eimdi eftir af kaþ- ólskum viðhorfum meðal alþýðu, læs á rúnir og erlend mál. Hann var hrak- inn úr heimabyggð vegna stuðnings við baskneska hvalfangara sem urðu skipreika vestra 1615 og sættu Spán- verjavígunum. Saga hans og eig- inkonunnar Sigríðar er einstök og hefur verið rifjuð upp nýlega bæði hér heima og erlendis auk þess að mynda bakgrunninn í skáldverkinu Rökkurbýsnum eftir Sjón. Jón kom haltrandi yfir Hellisheiði veturinn 1632. Spor hans lágu síðan frá Land- senda í Hlíð út í Bjarnarey, þaðan í Gagnstaðahjáleigu, Dalakot og að lokum í Hjaltastað. Eftir hann liggja ótrúlega fjölbreytt bókmenntaverk frá þessum tíma auk þess sem hann skreytti handrit og hús með teikn- ingum og myndskurði. Nafn hans og verk verðskulda að tengjast fyrirhug- uðu náttúrusvæði á Úthéraði sem nú er komið á rekspöl að frumkvæði heimamanna. Eftir Hjörleif Guttormsson » Svæði þar sem hver bújörð var setin fyrir einni öld eða að- eins fáeinum áratugum hafa breyst í eyðibyggð- ir sem helst eru heim- sóttar af ferðamönnum. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Úthérað og grennd eru efniviður í glæsilegt náttúru- og sögusvæði Ljósmyndir/HG Á Múlatanga norðan Héraðsflóa. Guðný Zoëga skráir fornar verskálarústir. Í baksýn sést í Þerribjarg í Fagradalseldstöð. Múlatangi norðan Héraðsflóa Guðný Zoëga skráir fornar verskálarústir. Í baksýn sést í Þerribjarg í Fagradalseldstöð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.