Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 27
Ef ég mætti ráða öllu í einn dag.... Þá myndi ég gefa frí í íslensku vetrardeildunum og mótunum sem ólokið er á yfirstandandi tímabili, allt til 1. ágúst. Þar á ég við handboltann, körfuboltann, íshokkíið, blakið og svo aðrar íþróttagreinar sem ekki hafa lokið sínum mótum tímabilið 2019-20. Hinn 1. ágúst ætti kórónuveiran að hafa gengið sitt skeið hér á Ís- landi, vonandi fyrir þó nokkru, og flest að vera komið aftur í eðli- legt horf. Í ágúst og fram í september yrði leikið það sem eftir væri af deildakeppnum, úrslitakeppnum, bikarúrslitaleikjum og öðrum mótum sem tilheyra 2019-20. Meistarar krýndir og allt það. Allt á hreinu varðandi færslur á milli deilda, Evrópusæti og ann- að slíkt. Ekkert að vesenast með að krýna deildarmeistara sem Ís- landsmeistara. Hinn 1. október hæfist síðan nýtt tímabil, 2020-21, og allt væri komið í tiltölulega eðlilegt horf. Eflaust myndu fylgja þessu einhverjar flækjur. Engin vanda- mál, bara verkefni til að leysa hjá hverju sérsambandi fyrir sig. Ég tel að þetta sé heppilegri lausn en að ætla að reyna að ýta einhverju af stað í vor og vera stöðugt að fresta því og vand- ræðast með dagsetningar. Leikmenn í misjöfnu ástandi, sumir dottnir úr formi, aðrir að jafna sig af veikindum. Látum bara fjandans veiruna ganga almennilega yfir og setj- um svo allt af stað með trukki. En ég fæ víst ekki að ráða í einn dag... BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2020 RÚSSLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Rússneska úrvalsdeildin í knatt- spyrnu er ein af fáum deildum í Evr- ópu þar sem ennþá er spilað, þrátt fyrir kórónuveiruna sem nú herjar á heimsbyggðina, en í dag munu for- ráðamenn deildarinnar funda um það hvort gera þurfi hlé á deildinni. Hörður Björgvin Magnússon og Arnór Sigurðsson, landsliðsmenn Ís- lands og leikmenn CSKA Moskvu í rússnesku úrvalsdeildinni, voru í byrjunarliði CSKA sem gerði markalaust jafntefli gegn Ufa í deildinni á VEB Arena í Moskvu á sunnudaginn. Hörður Björgvin seg- ist hafa undirbúið sig undir leikinn eins og hvern annan deildarleik. „Þetta var í raun bara eins og hver annar leikur en það hafði vissu- lega áhrif að það máttu bara vera 5.000 stuðningsmenn á vellinum í staðinn fyrir þá 30.000 manns sem mæta reglulega. Það var auðvitað skrítið að spila fyrir framan svona fáa stuðningsmenn, enda mikil stemning á leikjunum í Rússlandi, en tilfinningin var í raun bara eins og maður væri að spila einhvern leik í efstu deild á Íslandi.“ Skilaboð frá stuðningsmönnum „Sjálfur hef ég fengið skilaboð frá stuðningsmönnum CSKA í gegnum Instagram um að ég þurfi að stíga upp og fara fram á að leikjum sé frestað. Það er hræðsla í gangi í landinu, maður finnur það, en á með- an það er lítið um smit í landinu sjá Rússarnir lítinn tilgang í því að hægja á eða fresta leikjum í deild- inni. Rússarnir eru grjótharðir og þeir láta ekkert stoppa sig. Ef það kemur upp einhver pása þá verður bara tekið á því en það eru það fáir leikir eftir að mann langar helst til að klára þetta bara og komast í sum- arfrí.“ Samkvæmt læknateymi CSKA eru ekki nema sextíu kórónuveiru- smit í landinu og því óþarfi að hafa áhyggjur af smithættu enn sem komið er, en alls búa tæplega 146 milljónir manna í Rússlandi. Pressa á Rússa „Það er búið að gefa það út opin- berlega að það sé ekki mikið um smit hérna. Þjálfarateymið hefur sagt okkur að hafa ekki neinar áhyggjur af þessari veiru því það séu svo fáir smitaðir og við leikmennirnir höfum sem dæmi rætt þetta við læknana í liðinu og að þeirra mati eru um 60 manns smitaðir hérna. Það má hins vegar alveg gera ráð fyrir því að það séu fleiri smitaðir og það getur vel verið að það sé verið að fela þetta til þess að vernda hagkerfið hérna. Það er fundur á morgun (í dag) hjá knattspyrnusambandinu og þá verð- ur staðfest hvort við förum í frí eða ekki og það yrði þá þrjár til fjórar vikur í það minnsta til að byrja með.“ Hörður Björgvin telur að Rússar finni fyrir utanaðkomandi pressu að fresta deildarkeppninni þar í landi, líkt og aðrar Evrópuþjóðir hafa gert, og þess vegna sé það nú í um- ræðunni. „Það er mín tilfinning að eina ástæðan fyrir umræðunni um þessa frestun sé vegna utanaðkomandi pressu. Það er fullt af fólki úti á götu, enginn með grímur eða hanska, og fólk er lítið að breyta út af sínum daglega vana. Það er í raun bara eins og það sé ekkert í gangi hérna en vissulega væri skrítið ef Rússar myndu ekki gera neitt til þess að hindra framgang veirunnar enda búa um 14 milljónir manna bara í Moskvu og veiran væri ansi fljót að dreifa sér hér ef hún kæmist á skrið. Að sama skapi eru Rússar mjög góðir með allt svona lagað. Þetta er risastórt land og það þarf allt að vera tipptopp þegar svona að- stæður koma upp. Það er endalaust af spítölum hérna og heilbrigð- iskerfið er mjög gott þannig að per- sónulega hefur maður ekki miklar áhyggjur.“ Vonum að barnið fæðist heima Hörður Björgvin á von á sínu fyrsta barni ásamt unnustu sinni, Móeiði Lárusdóttur, í byrjun júní og vonast þau til þess að barnið fæðist á Íslandi. „Við erum alls ekki stressuð enda erum við í regulegu sambandi við lækna hérna úti. Okkur er ráðlagt að passa vel upp á allt hreinlæti og vera dugleg að spritta okkur. Okkur hef- ur ekki verið ráðið frá því að ferðast og fóstrið er í góðum höndum hérna í Rússlandi. Við höldum áfram að lifa lífinu og markmiðið er að barnið fæðist heima á Íslandi í byrjun júní. Ef deildinni verður hins vegar frest- að eitthvað fram á sumar gæti vel farið svo að við þyrftum að breyta um plön en það er þá bara seinni tíma vandamál og við munum taka á því þegar þar að kemur,“ bætti Hörður Björgvin við í samtali við Morgunblaðið.  Eftir að rætt var við Hörð var tilkynnt að engir leikir yrðu í Moskvu til 10. apríl og næsta heima- leik CSKA sem átti að vera gegn Ze- nit 22. mars hefur verið frestað. Sagt að hafa engar áhyggjur  Hörður spilaði á sunnudag  Aðeins 5 þúsund máttu horfa í stað 30 þús- unda  Rússar sjá lítinn tilgang í að fresta leikjum  Eins og ekkert sé í gangi AFP Moskva Hörður Björgvin Magnússon og félagar í CSKA eru í fimmta sæti rússnesku úrvalsdeildarinnar þegar átta umferðum er ólokið. Rúnar Már Sigurjónsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, má ekki yfir- gefa Nur-Sultan, höfuðborg Kasak- stan, næstu átta dagana. Félag hans, Astana, hefur bannað leik- mönnum sínum að fara til heim- kynna sinna og eiga þeir að æfa sjálfir næstu átta dagana. Síðan verði staðan skoðuð á ný. Rúnar skoraði fyrir Astana í leik í deild- inni á sunnudag en eftir það var ákveðið að loka landinu vegna kór- ónuveirunnar. Nánar var rætt við Rúnar í gær á mbl.is/sport/fotbolti. vs@mbl.is Rúnar er fastur í Nur-Sultan Ljósmynd/fcastana.kz Kasakstan Rúnar Már Sigurjóns- son leikur með meistaraliðinu. Portúgalski knattspyrnumaðurinn Bruno Fernandes hefur verið út- nefndur besti leikmaður febrúar- mánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Fernandes kom til Manchester United frá Sporting Lissabon í lok janúar og því er óhætt að segja að hann hafi slegið strax í gegn, hjá fé- laginu og í deildinni. Fernandes lék fjóra úrvalsdeildarleiki frá 1. febr- úar til 1. mars og skoraði í þeim tvö mörk en United vann tvo þeirra og gerði tvö jafntefli. Auk þess skoraði hann í 5:0 sigri á Club Brugge í Evrópudeildinni í lok febrúar. Bestur í fyrsta mánuði sínum AFP England Bruno Fernandes hefur farið virkilega vel af stað. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Leik Íslands og Rúmeníu og öðr- um umspilsleikjum fyrir Evr- ópumót karla í knattspyrnu sem fram eiga að fara dagana 26. og 31. mars verður án efa frestað í kjölfarið á neyðarfundi UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu, sem haldinn verður í dag. Sama er að segja með sjálft Evrópumótið sem fram á að fara í tólf borgum Evrópu frá 12. júní til 12. júlí en þar eiga Tyrkir og Ítalir að mætast í fyrsta leiknum í Róm 12. júní. Ítalir munu á fundinum leggja formlega fram ósk um að Evrópumótinu verði frestað til þess að svigrúm verði til að ljúka keppnistímabilinu í hinum ýmsu deildum Evrópu. Ítalir hafa sett stefnuna á að ljúka keppni í A-deildinni 30. júní en þar er enn eftir að spila tólf um- ferðir og deildin þyrfti því að geta farið af stað á ný í byrjun maí. Forseti ítalska knatt- spyrnusambandsins, Gabriele Gravina, sagði í gær að það kæmi líka vel til greina að ljúka keppninni næsta haust, áður en tímabilið 2020- 2021 hæfist. Varðandi lokakeppni EM hafa verið hug- myndir um að halda mótið í desember eða þá fresta því til sumarsins 2021. Um- spilsleikjunum verður þá vænt- anlega frestað til næsta hausts. Fundurinn í dag verður hald- inn með fjarfundabúnaði og þar verða „viðstaddir“ fulltrúar allra 55 knattspyrnusambanda Evrópu. Enn fremur stjórn- armenn samtaka evrópsku knattspyrnufélaganna, fulltrúar einstakra deilda og fulltrúi FIFPro, samtaka atvinnuknatt- spyrnumanna. Á fundinum verða rædd mál- efni allra deilda í Evrópu, Evr- ópumóta félagsliða og loka- keppni EM 2020. Umspilinu og EM 2020 væntanlega frestað Gabriele Gravina Ekki verður meira leikið í sænska hand- boltanum á leik- tíðinni vegna út- breiðslu kórónuveir- unnar. Sænska handknattleiks- sambandið greindi frá þessu á heimasíðu sinni í gær. Í yfirlýsingu frá sambandinu kemur fram að núverandi staða í deildum innan þess verði lokastaða. Ekki er búið að ákveða hvort meist- arar verði krýndir eða hvort ein- hver lið falli eða fari upp um deild. Fjórir Íslendingar leika í efstu deildinni; Teitur Örn Einarsson og Ólafur Andrés Guðmundsson leika með Kristianstad sem er í þriðja sæti, Ágúst Elí Björgvinsson með Sävehof sem er í sjötta sæti og Ar- on Dagur Pálsson með toppliði Al- ingsås. Ágúst Elí, sem varð meistari með Sävehof á síðustu leiktíð, hefur þar með leikið sinn síðasta leik fyr- ir félagið. Gengur hann í raðir Kolding í Danmörku fyrir næsta tímabil. Sænska handboltan- um lokið Teitur Örn Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.