Morgunblaðið - 17.03.2020, Page 32

Morgunblaðið - 17.03.2020, Page 32
Bíóaðsókn í Bandaríkjunum náði nýjum lægðum um nýliðna helgi, að því er fram kemur á vef dagblaðsins New York Times, og er ástæðan að sjálfsögðu út- breiðsla kórónuveirunnar. Flest kvikmyndahús voru opin en aðeins selt í annað hvert sæti. Miðasala kvik- myndahúsa í landinu varð fyrir vikið 44% minni en helgina áður og höfðu frumsýningar á þremur nýjum kvikmyndum því lítil áhrif. Hefur miðasala yfir helgi aldrei skilað jafnlitlum tekjum frá því að eftirlit með slíkri sölu hófst á níunda áratugnum. Ofurhetjumynd- in Bloodshot með Vin Diesel í aðalhlutverki er meðal þeirra þriggja kvikmynda sem frumsýndar voru um helgina í Bandaríkjunum og víðar. Sögulega lítil bíóaðsókn ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 77. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Ég er fyrst og fremst ótrúlega ánægð með þennan sigur enda mikil óvissa búin að vera í gangi í kringum körfuboltann á Englandi undanfarna daga,“ segir Sara Rún Hinriksdóttir, leikmaður Leicester Riders og ný- krýndur breskur bikarmeistari í körfuknattleik. »26 Ánægð eftir mikla óvissu ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sauðfjárbændur á Ströndum hafa vakið athygli í keppni í skíðagöngu. Nokkrir þeirra tóku þátt í nýafstað- inni Vasagöngu í Svíþjóð og var fremsti Íslendingurinn í göngunni í hópi Strandamanna. Vasagangan var fyrst haldin 1922 og hefur farið fram árlega síðan nema hvað hún hefur fallið þrisvar niður vegna snjóleysis. Rósmundur Númason frá Gilsstöðum tók nú þátt í göngunni í áttunda sinn og Ragnar Kristinn Bragason á Heydalsá í fjórða sinn. „Það er gaman að takast á við þá áskorun að ganga 90 kíló- metra leiðina, það togar í okkur,“ segir Ragnar. Mikill áhugi er á skíðagöngu á Ströndum. Ragnar segir að þeir sem fóru í keppnina í Svíþjóð eigi börn sem æfi skíðagöngu hjá Skíðafélagi Strandamanna. Foreldrarnir hafi þannig dregist inn í íþróttina og hóp- ur bænda hafi æft saman. „Það er uppsveifla í göngunni og metþátt- taka var í Strandagöngunni 7. mars. Það var fínt að liðka sig í henni eftir Vasagönguna og ganga 20 kíló- metra,“ segir Ragnar, sem hefur gengið allar 26 Strandagöngurnar og leiðbeinir göngufólki hjá skíða- félaginu. „Ég var þreyttur eftir Vasagönguna en henni fylgdi samt vellíðan eftir að hafa tekið vel á því. Það er þægileg tilfinning, líkamlega og andlega.“ Sjö manna hópur fór saman til Svíþjóðar. Vilberg Þráinsson á Hrís- hóli og Hjalti Helgason í Garpsdal í Reykhólasveit voru þar á meðal með Rósmundi og Ragnari eins í fyrra. Ágúst Helgi Sigurðsson á Stóra- Fjarðarhorni, Jón Eðvald Hall- dórsson frá Drangsnesi og Stefán Ragnarsson, sonur Ragnars, voru skráðir í fyrsta sinn en Stefán gat ekki gengið vegna veikinda. Persónulegt met Ragnars Ragnar fór fyrst í gönguna 2009, síðan 2012 og svo 2019, þegar hann náði öðrum besta tíma íslenskra þátttakenda og fékk betri ráshóp í ár fyrir vikið. Skipt er í tíu hópa og var Ragnar núna í hópi númer þrjú. „Það munar miklu að byrja framar því þá losnar maður við kraðakið í fyrstu brekkunni,“ segir hann. „Ég náði besta árangri mínum, gekk á sex klukkutímum og 25 mínútum, varð í 1.404 sæti af um 14.000 þús- und keppendum, fyrstur rúmlega 40 Íslendinga.“ Lítið hefur snjóað á göngusvæð- inu í vetur og þurfti að keyra snjó í brautina. Ragnar segir að ekki hafi komið korn úr lofti í margar vikur en nóttina fyrir gönguna og á meðan á henni stóð hafi snjóað samtals um 15 cm jafnföllnum snjó. „Öll spor hurfu, gangan varð mjög erfið og vel af sér vikið að klára,“ segir hann. „Ég fer í flestar Íslandsgöngurnar og hef til dæmis farið í allar Fossa- vatnsgöngurnar síðan 1999,“ heldur Ragnar áfram. „Þetta sport hentar ágætlega með sauðfjárbúskapnum. Maður kemst í ágætis form eftir smalamennskuna á haustin og held- ur sér svo við á skíðunum á vet- urna.“ Í Sålen í Svíþjóð Hópurinn þar sem 90 km Vasagangan byrjar. Frá vinstri: Jón Eðvald Halldórsson, Ágúst Helgi Sigurðsson, Hjalti Helgason, Ragnar Kristinn Bragason, Rósmundur Númason og Vilberg Þráinsson. Smalar snarpir í skíðagöngu  Mikill áhugi á íþróttinni á Ströndum  Hópur þaðan í Vasagöngunni í Svíþjóð og Ragnar fremstur allra Íslendinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.