Morgunblaðið - 21.03.2020, Page 1

Morgunblaðið - 21.03.2020, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 1. M A R S 2 0 2 0 Stofnað 1913  69. tölublað  108. árgangur  Njóttu hækkandi sólar á rúntinum. Uppáhaldsbíllinn þinn bíður! HEKLA · Skoðaðu úrvalið á www.hekla.is/vefverslun EUROVISION GULLNÁMA FYRIR GRÍNISTA HESTARNIR RÓA HUGANN DAGLEGT LÍF 12ATLI TÓNSKÁLD 44 Baldur Arnarson Stefán Gunnar Sveinsson Forystumenn stjórnarflokkanna kynna í dag aðgerðir til að örva hag- kerfið eftir tekjufall vegna kórónu- veirufaraldursins. Meðal þeirra er að fresta skattgreiðslum fyrirtækja. Þá verður fjárfesting hins opinbera aukin frá því sem boðað var. Heimildarmaður blaðsins sem þekkir til málsins sagði gjaldheimtu jafnvel verða frestað fram á næsta ár. Með þessu yrði brugðist við hruni í eftirspurn í hagkerfinu. „Aðgerðirnar miða að því að koma til móts við fyrirtækin og koma þeim í gegnum skaflinn. Þetta eru ekki síð- ustu aðgerðirnar sem verða kynntar. Menn vilja enda ekki klára öll skotin í byssunni strax,“ sagði hann. Fleiri aðgerðir verði kynntar á næstu vik- um þegar staðan skýrist. Viðmið um ríkisaðstoð Jafnframt sé verið að ganga frá viðmiðum um aðstoð til fyrirtækja. Með þeim verði fyrirtækjum auðveld- að að leita fyrirgreiðslu hjá viðskipta- bönkum. Hins vegar verði fyrirtæki undanskilin ef rekstrarerfiðleikar eru ekki tilkomnir vegna þessara að- stæðna. Meðal annars verði horft til þess hvort skuldsetning sé tilkomin vegna annarra þátta en rekstrar. Meðal annars verði skoðað hvernig Norðmenn og Danir hafi miðað við til- tekið tekjufall. Ætlunin sé að reglurn- ar verði gagnsæjar þannig að ekki þurfi að koma upp vafamál um hver uppfylli skilyrðin. Tugir milljarða í bætur Þingið samþykkti í gær frumvarp ríkisstjórnarinnar um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða skertu starfshlutfalli. Taldi heimildarmaður blaðsins vel sloppið ef hlutabætur vegna tekjubrests fyrirtækja yrðu undir 20 milljörðum til 1. júní. Sam- anlagt myndu bæturnar og greiðslu- skjólið létta verulega undir fyrirtækj- um eftir mikið tekjufall. Annar heimildarmaður blaðsins, sem þekkir líka vel til málsins, sagði aðgerðirnar myndu hafa mikla þýðingu fyrir fyrir- tækin í landinu. Eftirspurn hefði hrunið algerlega á mörgum sviðum. Staðfest tilfelli kórónuveirunnar voru 409 í gær. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir í samtali við Morgunblaðið í dag að það hafi aldrei verið stefna stjórnvalda að ná hér upp hjarðónæmi, og að hér hafi strax ver- ið farið í harðar aðgerðir til að ná tök- um á faraldrinum. Fyrirtæki munu fá greiðsluskjól  Ríkisstjórnin hyggst fresta skattgreiðslum fyrirtækja  Gert ráð fyrir háum fjárhæðum í hlutabætur  Yfir 90% samdráttur í sölu úrsmiðs á Laugavegi  Hörðum aðgerðum beitt til að ná tökum á veirunni Kórónuveiran » Ríkisstjórnin kynnir í dag aðgerðir til að örva hagkerfið vegna skorts á eftirspurn. » Skattgreiðslum fyrirtækja verður frestað, jafnvel fram á næsta ár. » Fjárfesting hins opinbera verður aukin. » Gilbert úrsmiður á Lauga- vegi segir yfir 90% samdrátt í sölu vegna faraldursins. MKórónuveira »2-6, 10-11, 16-20 Ingu Maríu Leifsdóttur brá heldur betur í brún laugardagskvöld fyrir rúmri viku þegar hún fékk það stað- fest að hún bæri kórónuveiruna. Hún byrjaði að finna fyrir flensuein- kennum um svipað leyti og fyrsta opinbera smitið greindist hérlendis en hafði ekki verið í samskiptum við nokkurn sem var að koma frá áhættusvæði. „Ég margspurði hjúkrunarfræð- inginn hvort hún væri örugglega að tala við rétta manneskju, ég bara trúði þessu ekki! Mér fannst 99,5% líkur á því að ég væri ekki með þetta. Þegar fyrsta smitið greindist hér á landi var ég á leiðinni upp í sumar- bústað þar sem ég var alla helgina. “ Inga María upplifði talsverðan höfuðverk og beinverki. „Svo missti ég allt bragðskyn og lyktarskyn.“ Rætt er við fjóra einstaklinga í einangrun í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Morgunblaðið/Eggert Faraldur Inga María Leifsdóttir. Brá í brún að greinast Þótt aðstæður tímans séu undarlegar hefur aldr- ei verið mikilvægara en nú að standa saman og sýna væntumþykju. Hilma Hólmfríður Sigurðar- dóttir á Húsavík varð 100 ára í gær, 20. mars, en hún dvelst á Hvammi, dvalarheimili aldraðra þar í bæ. Á Hvammi gildir samkomubann, en svo að dagamunur væri mættu ættingjar þar fyrir utan í gær og sungu fyrir afmælisbarnið, sem kom út á svalir glöð í bragði og þakkaði fyrir sig. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Hamingjusöngur fyrir konuna á svölunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.