Morgunblaðið - 21.03.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.03.2020, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020 Ársfundi Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, sem halda átti þriðjudaginn 24. mars, er frestað um óákveðinn tíma. Þetta er gert í ljósi gildandi samkomubanns stjórnvalda vegna COVID-19. Nánari upplýsingar á vef sjóðsins live.is Ársfundi frestað Lífeyrissjóður verzlunarmanna — live.is Skúli Halldórsson sh@mbl.is Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist hafa trú á niðurstöðum þess spálíkans sem unnið hefur verið af vísindamönnum frá Háskóla Íslands, Embætti landlæknis og Landspítala um áætlaða útbreiðslu kórónuveir- unnar hér á landi næstu vikur og mánuði. Það sé í takti við það sem gert hafi verið erlendis, t.a.m. við Im- perial College í Bretlandi. „En stærðfræðilíkan er jú bara líkan. Það er ekki endilega raunveru- leikinn. Þannig að við erum með ákveðinn fyrirvara á þessum spá- tölum,“ segir Þórólfur í samtali við Morgunblaðið. Athygli hefur vakið að fjöldi smit- aðra á samkvæmt líkaninu að stöðv- ast í um 1.000 til 2.000 manns, áður en kúrfan leitar aftur niður á við. Líkleg- ast er þannig talið að fjöldi virkra smita verði mestur rétt yfir 600, í fyrrihluta aprílmánaðar. Svartsýnni spá líkansins gefur hins vegar til kynna að mestur verði fjöldi virkra smita tæplega 1.300 síðar í aprílmán- uði en þó fyrir hann miðjan. Spurður hvað valdi því að kúrfa lík- ansins leiti niður á við eftir þennan fjölda smita, segir Þórólfur: „Allir faraldrar fara niður að lokum og sér- staklega með aðgerðum. Ef ekkert er að gert fer kúrfan enn þá hærra þar til hún nær þessu 60% sýkingarhlut- falli í samfélaginu, en með þessum að- gerðum þá getum við lækkað það hlutfall mjög mikið, þannig að hún fari niður við miklu lægra gildi.“ Spurður um mögulegan veldisvöxt í fjölda smitaðra segir Þórólfur að sú sé alltaf raunin í byrjun. „Þar til vöxt- urinn nær ákveðnu marki og þá dett- ur hann niður, eins og sést á kúrfunni. Og ef það er verið að beita ákveðnum aðgerðum þá fer toppurinn ekki eins hátt og hann hefði ella gert.“ Markmiðið ekki hjarðónæmi Sá hámarksfjöldi manna sem lík- anið bendir til að geti greinst með veiruna fyrir lok maí, þ.e. 1.000 til 2.000 manns, gefur ekki til kynna að markmið stjórnvalda að sinni sé svo- kallað hjarðónæmi, þ.e. þegar nægt hlutfall þjóðarinnar hafi smitast til að faraldur eigi erfitt um vik með frekari útbreiðslu. Í tilviki kórónuveirunnar hefur verið bent á hlutfallið 60-70%. Þórólfur segir stjórnvöld ekki hafa talað um að leitast væri eftir hjarð- ónæmi. „Við höfum bara sagt að til að ná hjarðónæminu þurfi það að vera 60%. Það hefur aldrei verið stefnan að 60% af þjóðinni sýkist. Þess vegna erum við að grípa til annarra aðgerða, til þess að það þurfi ekki að gerast. Það eru þessar aðgerðir; einangrun og sóttkví og fleira – þannig munum við ná jafnvægi með miklu lægri fjölda smitaðra.“ Bresk yfirvöld voru gagnrýnd fyrir skort á aðgerðum gegn útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi, sem bent hefur til þess að þau kunni að sækjast eftir áðurnefndu hjarð- ónæmi, en síðan þá hafa þau hert sín- ar aðgerðir. Spurður hvort íslensk stjórnvöld hafi verið á sömu vegferð og þau bresku voru, segir Þórólfur að því fari víðs fjarri. „Þetta er gjörólíkt. Við höfum strax frá upphafi beitt mjög hörðum aðgerðum í að greina smit, beita ein- angrun og sóttkví, meðal annars fyrir fólk sem kemur frá ákveðnum svæð- um – sem Bretar hafa alls ekki gert. Það er fyrst núna sem þeir eru að fara að gera eitthvað – þegar faraldurinn er byrjaður. Enda hafa þeir sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki byrjað fyrr.“ Greint var frá því í gær að til skoð- unar væri að herða á samkomubann- inu sem þegar er í gildi hér á landi, en þegar hefur verið lagt bann við því að fleiri en hundrað komi saman á einum stað. Spurður hvort til hliðsjónar sé viðmið um ákveðinn fjölda virkra smita sem vera þurfi til að ráðist sé í frekari aðgerðir á borð við alhliða lok- un skóla, segir Þórólfur: „Það eru nokkur atriði sem við er- um að horfa á; við erum að horfa á þróun faraldursins, hverjir eru að greinast með sjúkdóminn og hvort um sé að ræða hóp manna sem eru að greinast á einhverjum afmörkuðum stað. Þannig að það eru fjölmörg at- riði sem við þurfum að taka tillit til áður en við grípum til harðari að- gerða. Þetta er í sífelldu mati.“ Stendur og fellur með fólkinu Á Landspítalanum hafa verið 26 öndunarvélar og í gær komu fimmtán til viðbótar til landsins sem vonast er til að nýst geti spítalanum líka. Spurður hvort nægur fjöldi véla sé á landinu, segir Þórólfur að ef þróunin samkvæmt spám gangi eftir eigi hún að vera viðráðanleg. „Sérstaklega þar sem verið er að hugsa út leiðir á borð við að bæta við húsnæði og öndunarvélum. En allt stendur þetta og fellur með mann- aflanum, það er heilbrigðisstarfsfólk- inu. Það getur ekki hver sem er allt í einu farið að stýra öndunarvél. Þetta stendur því og fellur með þeim sér- hæfða mannskap sem þarf til.“ Þórólfur segir að víðtækar skiman- ir íslenskra stjórnvalda fyrir veirunni séu lykillinn að árangri hér á landi. „Að greina sem flesta, greina þá fljótt, setja smitaða í einangrun og aðra sem hugsanlega hafa smitast í sóttkví – það er þungamiðjan í þessu,“ segir hann. „Að auki það sem við höfum beðið almenning um að gera, með þessu samkomubanni, til að takmarka um- gengni fólks hvers við annað og draga þannig úr líkum á smiti milli manna. Þetta eru lykilatriðin. Hvort það þurfi að gera eitthvað róttækara en þetta, það er alltaf spurningin.“ Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 7 20 Útlönd 0 4 Austurland 0 22 Höfuðborgarsvæði 349 2.934 Suðurnes 19 141 Norðurland vestra 2 237 Norðurland eystra 2 194 Suðurland 30 544 Vestfirðir 0 21 Vesturland 0 50 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Erlendis Óþekktur 28%36% 36% 9.189 sýni hafa verið tekin 22 einstaklingar hafa náð bata 577 hafa lokið sóttkví 7 einstaklingar eru á sjúkrahúsi 409 manns eru í einangrun Fjöldi staðfestra smita frá 28. febrúar 28.2. 29.2. 1.3. 2.3. 3.3. 4.3. 5.3. 6.3. 7.3. 8.3. 9.3. 10.3. 11.3. 12.3 13.3. 14.3. 15.3. 16.3. 17.3. 18.3. 19.3. Upplýsingar eru fengnar af 409 smit voru staðfest í gær kl. 11.00 4.166 hafa verið settir í sóttkví 400 350 300 250 200 150 100 50 409 Nái jafnvægi með færri smitum  Íslensk stjórnvöld ekki á sömu vegferð og þau bresku, segir sóttvarnalæknir  Harðar aðgerðir frá upphafi  Horfa á þróun faraldursins og meta skilyrði fyrir frekari aðgerðum  Skimanirnar lykilatriði Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á fundi Þórólfur segir möguleikann á frekari aðgerðum í sífelldu mati. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er mikið högg. Ég hef heyrt um sjúkraþjálfara sem eru nú með 20% af þeim verkefnum sem þeir eru vanir. Algengast er að sjúkraþjálf- arar á einkastofum séu að fá um það bil 60% af verkefnum sem áður voru,“ segir Unnur Pétursdóttir, for- maður Félags sjúkraþjálfara. Kórónuveirufaraldurinn kemur sér afar illa fyrir ýmsar þjónustu- greinar í samfélaginu. Mörg einka- fyrirtæki sjá fram á magra tíma. Unnur segir að sjúkraþjálfun sé heilbrigðisþjónusta og megi ekki falla niður eigi árangur af aðgerðum og meðferðum að haldast. Sjúkra- þjálfun sem fer fram á stofnunum, til að mynda spítölum og öldrunarheim- ilum, heldur dampi að hennar sögn en takmarkanir eru á göngudeildar- þjónustu. „Á einhverjum einkastofum hefur verið ákveðið að vinna bara annan hvern dag eða skipta starfsfólki í tvo hópa til að minnka áhættu á smiti. Þá er reynt að haga málum þannig að sem fæstir séu á biðstofum í einu.“ Gauti Torfason, eigandi rakara- stofunnar Herramanna í Kópavogi, segir að margir veigri sér við að koma á stofuna vegna ástandsins, sérstaklega eldra fólk. Til skoðunar sé að bjóða upp á sérstaka tíma til að taka á móti þessum hópi. „Áður en þetta skall á voru hér raðir út úr dyr- um en nú er allt miklu rólegra. Við erum með fimm stóla en klippum nú bara í þremur svo nóg pláss sé á milli fólks,“ segir rakarinn, sem leggur nú drög að tvískiptum vöktum ef ástandið skyldi versna. Hrönn Róbertsdóttir, eigandi tannlæknastofunnar Brossins, segir að kórónuveirufaraldurinn sé þegar farinn að hafa mikil áhrif á hennar starfsstétt. Einhverjar minni stofur séu farnar að huga að lokun eða hafi þegar lokað. „Við erum með stóra stofu og þjónustum breiðan hóp. Við hringj- um sjálf í eldra fólk og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma en höf- um getað tekið fólk inn af biðlistum í staðinn. Við endurskipuleggjum einn dag í einu.“ Hrönn kveðst jafnframt skynja að ástandið í þjóðfélaginu sé farið að leggjast á fólk. „Fyrir marga er al- mennt erfitt að koma til tannlæknis og við finnum fyrir því að þeir eru tæpari fyrir nú en áður. Það þarf að gefa fólki góðan tíma í stólnum. Fólk er pínu stressað.“ „Mikið högg“ fyrir þjónustugreinarnar  Samdráttur í sjúkraþjálfun og víðar KÓRÓNUVEIRUFARALDUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.