Morgunblaðið - 21.03.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020
Í dag er búist við að ríkisstjórninkynni björgunaraðgerðir í
efnahagsmálum. Á þingfundi í gær
óskaði Logi Einarsson, formaður
Samfylkingar, eftir því að stjórnar-
andstaðan fengi að
koma meira að
undirbúningi pakk-
ans áður en hann
yrði kynntur. Bjarni
Benediktsson fjár-
málaráðherra benti
á að ríkisstjórninni
bæri skylda til að
leggja fram hug-
myndir að við-
brögðum en að í
framhaldinu yrði
umræða í þinginu og
„mögulega áður en
mál koma til þings-
ins“. Samtal þeirra
var hefðbundið og
bendir til að ágæt samvinna geti
orðið um þær aðgerðir sem fram
undan eru og þjóðin gerir sér rétt-
mætar væntingar um að verði
myndarlegar og hjálpi atvinnulífinu
að komast sem best í gegnum áfallið
og að þannig megi um leið verja
hag sem flestra launamanna.
En spurning sem kom á eftir frápíratanum Jóni Þór Ólafssyni
benti ekki endilega til að vænlegt
væri að vinna að lausn með
stjórnarandstöðunni. Hann taldi að
nú, mitt í öllum þrengingunum,
væri rétti tíminn fyrir ríkisvaldið að
opna budduna upp á gátt og ganga
möglunarlaust að kröfum hjúkr-
unarfræðinga.
Augljóst er að ríkið getur ekki núsett kjarasamninga í uppnám.
Raunar er líka augljóst að Ísland
getur ekki búið við verkföll eða
verkfallshótanir ofan á baráttuna
við veiruna. Þetta er meðal þess
sem ríkisvaldið þarf að leysa, en
það verður ekki gert með því að
gera nú samninga sem eru í engu
samræmi við þá sem þegar hafa
verið gerðir.
Bjarni
Benediktsson
Nú er ekki tími
óábyrgra yfirboða
STAKSTEINAR
Jón Þór Ólafsson
Höskuldur Jónsson,
fyrrverandi ráðu-
neytisstjóri og for-
stjóri ÁTVR, er látinn,
83 ára að aldri. Hann
lést á sjúkrahúsi á
Kanaríeyjum, þar sem
hann var í orlofi með
eiginkonu sinni, í kjöl-
far skurðaðgerðar
vegna sýkingar.
Höskuldur var
fæddur á Mýri í Álfta-
firði við Ísafjarðardjúp
9. ágúst 1937, sonur
þeirra Halldóru Maríu
Kristjánsdóttur og Jón
Guðjóns Kristjáns Jónssonar.
Höskuldur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1957, námi í viðskiptafræði frá HÍ
1963 og las í kjölfar þess þjóð-
félagsfræði við Háskólann í Haag í
Hollandi. Eftir háskólanám hóf
Höskuldur störf hjá hinu opinbera
og byrjaði í fjármálaráðuneytinu
árið 1965. Var þar fyrst fulltrúi,
svo deildarstjóri, skrifstofustjóri og
loks ráðuneytisstjóri. Árið 1986 var
Höskuldur skipaður forstjóri
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins og leiddi hann fyrirtækið í
gegnum margvíslegar breytingar
og kom með nýjar áherslur í starf-
semi þess. Forstjóra-
starfi ÁTVR gegndi
Höskuldur út ágúst
2005.
Um dagana sinnti
Höskuldur fjölmörg-
um trúnaðarstörfum
með setu í stjórnum
sjóða og stjórna fyrir
hönd hins opinbera.
Var einnig um nokk-
urra ára skeið for-
maður samninga-
nefndar ríkisins í
launamálum og átti
sæti í stjórnum líf-
eyrissjóða. Höskuldur
var forseti Ferðafélags Íslands frá
1985 til 1994, enda mikill útivistar-
og fjallamaður. Má þess geta að
skáli FÍ í Hrafntinnuskeri við
Laugaveginn er eftir honum nefnd-
ur og heitir Höskuldsskáli. Hösk-
uldur var handhafi gullmerkis FÍ
og jafnframt heiðursfélagi. Hann
var mjög virkur í starfi félagsins, í
vinnuferðum, kvöldvökum og sinnti
fararstjórn.
Eftirlifandi eiginkona Höskuldar
er Guðlaug Sveinbjörnsdóttir
sjúkraþjálfari og eiga þau þrjá
uppkomna syni; Þórð, Sveinbjörn
og Jón Grétar. Barnabörnin eru
þrjú.
Andlát
Höskuldur Jónsson,
fv. forstjóri ÁTVR
Þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins
hafa ekki tekið ákvörðun um hvort og
með hvaða hætti stýrivaxtalækkun
Seðlabanka Íslands muni sjá stað í
vaxtakjörum sjóðfélagalána. En
Seðlabankinn hefur í tveimur skref-
um lækkað meginvexti sína um 1 pró-
sentu á síðustu tveimur vikum.
Harpa Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins gefur ekkert upp um áætlanir
sjóðsins. „Eðli málsins samkvæmt
get ég ekki svarað þessu, þá væri aðili
úti í bæ orðinn innherji. Þetta mun
tíminn leiða í ljós,“ sagði Harpa.
Árni Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Gildis, benti á að stjórn sjóðsins
tæki ákvarðanir um vexti sjóð-
félagalána og að næsti stjórnar-
fundur væri áætlaður 26. mars. Benti
hann þó á að stjórnin væri nýbúin að
taka ákvörðun um vaxtalækkun. 16.
mars sl. var tilkynnt að stjórn sjóðs-
ins hefði lækkað vexti verðtryggðra
og óverðtryggðra lána. Lækkuðu
óverðtryggð lán um 0,15% og verð-
tryggð lán um 0,10%. Í svari frá Líf-
eyrissjóði verslunarmanna sagði að
stjórn sjóðsins kæmi saman í síðari
hluta apríl. „Ef breytingar verða fyrir
þann tíma þá verður það tilkynnt á
vefsíðu sjóðsins.“
Viðskiptabankarnir þrír hafa allir
tilkynnt um vaxtalækkanir sem nema
frá 0,1% og upp í 0,5% eftir tegundum
lána.
Lífeyrissjóðirnir hafa ekki lækkað
Bankarnir hafa allir brugðist við vaxtalækkun Seðlabankans með lækkun
Morgunblaðið/Eggert
Vextir Hús verslunarinnar.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/