Morgunblaðið - 21.03.2020, Page 10

Morgunblaðið - 21.03.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020 Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar myndó.isljósmyndastofa NJÓTUMMINNINGANNA Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Allur aðfangaflutningur er auðvitað umtalsvert erfiðari. Þá hefur verið mikil vinna að moka snjó frá og koma inn heyi,“ segir Hávar Örn Sigtryggsson, bóndi á Hriflu í Þing- eyjarsveit, í samtali við Morgun- blaðið. Að sögn Hávars hefur gríðarmik- ill snjór safnast víða á Norðurlandi, en að því er fram kemur í tölum frá Veðurstofu Íslands var 254 sentí- metra djúpur snjór á Skeiðsfossi í Fljótum í Skagafirði. Til saman- burðar er dýpsti snjór sem mælst hefur hér á landi 279 sentímetrar, en sú mæling fór sömuleiðis fram á Skeiðsfossi, árið 1885. Stórir skaflar myndast víða Spurður hvort snjókoman í ár hafi torveldað búskap kveður Hávar já við. Bændur láti það þó ekki á sig fá. „Sveitarfélagið stendur fyrir um- fangsmiklum mokstri sem dekkar þetta að mestu leyti. Það hafa þó myndast afar stórir skaflar víða,“ segir Hávar en bætir þó við að stað- an á sauðfénu sé góð. Eins hafi ágætlega tekist að hemja hrossin til þessa. „Hrossin eru í góðu skjóli úti við, en allar girðingar eru þó komnar á kaf. Um leið og heyið minnkar geta þau farið á flakk þannig að við reynum að gefa þeim ríflega til að halda þeim rólegum. Staðan á sauð- fénu er jafnframt góð,“ segir Hávar. Aðspurður segist Hávar vonast til að hlýna taki í veðri fljótlega, enda styttist í sauðburð. „Ef snjórinn endist fram að sauðburði í lok apríl eru menn í vandræðum. Við erum þó ekkert farnir að örvænta ennþá, en vonandi fer að hlýna fljótlega,“ segir Hávar. Mikill álagstími á næstunni Fram undan er mikill álagstími hjá bændum og kemur kórónu- veirufaraldur því ekki á góðum tíma. „Það er auðvitað ekki auðvelt að sækja afleysingu, en það er verið að skipuleggja þetta núna,“ segir Hávar. Í fréttatilkynningu sem Bænda- samtök Íslands sendu frá sér í gær kemur fram að búið sé að leggja grunn að viðbragðsáætlun fyrir helstu gerðir búrekstrar vegna kór- ónuveirunnar. Þar er lögð áhersla á að auðvelda bændum greiningu á lykilþáttum starfseminnar og skrán- ingu annarra nauðsynlegra upplýs- inga. Í tilkynningunni segir enn fremur að afleysingamaður eigi að geta gengið inn í dagleg störf án þekkingar á búi eða með aðstoð við- komandi bónda. Ljósmynd/Ísey Dísa Snjókoma Að sögn Hávars binda bændur fyrir norðan vonir við að hlýna taki í veðri á allra næstu vikum. Snjókoma hefur torveldað búskap fyrir norðan  Fram undan er mikill álagstími hjá íslenskum bændum Hávar Þrátt fyrir gríðarlega mikinn snjó hefur gengið vel að moka. Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið AwareGo, sem framleiðir fræðslu- myndbönd fyrir atvinnulífið þar sem farið er yfir þau atriði sem starfsfólk þarf að gæta sín á svo að lágmarka megi líkurnar á að óprúttnir aðilar komist inn í tölvukerfi fyrirtækja og stofnana, hefur í tilefni af útbreiðslu kórónuvírussins og aukinni fjarvinnu fólks af þeim völdum sett saman sér- stakt fjarvinnunámskeið sem að- gengilegt er í þjálfunarbúnaði fyrir- tækisins. Geta fyrirtæki nálgast námskeiðið án endurgjalds á heima- síðu AwareGo sem ókeypis prufu, og deilt myndböndum í gegnum búnað- inn til starfsmanna í fjarvinnu. Í skilaboðum sem fylgja tilboðinu segir AwareGo að öryggismál geti verið áskorun í fjarvinnu, þar sem netþrjótar séu líklegir til að líta á þá sem eru heimavinnandi sem skot- mörk. „Nú eru svo margir farnir að vinna heima, þar á meðal við hjá AwareGo, og þá þarf að huga að ákveðnum atriðum,“ segir Ragnar í samtali við Morgunblaðið. „Þetta opnar á öðruvísi öryggisáhættur en þegar fólk vinnur á skrifstofunni.“ Aðspurður segir Ragnar að á með- al þess sem hafa þurfi í huga þegar unnið er í fjarvinnu heima við sé að börn séu ekki að ná sér í tölvuleiki eða annan hugbúnað í vinnutölvuna hjá starfsfólki. „Svo er mikilvægt að vera með öruggar tengingar og net heima við. Einnig að vera með örugg- ar tengingar á milli starfsmanna á mismunandi stöðum, varðandi deil- ingar á gögnum og þvíumlíkt.“ Þá nefnir Ragnar að góð regla sé að læsa tölvunni þegar staðið er upp frá vinnunni, og að uppfæra tölvuna reglulega. Ragnar nefnir einnig mikilvægi þess að vera með svokall- aða VPN-tengingu inn í fyrirtækin, til að komast á öruggan hátt í hug- búnað sem er á miðlurum innanhúss. Þá segir hann mikilvægt ef unnið er í hugbúnaði í skýinu að vera með tveggja þátta öryggi, þ.e. ekki ein- göngu aðgangsorð og lykilorð, held- ur til dæmis rafræn skilríki í síma. „Það er erfiðara fyrir þrjóta að kom- ast í símann.“ Öðruvísi hætta Spurður að því hvort það bjóði hættunni meira heim að vinna í fjar- vinnu en innan veggja fyrirtækisins, segir Ragnar að það sé öðruvísi. „Til dæmis ertu ekki með eldveggi heima eins og vinnunni. Það getur líka orðið seinlegra að sækja hjálp til sérfræðinga í tæknideildinni ef maður lendir í vanda. Það þarf þó ekki að vera veikleiki, ef þú ferð var- lega og hugsar áður en þú fram- kvæmir.“ Er líklegt að netþrjótar sjái tæki- færi í ástandi sem þessu? „Já, það er pottþétt. Þeir nota sér svona bylgjur í samfélaginu. Þeir reyna að blekkja fólk og segjast til dæmis vera til með upplýsingar um kórónuveiruna og bjóða fólki að smella til að sjá það allra nýjasta. Maður sér svona lagað komið á stjá.“ Fólk í fjarvinnu skotmörk netþrjóta  Gefa aðgang að fræðslu um öryggi í fjarvinnu  Heimavinna opnar á öðruvísi öryggisáhættu  AwareGo stefnir á að bjóða upp á tölvuöryggismyndbönd á tuttugu tungumálum fyrir árslok Ljósmynd/AwareGo Hætta Almenn skynsemi getur gagnast vel þegar hugað er að tölvuöryggi. Alþingi samþykkti í gær lög sem gera kleift að greiða hlutabætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði sam- hliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitanda. Ásmundur Einar Daðason félags- málaráðherra lagði frumvarpið fyrir þingið. Lög- in eiga m.a. að tryggja að ein- staklingar með 400.000 kr. eða minna í laun á mánuði geta fengið greidd 100% af meðaltali launa þó starfs- hlutfall þeirra minnki. Gilda úrræðin til 31. maí. Miklar breytingar voru gerðar á frumvarpinu í umfjöllun velferðar- nefndar þingsins. Breytingarnar sem nú hafa verið lögfestar fela m.a. í sér að atvinnuleysisbætur greiddar samhliða minnkuðu starfshlutfalli koma ekki til skerðingar á fjárhæð atvinnuleysisbóta enda hafi starfs- hlutfallið lækkað um 20% hið minnsta en þó ekki neðar en í 25%. Atvinnurekanda er óheimilt að krefjast vinnuframlags umfram nýja starfshlutfallið að því er fram kemur í kynningu félagsmálaráðuneytisins. Laun frá vinnuveitanda fyrir minnkað starfshlutfall og atvinnu- leysisbætur geta samanlagt aldrei numið hærri fjárhæð en 700.000 kr. á mánuði. Námsmenn geta átt rétt á bótum samkvæmt frumvarpinu enda uppfylli þeir að öðru leyti skilyrði ákvæðisins og kveðið er á um að sjálfstætt starfandi einstaklingar geti nýtt sér úrræðið ef þeir hafa til- kynnt skattayfirvöldum um veru- legan samdrátt vegna tímabundinn- ar stöðvunar á rekstri. Talið kosta um 13 milljarða Einstaklingar sem taka á sig skert starfshlutfall og hafa verið með yfir 400 þús. kr. í full mánaðar- laun halda mismunandi stórum hluta af fyrri tekjum sínum. Þannig fengi t.d. sá sem er með 600 þúsund kr. full laun og fer í 25% starfshlutfall 150 þúsund frá vinnuveitanda sínum og 342 þús. kr. í hlutabætur, samtals rúmar 492 þús. kr. eða 82% af fyrri tekjum. Sá sem er með 800 þús. kr. full laun og fer í 50% starfshlutfall fengi 400 þús. kr frá vinnuveitanda og 228 þús. í hlutabætur eða 79% af fyrri tekjum. Áætlað er að þessi úr- ræði muni kosta Atvinnuleysis- tryggingasjóð um 13 milljarða kr. omfr@mbl.is Laun allt að 400 þús. að fullu tryggð  Lög um greiðslu hlutabóta samþykkt Ásmundur Einar Daðason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.