Morgunblaðið - 21.03.2020, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020
ÚR BÆJARLÍFINU
Birna Guðrún Konráðsdóttir
Borgarfirði
Á Vatnshamravatni í Borgar-
firði hefur um áratugaskeið verið
keppt í ístölti. Að þessu sinni var
mótið haldið að frumkvæði Svein-
björns Eyjólfssonar í Hvannatúni.
Vatnið var vel frosið, líklega um 30
sentimetra ís. Veðrið lék við þá
fjölmörgu þátttakendur sem
mættu til að taka fáka sína til
kostanna, en keppt var í þremur
flokkum; í flokki 17 ára og yngri,
skvísuflokki og peyjaflokki.
Karlakórinn Söngbræður hef-
ur í nokkur ár haldið svokallaða
Sviða- og hrossakjötsveislu sem er
fjáröflun fyrir kórinn. Alla jafna
hefur þessi veisla verið haldin í
janúar, en vegna veðurs var hún
færð aftur og að þessu sinni haldin
á hlaupársdaginn sjálfan. Svo mik-
il þátttaka hefur verið í þessum
veisluhöldum að þeir bræður hafa
sprengt utan af sér hvert félags-
heimilið á fætur öðru og var veisl-
an haldin í stærsta félagsheimili
héraðsins, Þinghamri við Varma-
land. Sem fyrr var troðfullt hús og
gerðu gestir góðan róm að mat og
söng þeirra bræðra.
Grunnskólum í Borgarfirði
hefur óvenjulega oft verið frestað
það sem af er vetri. Tíðin hefur
verið mjög rysjótt, eins og víða,
þótt snjór sé langt frá því að vera
eins mikill í Borgarfirði og t.d. á
Norðurlandi, þá hefur verið vinda-
samt. Það sem einnig hefur ein-
kennt þessa vetrarmánuði, eftir
áramótin, er að inn á milli hafa
komið afar mildir dagar með logni
og heiðríkju, þannig að öfgarnar í
veðurfarinu hafa verið allveru-
legar.
Fyrr á tíð þegar kaupfélögin
voru meira áberandi í samfélögum
var það skylda sem tekin var al-
varlega að mæta á deildarfund í
hverri sveit. Félagsmenn, sem þá
voru einkum karlar, klæddu sig
upp á til að mæta. Að ekki sé talað
um ef viðkomandi var deildar-
formaður eða fulltrúi á aðalfundi
félagsins. En nú er öldin önnur og
umhverfi kaupfélaganna mikið
breytt. Um þessar mundir
streyma þó inn um póstlúgur
Borgfirðinga hvatningarpésar frá
Kaupfélagi Borgfirðinga sem bera
yfirskriftina „Við viljum hitta þig!“
Þar er fólk hvatt til að mæta á
deildarfund og ganga í kaupfélagið
til að hafa áhrif á stefnu og
áherslur félagsins. Gulrótin er
einnig að með því að gerast félagi
bjóðist afslættir í ýmsum versl-
unum og freistandi félagsmanna-
tilboð.
Á Hvanneyri hefur í sex sum-
ur verið starfrækt kaffihúsið
Skemman. Kaffihúsið tekur nafn
af húsinu sem það var rekið í,
Skemmunni, sem er eitt elsta hús-
ið á Hvanneyrarstað og í eigu
sóknarinnar. Vegna breyttra að-
stæðna í lífi rekstraraðila hafa
þeir ákveðið að leggja starfsemina
niður. Eigendur kaffihússins sér-
hæfðu sig í heimabökuðu meðlæti
við allra hæfi og þar á meðal
glútenlausum og belgískum vöffl-
um sem þóttu hið mesta lostæti,
og var aðsókn yfirleitt með ágæt-
um. Það er sjónarsviptir að þess-
um rekstri en hafi einhver áhuga á
að taka upp hanskann að nýju
væri að líkindum hægt að hafa
samband við sóknarnefnd.
Í uppsveitum Borgarfjarðar
gæti orðið breyting á prestakalla-
skipan um eða fyrir næstu áramót.
Eins og staðan er í dag eru fjórir
sóknarprestar starfandi á svæðinu
og er einn þeirra jafnframt pró-
fastur, sr. Þorbjörn Hlynur Árna-
son á Borg. Tveir sóknarprestar í
héraðinu, þeir sr. Flóki Kristins-
son á Hvanneyri og sr. Geir
Waage í Reykholti, munu láta af
störfum á árinu vegna aldurs. Þá
þarf að manna þeirra stöður eða
gera breytingar á prestakalla-
skipaninni. Sóknarnefndir munu
fljótlega hitta biskup Íslands til
skrafs og ráðagerða.
Aðalfundastormur sá sem
herjar alla jafna á Borgfirðinga
frá og með mars hófst á venju-
bundnum tíma. Ekki er nóg með
að félagsdeildir Kaupfélags Borg-
firðinga haldi sína fundi, heldur
eru flestöll félög einnig í aðal-
fundarherferð eins og veiðifélög,
búnaðarfélög og sóknarnefndir.
Allir vilja vera búnir með sín aðal-
fundarstörf áður en vorverk taka
við á bæjunum því þá eru bændur
síður tilkippilegir til fundarhalda.
Barist er alla jafna um hvern dag-
inn frá miðjum mars fram til loka
apríl. Nú gæti hins vegar farið svo
að breyting yrði á fundarhöld-
unum. Vírus sá sem geisar um
heimsbyggðina gæti sett þar strik
í reikninginn. Bæði vegna sam-
komubanns, þótt það eigi varla við
aðalfundi til sveita, og ekki síður
vegna þess að fá fundarrými eru
nógu stór til þess að hægt sé að
hafa tvo metra á milli fundargesta.
Verið gæti því að árleg aðalfund-
arhrina yrði færð aftur í almanak-
inu.
Hér í eina tíð þótti ýmsum
gott ef hrafn settist að á bænum.
Hrafninn þótti spáfugl og sagt var
að Guð launaði fyrir hrafninn.
Hann var einnig sagður vitur og
gæti varað búendur við aðsteðj-
andi hættum. Á Hvanneyrarstað
er auðvitað hrafn. Hann hefur
skipað sér ofar öðrum með því að
hafa tíð aðsetur á turnspíru kirkj-
unnar. Þar hefur hann upp „söng“
sinn dag hvern ef viðrar. Hvort
hann er að spá um komandi tíð,
veit sá sem þetta ritar lítið um, en
óháð því þá spókar hann sig á
turnspírunni og lætur það óðal sitt
ekki af hendi fyrir aðkomu hrafna.
Stóra upplestrarkeppnin hefur
verið haldin um langa hríð. Í henni
keppa nemendur í 7. bekk grunn-
skóla um færni til að lesa texta
upphátt sem og ljóð. Fyrir
skömmu var útsláttarkeppni hald-
inn meðal nemenda í Grunnskóla
Borgarfjarðar fyrir stóru upp-
lestrarkeppnina en nokkrir skólar
á Vesturlandi hafa með sér sam-
starf um þessa keppni og skiptast
á að halda hana. Þessir skólar eru
Grunnskóli Borgarfjarðar, Heiðar-
skóli, Laugargerðisskóli, Grunn-
skólinn í Borgarnesi og Auðar-
skóli. Áætlað var að halda
keppnina 26. mars en hefur verið
frestað til vors vegna samkomu-
bannsins. Það hefur oft verið til-
hlökkun og töluverð spenna að vita
hverjir komast í hina stóru keppni
á hverjum stað fyrir sinn skóla.
Skólastarf raskast af veðri og banni
Morgunblaðið/Sólrún Halla Bjarnadóttir
Upplestur Nemendur í 7. bekk í Grunnskóla Borgarfjarðar sem tóku þátt í
útsláttarkeppni í Snorrastofu: Guðmar Sigvaldason, Hugo Cubas Hidalgo,
Sigurður Örn Davíðsson, Ástrún Björnsdóttir og Guðrún Sjöfn Kuhlseng.
TILBOÐ
1.090 þús.
staðgreitt
FORD Galaxy
Sjálfskiptur
Ekinn 172 þús.
Skoðaður 2021
Nýsmurður
t um olíu á skiptingu
redestein nagladekk
Verð 1.790 þús.
íma 615 8080
7 manna
Diesel
árg. 2011
Nýlega skip
Glæný V
Uppl. í s
„Verði Ísafjarðardjúp opnað fyrir eldi
frjórra laxa verður það svartur dagur
í náttúruvernd á Íslandi. Lands-
samband veiðifélaga mun leita allra
leiða til að koma í veg fyrir að það nái
fram að ganga,“ segir meðal annars í
tilkynningu frá Landssambandi veiði-
félaga. Þar er tillaga Hafrannsókna-
stofnunar um breytt áhættumat
vegna erfðablöndunar við laxeldi í
sjókvíum harðlega gagnrýnd.
Í tilkynningunni segir að tillagan
sé mikil vonbrigði og sambandið muni
leggjast harðlega gegn því að leyft
verði eldi frjórra norskra laxa í opn-
um sjókvíum í Ísafjarðardjúpi. Jafn-
framt er gerð alvarleg athugasemd
við að í Ísafjarðardjúpi sé nú skylt
samkvæmt lögum að taka tillit til svo-
kallaðra mótvægisaðgerða sjókvía-
eldisfyrirtækjanna sem ættu í raun
að vera almennt skilyrði fyrir eldis-
leyfi frekar en tól til að auka magn
frjórra laxa. Hins vegar sé ekki skylt
að taka tillit til áhrifa laxalúsar eða
sjúkdóma á nálæga stofna, segir í til-
kynningunni.
Enn hægt að hætta við
Staðan sé þannig að til dæmis
tækniframfarir og þróun í eldi geti
orðið til þess að auka eldismagnið og
þar með áhættuna fyrir villta stofna.
Bent er á að áhættumatið sem var
birt í gær sé ráðgjöf Hafrannsókna-
stofnunar og eftir sé að fjalla um það í
samráðsnefnd um fiskeldi þar sem
fulltrúi Landssambandsins eigi sæti.
Enn sé því tækifæri til þess að hverfa
frá þessum „fráleitu hugmyndum“.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Lax Við veiðar í Laugardalsá.
Berjast
gegn eldi
í Djúpinu
Gagnrýna breytt
áhættumat Hafró
„Þrátt fyrir fordæmalausar að-
stæður undanfarið hefur DHL hald-
ið uppi hnökralausri flugáætlun dag-
lega, alla virka daga, með fraktvél
frá Keflavík til East Midlands í
Bretlandi,“ segir Róbert Tómasson,
framkvæmdastjóri Cargo Express, í
tölvupósti.
Útflytjendur á ferskum fiski hafa
haft verulegar áhyggjur af þeim af-
leiðingum sem ferðabann hefur á
rekstur þeirra, en talsvert af þeim
flutningi hefur farið fram með far-
þegaþotum. Þá hefur Icelandair
Cargo sagst ætla að gera hvað sem
er til þess að tryggja áfram útflutn-
ing og jafnvel grípa til notkunar
fraktvéla ef svo ber undir. Jafnframt
hefur ástandið orðið til þess að Blue-
bird Nordic hefur tekið til skoðunar
flutning beint til Bandaríkjanna með
fraktvélum frá Íslandi eftir að ferða-
bann Bandaríkjanna var útvíkkað til
Írlands og Bretlands.
„Cargo Express hefur í samstarfi
við DHL séð um allar bókanir á
ferskum fiski til Bretlands. Þaðan
hefur svo Cargo Express sett upp
leiðakerfi inn á helstu fiskmarkaði í
Bretlandi, Frakklandi og víðar,“
segir Róbert. Spurður hvort eftir-
spurn eftir flutningi hafi dregist
saman undanfarna daga svarar
hann: „Dagvörumarkaðurinn í Bret-
landi er ennþá nokkuð sterkur og þá
eru ennþá leiðir inn á bæði Banda-
ríkin og Kanada í gegnum London
sem við höfum verið að nota. Við er-
um t.d. með ágætar bókanir alla
næstu viku inn á þessa markaði. Aft-
ur á móti hafa markaðir í Frakklandi
og á Spáni alveg hrunið af skiljan-
legum ástæðum.“
Hann segir félagið einnig hafa
áframsent fisk til Asíu, Bandaríkj-
anna og Kanada þrátt fyrir að það
feli í sér talsverða áskorun um þess-
ar mundir. gso@mbl.is
Ljósmynd/DHL
Flug Fraktvélar DHL halda áfram
að fljúga með fisk til Bretlands.
Fljúga áfram með
fisk til Bretlands
Samstarf við DHL án áhrifa banns