Morgunblaðið - 21.03.2020, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 21.03.2020, Qupperneq 21
21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020 Margir eru kvíðnir og skilja illa hvað er að gerast í veröld lækna- vísindanna þegar heimsfaraldur fer um eins og eldur í sinu. Gripið er til neyðaraðgerða sem eiga sér ekki fordæmi í veröldinni. En þá þökkum við fyrir hversu gott land við eigum og magnaða lækna og vísindamenn, bæði hér og á ver- aldarvísu. Gamla fólkið sagði manni frá spænsku veikinni sem kom með Botníu frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur og öðru skipi frá Bandaríkjunum fyrir sléttum eitt hundrað árum. Pestin felldi þá 50 milljónir manna víða um heim og um 500 manns hér. Mín kynslóð hefur lifað með fólki, sem sagði manni frá hvernig menn stóðu þá og horfðu ráðalausir á mestu hörmungar Íslands- sögunnar, ef frá eru dregnar Stórabóla og Svartidauði. Nú vaknar hin „nöldursama“ ís- lenska þjóð upp við vondan draum en þá gerist kraftaverkið: „Við eignumst eina þjóðarsál.“ Við skynjum hversu fá við erum og tökum saman höndum. Við erum betur sett en nokkur herþjóð, því fólk fer að tilmælum og ætlar að verja sig og sína. Fyrir eitt hundrað árum vorum við fátæk- asta þjóð Evrópu, nú ein ríkasta þjóð veraldar. Nú fagna allir þeim auði, sem auðlindirnar hafa gefið okkur með afli þekk- ingarinnar. Rafmagnið, heita og kalda vatnið. Íbúðarhúsin hlý og björt. Allur maturinn frá bænd- um og sjómönnum. Við sjáum menn ganga fram til baráttu sem héldu fyrir einu misseri að allt skyldi opið og frjálst og mat- urinn ætti að koma frá útlöndum. Að Evrópu- sambandið ætti að drottna yfir landi og þjóð með græðgi sinni og ásókn í yfirráð á auðlind- um. En auðvitað líka með samhjálp og skiln- ingi milli þjóðanna. Gamla fólkið vill komast heim, burt úr sólinni í kuldann, sem er auðvitað ein af auðlindum landsins, rétt eins og rign- ingin. Hver vill ekki vera nærri sínu fólki þeg- ar neyðin helgrípur meðbræður okkar og -systur um allan heim. Svo verða menn nú að virða stjórnmálamennina fyrir afrek þeirra á síðustu tólf árum eftir hrunið, sem var efna- hagslegur faraldur af mannavöldum. Bandaríkjunum lokað, Evrópu lokað Nú er þjóðarbúið þannig statt, hvað skuldir varðar, að einstakt er. Nánast skuldlaus ríkis- sjóður. Seðlabankastjóri hefur lækkað vexti aftur og aftur og verðbólga er í lágmarki. Fjár- málaráðherra, Bjarni Benediktsson, hefur stritað við að greiða skuldir niður, guði sé lof, og svo mikill búri er hann, að hann liggur eins og ormur á gulli. Og í Seðlabankanum eru 800 milljarðar í gjaldeyrisvaraforða. Ríkisstjórnin getur í lok plágunnar sett hendur og fætur á svona 30% þessa fjármagns og spýtt rækilega í innviði, sem svo oft eru nefndir, auk annarra aðgerða. Efnin eru góð til að takast á við far- aldurinn, þótt margir muni eiga um sárt að binda þegar gjörningaveðrinu slotar. En hvað eru peningar hjá mannslífum? Þegar Trump forseti lokaði landamærum Bandaríkjanna varð allt vitlaust. Og meira að segja okkar menn ætluðu að taka hann á beinið eins og skólastrák. Og ESB hafði uppi stór orð. Nokkrum dögum síðar var Evrópu lokað og hinu heilaga frelsi Schengensvæðisins skellt í lás. Ursula von der Leyon, þeirra kona í ESB með langa nafnið, sem hafði skammað vesa- lings Trump, gekk í fótspor hans! Ástandið er orðið svo alvarlegt, að heim- urinn allur þarf á einni heimssál að halda, sem gengur í takt. Mér sýnist að veiran, pestin, sé alvöruheimsstyrjöld; öll lönd og allt fólk liggur undir. Þessi veira er dauðans alvara og hvort við séum að ganga nógu langt í vörninni verður að endurmeta hvern einasta dag. Ég vil trúa að við sigrum þennan faraldur, eins og svo marga aðra erfiðleika. En veröldin verður önnur á eft- ir og margt ber okkur sem þjóð að hugsa upp á nýtt, ekkert síður en í loftlagsvánni. Það verða líka Evrópuþjóðirnar og öll ríki jarðar að gera. Bræðralag er boðorð dagsins. Bræðralag er boðorð dagsins Eftir Guðna Ágústsson » Ástandið er orðið svo alvar- legt, að heimurinn allur þarf á einni heimssál að halda, sem gengur í takt. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Okkar helstu sér- fræðingar í faralds- fræðum segja okkur að við séum komin upp brekkuna en enn séu nokkrar vikur í að toppnum sé náð og smituðum fækki. Þetta er langhlaup þar sem þarf að standa með fólki og fyrirtækjum, til að við sem samfélag stöndum sterk að far- aldrinum loknum. Þá munu dag- arnir einkennast aftur af rútínunni sem við þekkjum, sólin verður hærra á lofti og dagarnir lengri. En við þurfum líka að vera undirbúin undir að þá muni taka einhvern tíma fyrir samfélagið að jafna sig, bæði samfélagslega og efnahags- lega. Forgangsatriði að tryggja þjónustu Í þessu langhlaupi sjá sveitar- félögin í landinu að reglulega þarf að bregðast við nýju ástandi. Það er ekki búið að leggja brautina, líkt og í maraþonhlaupi. Sumt er erfiðara að sjá fyrir og þá þarf oft að styðj- ast við útsjónarsemi starfsmanna sem sýnt hafa á undanförnum vikum, á undraverðan hátt, hvernig hægt er að bregðast hratt og örugglega við áður óþekktum vanda. Í þessu ástandi er það fyrsta forgangs- atriði Reykjavíkur- borgar að tryggja eins og hægt er órofna þjónustu fyrir borg- arbúa, eins og leið- beiningar sóttvarna- læknis og almannavarna leyfa. Til að tryggja þjónustuna, hvort sem það er mikilvæg velferðarþjónusta fyrir sjúka, fatlaða eða aldraða eða skólar og tómstundir fyrir börn, hafa starfsmenn borgarinnar brugð- ist fumlaust við. Jafnvel þó einungis sé hægt að skipuleggja starfið til skamms tíma í senn og að á hverj- um degi þurfi að bregðast við fleiri áskorunum, veikindum og lokunum. Verjum störfin Þegar kemur að efnahagslegum áhrifum er vitað að þau hafa nú þegar skollið á fyrirtækjum í ferða- þjónustu og tengdum greinum. Fljótlega munum við einnig horfa upp á neikvæðar efnahagslegar af- leiðingar vegna nauðsynlegra tíma- bundinna sóttvarnaaðgerða, svo sem víðtækra sóttkvía. Þetta er áfall fyrir hagkerfið sem bætist við kólnun síðustu mánaða. Sveitarfélögin munu þurfa að bregðast við skammtímavanda fyrirtækjanna, til að verja störfin og starfsfólkið. Hrósa má ríkisstjórn- inni fyrir hversu langt á að ganga til þess að aðstoða fyrirtæki, til skamms tíma, við að halda fólki á launaskrá. Það er mikilvægt til að verja heimilin og draga úr óvissu. Ólíkar sviðsmyndir Neyðarstjórn Reykjavíkur setti strax af stað teymi til að greina mögulega þróun, sem hægt væri að byggja ákvarðanir og áætlanir á. Ákveða þarf hvað skuli gera nú, hvað skuli gera þegar faraldurinn er í rénun og samfélagið tekur við sér aftur og að lokum þarf að endurskoða allar fjárhagsáætlanir Reykjavíkurborgar. Það þarf að meta efnahagsleg áhrif faraldursins á rekstur og fjárhag borgarinnar, bæði til skamms og langs tíma. Búið er að greina þrenns konar sviðsmyndir um þróun efnahagslífs- ins eftir því hvernig faraldurinn gæti þróast. Mikilvægt er að hafa í huga að í sviðsmyndunum felst ekki spá um komandi tíð. Þær eru ein- ungis teiknaðar upp til að hægt sé að meta nauðsyn aðgerða við mis- munandi aðstæður. Fyrsta sviðs- myndin er V-laga kúrfa, ef tekst að ráða niðurlögum veirunnar með markvissum aðgerðum, en niður- sveiflan í efnahagslífinu varir í allt að sex mánuði. Önnur sviðsmynd er U-laga kúrfa, þar sem niðursveiflan í efnahagslífinu er til níu til tólf mánaða. Versta sviðsmyndin og jafnframt sú ólíklegasta gerir ráð fyrir L-laga kúrfu, með niðursveiflu til ársins 2023, kreppu í helstu við- skiptalöndum okkar og verulegum samdrætti í einkaneyslu og ferða- þjónustu. Vinnum saman að lausnum Aðgerðir og áætlanir Reykjavík- ur þurfa að vera vel undirbúnar, því á óvissutímum er hætta á að stokk- ið sé á töfralausnir, fremur en að finna vel ígrundaðar lausnir. Við- brögð til að mæta fólki og fyr- irtækjum munu birtast í skrefum eftir því hvernig ástandið þróast. Við þurfum að vinna saman að lausnum. Því tók meirihlutinn vel í hugmyndir Sjálfstæðisflokksins um aðgerðir sem fram komu á borgar- ráðsfundi á fimmtudag. Þeim hug- myndum var vísað til starfshóps um aðgerðir í efnahags- og fjár- málum vegna áhrifa af COVID-19. Samband sveitarfélaga hefur nú sent frá sér hugmyndir og ábend- ingar um aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf, sem Reykjavíkurborg mun taka tillit til í vinnunni fram undan en ríkið þarf einnig að koma að. Á næstu dögum munu fyrstu viðbrögð Reykjavíkurborgar birtast. Þar er til skoðunar hvernig hægt sé að létta undir með fyrirtækjum, með það að markmiði að þau þurfi síður að segja upp starfsfólki. Eftir því sem ástandið þróast verður svo brugðist frekar við. Við þurfum öll að standa saman í að verja fólk og fyrirtæki. Stöndum saman fyrir borgarbúa Eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur »Neyðarstjórn Reykjavíkur setti strax af stað teymi til að greina mögulega þróun, sem hægt væri að byggja ákvarðanir og áætlanir á. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Höfundur er formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar. Kennarar, starfsfólk skólanna og skóla- stjórnendur hafa unnið afrek í vikunni, í sam- starfi við nemendur og stjórnvöld. Lagað sig að dæmalausum að- stæðum og lagst saman á árarnar svo að menntakerfið okkar og samfélagið haldi áfram. Hafi þeir bestu þakkir fyrir. Samfélagið er að hluta lagst í dvala og einkennileg kyrrð hefur færst yfir marga kima samfélagsins, sem venju- lega iða af lífi. Sú ákvörðun stjórnvalda að banna samkomur af ákveðinni stærð og setja strangar reglur um samskipti fólks er gríðarlega stór. Hún var tekin með heilsu og heilbrigði þjóðar í huga, að tillögu þeirra sem við treystum fyrir almanna- og sótt- vörnum í landinu. Mat þeirra var að fordæmalausra aðgerða væri þörf til að lágmarka útbreiðslu veirunnar sem nú herjar á alla heimsbyggðina. Þess vegna var ákveðið að loka háskóla- og framhaldsskólabyggingum og fela skólunum að skipuleggja fjarnám. Af sömu ástæðu var ákveð- ið að halda leik- og grunnskólum opnum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum þar til annað væri ákveðið. Breytt skólastarf í leik- og grunn- skólum Breytingar á kennslu og skólahaldi eru ekki hristar fram úr erminni. Aðstæður skólanna til að bregðast við eru afar ólíkar, ýmist eftir skólastigum, húsa- og tækjakosti, nemenda- og starfs- mannafjölda, námsgreinum o.s.frv. Þrátt fyrir það hefur skólasamfélagið staðist prófið með glæsibrag. Virkni og regla er ekki síst mikilvæg fyrir yngstu nemendurna. Takmarkanir á leik- og grunnskólastarfi hafa krafist mikils af kennurum og skólastjórn- endum, sem þurfa ekki aðeins að tryggja takmarkaðan samgang milli nemenda heldur einnig nám og kennslu. Allir skólar hafa haldið uppi skólastarfi í vikunni, að frátöldum þeim sem hafa lokað dyrunum af sóttvarnarástæðum, og hafa með því unnið mikinn sigur. Umfang kennslu og fjöldi kennslustunda á hverjum stað hefur tekið mið af aðstæðum, en viljinn til að halda börnunum í námi verið ótvíræður. Framhalds- og háskólar í fullri virkni Í framhalds- og háskólum hafa kennarar brugðist hratt við, snarað hefðbundnu námsefni yfir á rafrænt form, hugsað í lausnum og haldið nem- endum sínum við efnið. Fjarkennsla hefur tekið á sig fjölmargar skemmti- legar myndir og virkni nemenda síst verið minni en í hefðbundinni kennslu. Þátttaka í kennslustundum og verk- efnaskil hafa jafnvel verið meiri en alla jafna. Það er vel, enda nauðsynlegt að virkni í samfélaginu sé eins mikil og frekast er unnt. Hins vegar ber að hafa í huga að brotthvarf úr námi get- ur aukist verulega í ástandi eins og nú ríkir. Þess vegna hafa skólameistarar og rektorar landsins lagt okkur lið við að sporna strax við slíku. Framlag allra sem komið hafa að málinu er lofs- vert. Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur heldur ekki látið sitt eftir liggja. Stjórn sjóðsins hefur í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneyti létt á áhyggjum námsmanna og greið- enda af námslánum. Tekjuviðmið hafa verið hækkuð, innheimtuaðgerðum seinkað og reglur við mat á umsóknum um undanþágu á afborgunum rýmk- aðar tímabundið. Þá hefur stjórn LÍN samþykkt að taka til greina annars konar staðfestingu skóla á ástundun nemenda en vottorð fyrir einingar sem lokið hefur verið. Þannig er komið til móts við nemendur sem ekki geta sinnt námi vegna röskunar á skóla- starfi. Samvinna og samstarf er lykillinn Verulega hefur reynt á samfélagið allt undanfarna daga. Mál hafa þróast með ótrúlegum hraða og sumt í veru- leikanum minnir á skáldskap. Það á ekki bara við um áskoranir sem stækka með hverjum degi, heldur líka sigra og ofurhetjur sem láta ekkert stöðva sig. Við aðstæður eins og þess- ar er ómetanlegt að samskipti milli lykilaðila í skólakerfinu séu góð. Sú hefur enda verið raunin undanfarnar vikur og fyrir það ber að þakka. Endurtekin og regluleg samskipti hafa fært fólk nær hvert öðru, aukið skilning á aðstæðum og þétt raðirnar. Það birtist til dæmis í sameiginlegri yfirlýsingu sem fulltrúar kennara, sveitarfélaga og ráðuneytis undirrit- uðu fyrir tæpri viku, og sneri að skóla- starfi við þær undarlegu aðstæður sem nú eru uppi. Þar er jafnframt áréttað að aðkoma miklu fleiri aðila er forsenda þess að hlutirnir gangi upp. Almenningur allur, foreldrar, fyrir- tæki og stofnanir þurfa að sýna ábyrgð og sveigjanleika, og fylgja til- mælum sem koma frá yfirvöldum og skólastjórnendum um skólahald. Ég tek heils hugar undir hvert orð í yfirlýsingunni, þar sem segir meðal annars að skólastarf sé ein af grunn- stoðum samfélagsins. Skólar hafi með- al annars það hlutverk að auka jöfnuð og vernda börn. Starfsfólk skólanna hafi unnið þrekvirki við að styðja við nemendur á þessum óvissutímum. Sómi Íslands Eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur Lilja Alfreðsdóttir » Breytingar á skóla- haldi eru ekki hrist- ar fram úr erminni. Að- stæður til að bregðast við eru afar ólíkar en skólasamfélagið hefur staðist prófið. Höfundur er mennta- og menningar- málaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.