Morgunblaðið - 21.03.2020, Síða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020
A
mma, ég vil ekki fá
þessa kórónuveiru,“
sagði barnabarnið
mitt við mig. Ég
reyndi að ræða við
drenginn á fræðandi og traustvekj-
andi hátt til að ótti sæti ekki í huga
hans.
Það eru margir hræddir við að
smitast af þessum ófögnuði sem nú
herjar á heiminn. Fleiri eru þó sem
segjast aðspurð frekar vera hrædd
við að smita aðra en veikjast sjálf.
Yngra fólkið er hrætt um þau sem
eldri eru og verðandi afar og ömm-
ur eru hrædd um ófæddu börnin í
móðurkviði og mæður þeirra.
Ótti hefur fylgt mannkyninu alla
tíð og ekkert óeðlilegt við það að
óttast hluti eða aðstæður sem við
þekkjum ekki eða höfum ekki
reynslu af. Þegar eitthvað reynist
okkur mótdrægt leitum við að
lausnum og förum gjarnan í
reynslubanka kynslóðanna til að
finna leiðirnar. Nú er talað um for-
dæmalausar aðstæður sem þýðir
að við höfum engin dæmi í sögu
mannkyns til að takast á við ná-
kvæmlega þessa plágu. Við búum
samt svo vel að hafa gert við-
bragðsáætlun vegna margs sem
upp getur komið í mannlegu félagi
og höfum æft viðbrögð við ýmiss
konar vá. Ein þessara áætlana er
landsáætlun um heimsfaraldur
inflúensu sem nú er virkjuð og
stýrt af fagfólki með mikla þekk-
ingu á málaflokknum. Kærar
þakkir, þið sem standið í stafni og
stýrið aðgerðum af yfirvegun og
þekkingu.
„Ég er verri í dag en í gær,“
sagði vinkona mín við mig þegar ég
hringdi í hana og spurði um líðan
hennar þessa daga sem hún hefur
verið frá vinnu vegna veikinda.
„Ertu ekki búin að hringja á
heilsugæsluna?“ spurði ég og
reyndi að hughreysta hana. „Jú, en
hjúkrunarfræðingurinn sem fyrir
svörum varð gat ekki svarað því
hvort þetta væri venjuleg flensa
eða COVID-19,“ sagði vinkona
mín, „og ég verð bara að treysta
því að ef mér versnar fái ég þá
hjálp sem ég þarf,“ bætti hún við
og ég samsinnti því.
Þegar móðir mín, nú 93 ára á
hjúkrunarheimili og í nokkurs kon-
ar sóttkví án heimsókna sinna nán-
ustu, fór að heiman 14 ára gömul
var heimanmundur hennar ekki
metinn til fjár á veraldarinnar vísu.
Heimanmundurinn var bænir for-
eldra hennar um farsæld á lífsins
vegi. Þær bænir hafa dugað vel og
reynst henni sá fjársjóður sem til
var ætlast. Aðgerðaáætlun fólks á
þeirri tíð til að takast á við mótlæti
í lífinu fólst í trausti til höfundar
lífsins.
Á armbandi sem ég eignaðist
stendur: „Hvað hefði Jesús gert?“
Hann sem gekk um á meðal
manna, læknaði sjúka, rökræddi
við lögspekinga, sagði sögur til að
koma boðskap sínum til skila með
því að taka dæmi úr daglegu lífi
fólks.
Hver einstaklingur heyr sína
baráttu við áskoranir lífsins, hver
kynslóð hefur sameiginlega reynslu
sem mótar og
hefur áhrif á þau
sem eftir koma.
Nú er lag að
leita til þeirra
sem hafa gengið
í gegnum súrt
og sætt og at-
huga hvað þau
hafa að segja inn
í þær aðstæður
sem heimurinn glímir við í dag.
„Óttist ekki,“ sagði engillinn við
hirðana á Betlehemsvöllum þegar
þeir fyrstir manna heyrðu tíðindin
um fæðingu Jesúbarnsins. „Þótt ég
fari um dimman dal óttast ég ekk-
ert illt því að þú ert hjá mér,“ tjáir
skáldið í fullu trúartrausti í einum
þekktasta Davíðssálmi okkar tíma.
Og ekki má gleyma hughreystandi
orðum Páls postula til safnaðarins í
Filippí: „Verið ekki hugsjúk um
neitt heldur gerið í öllum hlutum
óskir ykkar kunnar Guði með bæn
og beiðni og þakkargjörð.“
Þessa dagana er hugur minn hjá
þeim sem veikst hafa. Þeim sem
óttast. Þeim sem stýra aðgerðum.
Þeim sem leiða starf og taka
ákvarðanir. Þeim sem hafa áhyggj-
ur af afkomu sinni og eru hrædd
um að missa vinnuna. En einnig
hjá þeim sem eru þreytt. Þreytt á
mótlæti, þreytt á vonleysi, þreytt á
snjómokstri, þreytt á sinnuleysi
annarra. Við þreytta, óörugga,
veika, vondaufa fólkið sagði Jesús:
„Komið til mín, öll þér sem erfiðið
og þunga eruð hlaðin, og ég mun
veita yður hvíld. Takið á yður mitt
ok og lærið af mér því að ég er
hógvær og af hjarta lítillátur og þá
munuð þér finna sálum yðar hvíld.
Því að mitt ok er ljúft og byrði mín
létt.“
Til að miðla
þessum kær-
leiksríka og
hughreystandi
boðskap nú í
samkomubanni
viljum við koma
með kirkjuna til
fólksins.
Heimahelgi-
stundir verða
næstu sunnudaga á Vísi.is kl. 17.
Nýir þættir hefja göngu sína á
Hringbraut sem munu fjalla um
trúna, kirkjuna, raunina, uppris-
una og sigurinn sem fæst með
trúnni og andlegri rækt. Net-
kirkja.is veitir faglega sálgæslu all-
an sólarhringinn svo fátt eitt sé
nefnt. Kirkjan kemur til fólksins –
kirkjan í sókn. Útvarpsmessur
verða áfram á sunnudögum sem og
bæn dagsins á Rás 1. Þá verður
páskaútsending frá helgihaldi. Það
er von mín og trú að RÚV muni
sinna þeirri grunnþjónustu í ljósi
aðstæðna.
Kirkjan.is er góður staður til að
byrja á þegar leitað er að vönduðu
efni sem varðar trúna og kirkjuna.
Á heimasíðum sóknanna eru einnig
gagnlegar upplýsingar. Vertu vel-
komin/n þangað.
Fullur sigur mun vinnast með
samtakamætti, samheldni og
ábyrgð – trú, von og kærleika.
Amma
Hugvekja
Eftir Agnesi M.
Sigurðardóttur
biskup Íslands.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Strandakirkja
í sumarroða.
Til að miðla þessum
kærleiksríka og hug-
hreystandi boðskap nú í
samkomubanni viljum
við koma með kirkjuna
til fólksins.
Kirkjan til fólksins
Ljósmynd/Pétur Markan
(Lúk. 11)
ORÐ DAGSINS: Jesús
rak út illa anda.
GRAFARVOGSKIRKJA | Allt helgihald fell-
ur niður vegna samkomubanns.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í Spöng |
Allt helgihald fellur niður vegna samkomu-
banns.
GRENSÁSKIRKJA | Messufall vegna
samkomubanns. Fylgist með útsendingum
frá bæna- og helgistundum á heimasíðu
Grensáskirkju, www.grensaskirkja.is, og á
facebooksíðunni Grensáskirkja. Sími kirkj-
unnar er 528 8510. Megi friður Guðs fylgja
ykkur.
HÁTEIGSKIRKJA | Kirkjan er lokuð vegna
samkomubanns og allt helgihald og safn-
aðarstarf liggur niðri á meðan. Upplýsingar
um prestsþjónustu, s.s sálgæslu og útgáfu
vottorða er að finna á hateigskirkja.is.
KÓPAVOGSKIRKJA | Bænastund kl. 11.
Hefðbundið helgihald og safnaðarstarf fellur
niður meðan samkomubann ríkir. Kirkjan
mun verða opin á guðsþjónustutíma milli kl.
11 og 12 þar sem unnt er að eiga notalega
stund. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir settur sókn-
arprestur mun leiða bænastund, Lenka Má-
téová, kantor kirkjunnar, sér um tónlistar-
flutning. Við biðjum kirkjugesti að virða
tilmæli landlæknis um tveggja metra millibil
milli gesta.
LAUGARNESKIRKJA | Þriðjudagur 24.
mars. Kyrrðarbæn kl. 20. Kirkjan opnuð kl.
19.30. Farið verður í einu og öllu að fyrir-
mælum sóttvarnalæknis um mannfjölda,
hreinlæti og fjarlægð á milli þátttakenda.
Kristin íhugun á óvissutímum.
Vegna samkomubanns fellur önnur starf-
semi kirkjunnar niður.
NESKIRKJA | Kirkjan og safnaðarheimilið
verða opin frá 11-12 fyrir þau sem vilja líta
inn, kveikja á kerti, hlýða á tónlist og eiga
stund í húsi Drottins. Organisti situr við
orgelið og prestur og kirkjuvörður eru á
staðnum. Barnaefni er deilt á heimasíðu
kirkjunnar, neskirkja.is.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn, sunnudagaskóli og messa falla niður
vegna veirunnar. Streymi frá helgistund kl.
14 á facebooksíðu Seltjarnarneskirkju.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hofskirkja í Vopnafirði.
Messur á morgun