Morgunblaðið - 21.03.2020, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 21.03.2020, Qupperneq 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020 ✝ Birgir Bjarna-son fæddist í Bolungavík 13. júlí 1931. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Bergi í Bol- ungavík 12. mars 2020. Foreldrar hans voru Austur- Skaftfellingarnir og kaupmanns- hjónin þau Bjarni Eiríksson, f. 20. mars 1888, d. 2. september 1958, og Halldóra Benedikts- dóttir, f. 6. nóvember 1892, d. 2. september 1966. Birgir var yngstur í fimm bræðra hópi, sem nú eru allir látnir. Bræður hans eru í ald- ursröð: Björn, Halldór, Bene- dikt og Eiríkur. Eiginkona Birgis var Karitas Ingibjörg Jónsdóttir frá Bol- ungavík, f. 12. mars 1939, d. 12. júlí 2016 og lést hann því á af- mælisdegi hennar. Börn þeirra eru: 1) Jónína Birgisdóttir, f. 10. nóvember 1959. 2) Lárus Guð- mundur Birgisson, f. 30. októ- ber 1962, kvæntur Hugrúnu Öldu Kristmundsdóttur, f. 14. maí 1963. Saman eiga þau 3 dætur: a) Kristín Halla Lár- 2019. Birgir ólst upp í Bol- ungavík við leik og störf tengd fjölbreyttum rekstri foreldra sinna við m.a. verslun, útgerð, fiskverkun og landbúnað sem lagði grunn að hans ævistarfi sem bóndi. Nám lá vel fyrir Birgi enda var hann bæði minn- ugur og samviskusamur. Hann var einn vetur við Mennta- skólann á Akureyri en hugurinn hneigðist til búskapar og lauk hann síðar búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri með góðum árangri. Birgir keypti og flutti ásamt sínum lífsförunaut, Karitas I. Jóns- dóttur, að Miðdal í Bolungavík. Jörðin var byggð upp og rækt- uð og stundaður sauðfjárbú- skapur af áhuga og með ágæt- um árangri. Vinna var stunduð eitthvað meðfram búskap eftir því sem aðstæður og heilsa leyfðu. Birgir og Karitas áttu heimili að Miðdal til ársins 2013, alls í 58 ár þegar þau seldu jörðina og fluttu aftur nið- ur í bæ (Bolungavík). Birgir var mikið náttúrubarn og dýravin- ur, hann var víðlesinn og átti stórt bóka- og tímaritasafn þar sem fornsögur, sagnfræði, landafræði, náttúra, dýralíf og landbúnaðarmál skipa stærstan sess. Útför Birgis fer fram frá Hólskirkju í Bolungavík í dag, 21. mars 2020, kl. 14. usdóttir, f. 15. ágúst 1984. b) Katrín Hrönn Lár- usdóttir, f. 23. júní 1986. c) Karitas Heiða Lárusdóttir, f. 23. júní 1986, eig- inmaður hennar er Jeppe Frosch, f. 22. september 1977 og sonur þeirra er Baldvin Nói Jepp- esson Frosch, f. 13. ágúst 2015. 3) Guð- ný Eva Birgisdóttir, f. 28. ágúst 1965, sambýlismaður hennar er Elías Þór Elíasson, f. 8. október 1961. Fyrrverandi eiginmaður Guðnýjar er Jóhann Sveinmar Hákonarson og börn þeirra eru: a) Birgir Már Jóhannsson, f. 17. júní 1987, kvæntur Jónu Dag- björtu Pétursdóttur, f. 2. apríl 1987. Börn þeirra eru Sigurrós Freyja Birgisdóttir, f. 11. maí 2013 og Kormákur Hrafn, f. 10. febrúar 2020. Sonur Jónu og fóstursonur Birgis Más er Matt- hías Breki Gunnarsson, f. 14. ágúst 2007. b) Ingibjörg Snjó- laug Jóhannsdóttir, f. 10. októ- ber 1992, sambýlismaður henn- ar er Jón Björgólfsson, f. 27. maí 1992. Dóttir þeirra er Kar- itas Rós Jónsdóttir, f. 22. janúar Elsku Biggi afi, loksins ertu búin að fá hvíldina þína, sem þú ert búinn að bíða svo lengi eftir, loksins ertu kominn til Kæju ömmu. Ég veit að amma tekur vel á móti þér. Takk fyrir alla góðu tímana og minningarnar, ég geymi minningarnar í hjartanu. Við fjölskyldan eigum eftir að sakna þess að koma vestur á sumrin og þú verður ekki þar, Jón minn og Karitas litla eru svo heppin að hafa fengið að kynnast þér, þótt að þú fengir bara að hitta hana Karitas einu sinni varstu svo yfir þig hrifinn af henni, þér fannst hún svo falleg og yndisleg, þú spurðir alltaf um hana þegar ég hringdi í þig. Ég á eftir að segja henni sögurnar sem þú sagðir mér í æsku, hún fær að vita hversu yndislegur þú varst. Elsku afi minn, takk fyrir að vera afi minn og vinur. Þú knúsar ömmu Kæju frá okkur öllum. Hvíldu í friði. Stundin líður, tíminn tekur, toll af öllu hér, sviplegt brotthvarf söknuð vekur sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri vermir ætíð mig, að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. Þú varst ljós á villuvegi, viti á minni leið, þú varst skin á dökkum degi, dagleið þín var greið. Þú barst tryggð í traustri hendi, tárin straukst af kinn. Þér ég mínar þakkir sendi, þú varst afi minn. (Hákon Aðalsteinsson) Þín dótturdóttir Ingibjörg S. Jóhannsdóttir. Elsku hjartans afi, hvíldin er komin, þú góði, einstaki maður. Það er svo margs að minnast. Miðdalur, bærinn ykkar ömmu, er einn af mínum bestu stöðum. Þú varst alltaf að kenna manni nöfnin á fjöllunum, nöfnin á fugl- unum, kenna manni að kveðast á, segja sögur af huldufólki og álf- um. Ég dáist að óþreytandi dugn- aði ykkar ömmu, vinnusemi og góðmennsku. Þú varst mikill og góður bóndi, eftir að þú varst kominn á Berg hjúkrunarheimili þá vaknaðir þú alltaf snemma og fylgdist vel með veðurfréttum því þú sagðir að það væri ennþá svo mikill bóndi í þér. Ég fer enn fram að Miðdal og horfi á bæinn, horfi á fjöllin, hlusta á fuglana og finna ilminn af náttúrunni og hugsa til baka og ég fyllist stolti yfir ykkur ömmu, þið hafið sko aldeilis unnið þrek- virki yfir ævina. Þú fylgdist alltaf vel með því ár frá ári hvaða fuglar væru á vatn- inu, hvað væru margar æðarkoll- ur í afahólmanum, hvenær snjó- skaflinn í reiðhjallanum var farinn. Ég fylgist með þessu áfram fyrir þig. Þú varst alltaf svo jákvæður, með mikinn sjálfsaga og þú sagð- ir að þér leiddist aldrei og nú gæt- ir þú farið að njóta lífsins og lesa enda varstu mikill bókaunnandi og áttir heilt safn af bókum. Þú sagðir alltaf svo vel og skemmti- lega frá, ég elskaði að heyra sög- ur frá gamla tímanum og þú mundir allt svo vel, þú leiddir mann svo vel í gegnum allt sem þú sagðir að ég upplifði stundum eins og ég hefði verið þarna líka. Stundum var ég mætt í morgun- kaffi til þín, þrjúkaffi og kvöld- kaffi til að heyra sögur og skoða gamlar myndir. Eitt sinn kom ég með lista til þín yfir það sem mig langaði að vita og svo sátum við og töluðum um það og ég skrifaði niður, það var eins og ég fengi ekki nóg, svo mikill var áhuginn og frásagnirnar góðar. Það er mér svo minnisstætt þegar við Kristín vorum í kvöldkaffi hjá þér í sumar þegar þú varst að segja okkur söguna af því þegar menn voru pokaðir í gamla daga, við hlógum öll svo mikið að ég held að hlátrasköllin hafi heyrst langt fram á gang. Þetta var gott kvöld. Ég er þakklát fyrir vikulegu samtölin okkar og allar samveru- stundirnar, við höfum haft þá hefð hjá okkur síðustu árin að þú hringir í mig og lætur mig vita þegar sést til sólar í Bolungarvík og þá baka ég pönnukökur, núna fyrir nokkrum vikum hringdir þú og sagðir að nú væru sko aldeilis stórtíðindi, það sást til sólar, þér að segja þá var þetta í fyrsta skipti núna í ár sem mér loksins tókst að baka pönnukökurnar. Þú varst svo ástfanginn af ömmu, þú mundir svo vel eftir fyrsta dansinum ykkar þegar þið voruð ung og eftir það dönsuðuð þið alltaf saman á samkomum. Þú hefur saknað ömmu alveg ótrú- lega mikið, þú svífur upp til henn- ar á afmælisdaginn hennar, það finnst mér fallegt, enda samband ykkar eins og falleg ástarsaga. Lagið sem þú valdir í jarðarförina þína er fallegt og ég veit til hvers þú hugsar og nú leiðist þið létt inn gólfið og líðið af stað í dans eins og þið voruð vön að gera. Þið eruð skærustu stjörnurnar á himnum og ég sakna ykkar. Faðmaðu ömmu frá mér, takk fyrir allt og guð geymi ykkur. Þín Karitas (Kæja). Elsku Biggi afi. Nú hefur þú fengið hvíldina og þið Kæja amma eruð sameinuð á ný. Þú saknaðir hennar svo mikið og talaðir ávallt fallega um Kæju þína. Að vera á Miðdal hjá ykkur eru minningar sem ég mun aldrei gleyma, kyrrðin í sveitinni, nátt- úran, fjöllin, fjárhúsin, lautin, úti- veran, kindurnar, endurnar, ferð- irnar á vatnið að sækja silung, bökunarilmurinn hjá ömmu, bókaherbergið þitt og svo lengi mætti telja. Á Miðdal var gest- kvæmt enda stundirnar við mat- arborðið í eldhúsinu ógleyman- legar. Ég man ennþá eftir því þegar þú hjálpaðir mér að læra að lesa, við sátum saman inni í bókaher- bergi að fara yfir bókina Við les- um. Þú varst alltaf svo áhugasam- ur um hvernig mér gekk í skólanum og hvattir mig áfram. Ekki varstu þekktur fyrir að kvarta yfir hlutunum og geðslag þitt með eindæmum gott, yfirveg- aður og rólegur, bjóst yfir þraut- seigju og seiglu sem var aðdáun- arverð. Síðustu ár var líkaminn orðinn veikburða en þú settir þér markmið í þjálfun og komst alltaf á hækjurnar aftur eftir veikindi, þú ætlaðir þér það og það tókst. Ég heyrði þig aldrei tala illa um fólk og þú sást alltaf jákvæðu hliðarnar á öllu. Þú varst vel les- inn, minnugur með meiru og hafðir frá svo mörgu að segja. Þú skrifaðir sögu foreldra þinna og fjölskyldu, það var heilmikil vinna sem lá þar að baki og laukst henni með því að gefa bókina út árið 2018. Mikið var ég stolt af þér. Fjölskyldan skipti þig miklu máli og þú varst ávallt þakklátur fyrir þær samverustundir sem við áttum saman. Eftir að amma lést hefur þú búið á Bergi þar sem þér leið vel. Þar áttum við líka góðar stundir við eldhúsborðið með kaffi og köku, alveg eins og á Mið- dal. Elsku afi, þú varst góður mað- ur og afkomendur þínir hefðu ekki getað átt betri fyrirmynd, það er svo margt sem ég hef lært af þér. Þín verður sárt saknað. Hvíldu í friði. Þín. Kristín. Vinur minn og föðurbróðir hef- ur lokað lífsbók sinni. Það er mér í bernskuminni þegar við Biggi frændi gengum út yfir bæjarlæk- inn og Hesthústúnið, út í gömlu fjárhús. Þruma var borin. Biggi sagði að ég mætti eiga lambið. Frá þessari stundu átti Biggi alla mína væntumþykju. Miðdalur var sem mitt annað heimili. Ásamt því að vera þar í sveit sótti ég mikið frameftir. Þau voru eins og önnur fjölskylda mín og hefur verið kært með okkur alla tíð. Biggi var næmur maður, vel gefinn og vel lesinn og með af- brigðum minnugur. Hann var barngóður og hlýr og næmur fyr- ir sál barnsins og unglingsins. Fróðleikur og næmi fyrir náttúru og dýrum kom að manni fannst sjálfkrafa. Hann náði að upplýsa með sínu milda og fallega brosi þannig að maður drakk í sig fróð- leikinn. Hann kenndi mér svo ótal margt sem hefur verið mér góð leiðsögn fyrir lífið sem ég er ein- staklega þakklátur fyrir. Hann kenndi mér að hlusta á kyrrðina. Bókstaflega að hlusta á þögnina tala eins og skáldið sagði. Hann kenndi mér að lesa landið, kenndi mér örnefnin, eyktamörkin í dalnum svo ég þurfti ekki klukku þegar sól var á himni, yfir Nónk- inninni eða Miðaftanshnjúknum, svo dæmi sé tekið. Hann var minn lærifaðir. Biggi var góður bóndi, fjár- glöggur og skipulagður. Allt skráð í fjárbækur frá upphafi. Framúrskarandi frjósemi var á Miðdal sem þykir sjálfsagt í dag. Við krakkarnir kepptumst um að þekkja sem flestar kindur með nafni og númeri. Alltaf hafði Ninna vinninginn. Skemmtilegar minningar eru frá sauðburði á vorin og sumrum þegar rakað var upp í föng og galta. Í réttinni á haustin var allt skráð niður um leið og dregið var. Vöktum við oft fram á nótt til að bera saman hvaða kindur vantaði. Við eftir- leitir komu smalahundarnir sér vel, Vígi gamli og Smali. Biggi lagði mikla vinnu í að rækta upp Miðdal. Það var mikið verk og erfitt að fjarlægja allt grjótið úr túnunum. Alla tíð var framúrskarandi hirðusemi og snyrtimennska hjá Bigga og Kæju. Nóg var að borða hjá Kæju. Með kaffinu oftast hlað- borð af mismunandi góðmeti. Ekki má gleyma súra slátrinu með grautnum sem ég elskaði eins og Biggi. Það átti nú ekki við alla. Það komst enginn upp með það hjá Kæju að borða ekki mat- inn. Á sínum yngri árum var Biggi stæltur og vel á sig kominn. Hann lék sér að því að stökkva yfir skurðina á túnunum og fara flikk- flakk á eftir. Þetta gátum við strákarnir ekki leikið eftir. Í göngum var hann manna vaskast- ur. Eftirfarandi vísa sem Biggi kenndi mér lýsir honum vel: Alla daga ár og síð, óttalaus og slingur. Stikar lífsins stigahlíð, stæltur Bolvíkingur. (SE) Á miðjum aldri fór að bera á liðagigt hjá Bigga sem hrjáði hann mikið. Ég man þegar hann sýndi mér að hann gat ekki lyft vatnsfötu yfir milligerðina þegar við vorum að vatna um sauðburð. Að leiðarlokum vil ég minnast vinar míns og frænda. Í gamla bæjarhólnum á Miðdal er frjósöm og góð gróðurmold sem minnir á vísu sem Biggi kenndi mér: Ætíð skal ég Miðdal muna meðan ég er ofar foldu. Við þá hugsun einatt una að eiga að verða að gróðurmoldu. Bjarni Benediktsson. Það blés ekki byrlega fyrir mér vorið 1965. Pési Valli frændi minn að hætta búskap, engin framtíð sjáanleg í sveit. Fékk um sumar að vera í heyskap með þeim bræðrum úr Folafæti, Hannesi og Sigurgeiri, og var það góður tími. Um haustið hittust Pési Valli og Birgir á Miðdal á förnum vegi og var Miðdalsbóndinn að leita að strák til að keyra skít. Pési var fljótur til svars og sagði hann „stendur hérna við hliðina á mér“ og benti á mig. Þetta varð til þess að þarna kynntist ég einum heilsteyptasta og tryggasta manni sem ég hef þekkt. Hann var sívinnandi, sam- viskusamur með eindæmum og átti gott með að hafa alla með sér og naut ég þess svo sannarlega til hans hinstu stundar. Birgir var heljarmenni að burðum og hirti sitt fé fram á Miðdal í átta ár áður en búskapur hófst, kannski hefur gigtin sem þjakaði hanni átt upptök sín á þessum árum. Hann kenndi okkur vinnu- mönnunum, eins og hann kallaði okkur, að vinna og hafa gaman af. Held ég eftir á að hyggja að fyrst og fremst liggi það í því að hann var alltaf með okkur alveg sama hvort það var í sauðburði, hey- skap, smalamennsku eða rúningi. Þegar smalað var til rúnings og rekið inn að Gili vorum við rúman sólarhring á fótum. Er rúningi lauk átti eftir að lemba út og gat það orðið tafsamt en þó að Ninna væri ekki gömul var hún látin segja okkur hvaða lömb til- heyrðu hverri á, svo fjárglögg var hún. Á þessum tíma var alls ekki al- gengt að yfir 80% ánna væru tví- lembd eins og var á Miðdal enda var Birgir lengi vel einn af fram- sæknustu ræktunarmönnum í sauðfjárrækt hér um slóðir og þótt víðar væri. Birgi og Kaju var mikið í mun að við nærðumst vel vinnumenn- irnir á Miðdal og vorum við vel nestaðir upp á daginn þegar verið var í heyskap frammi á Gili. Þeg- ar síðasta nestispása dagsins var afstaðin og Birgir búinn að leggja hart að okkur að klára skammt- inn, sem hafðist ekki alltaf, sagði hann að ef afgangur yrði myndi Kaja setja minna í boxin daginn eftir. Það gat hann ekki hugsað sér og gaf hundunum afgangana til að við fengjum örugglega nægju okkar næsta dag. Hestar og hestamennska voru Birgi alltaf ofarlega í huga enda ólst hann upp við hesta í æsku sinni. Árið 1968 keypti hann hesta en þá hafði verið hestlaust í rúm 10 ár. Hestana fékk hann hjá Ein- ari Gíslasyni vini sínum sem þá var á Hesti í Borgarfirði. Hest- arnir voru sóttir á opnum vörubíl og til marks um umhyggju Birgis fyrir velferð sinna skepna stóð hann á pallinum hjá hrossunum alla leið heim og voru sum þeirra ótamin. Veður var gott og tók heimferðin rúman sólarhring með stoppum. Á þetta ferðalag minntist Birgir oft enda var Kristján Eldjárn kjörin forseti þessa nótt. Ég var vinnumaður á Miðdal frá 1966 til 1969, fór ég flestar helgar þangað yfir veturinn með- an gaf. Heimilislífið á Miðdal var gott, þau hjónin voru glaðvær og á laugardagskvöldum þegar ekki var unnið dönsuðu þau í skálan- um við harmónikkuleik og við strákarnir sátum á kistunni og glöddumst með þeim. Það er mín vissa að nú sé haf- inn dans í öðrum skála og veit að þar ríkir sama gleðin og var á Miðdal. Einn daginn sitjum við strákarnir hans Bigga kannski aftur á kistunni en þangað til vil ég þakka þér kæri vinur fyrir samfylgdina, sem var mér góð. Kæru Ninna, Lalli, Guðný og fjölskyldan öll, innilegar samúð- arkveðjur til ykkar og megi ljós lýsa upp minningu Bigga á Mið- dal. Jón Guðni (Nonni). Birgir Bjarnason Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa okkar, ERLINGS SÖRENSEN umdæmisstjóri Pósts og síma á Ísafirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahjúkrunar, starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Ísafirði og starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Eyri. Arnfríður V. Hermannsdóttir S. Svanhildur Sörensen Unnar Þór Jensen Sveinn Hermann Sörensen Guðbjörg Jónsdóttir Árni Sörensen Guðný Snorradóttir Hrafnhildur Sörensen Gestur Ívar Elíasson Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN FRIÐRIK JÚLÍUSSON kranabílstjóri, Brekkugötu 38, Akureyri, lést á heimili sínu föstudaginn 20. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Aldís Ragna Hannesdóttir Júlía Björk Kristjánsdóttir Eggert Þór Ingólfsson Eva Laufey Eggertsdóttir Jón Októ Leifsson Aldís Hulda og Kristín Edda Eggertsdætur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.