Morgunblaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020 Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undirbúnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbús- skiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Ellert Ingason, umsjón sálmaskrár Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna ✝ SvanhildurTraustadóttir fæddist í Reykjavík 27.12. 1942. Hún lést á líknardeild Landspítalans 10. mars 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Trausti Árnason, f. að Hnjóti í Örlygs- höfn 13.10. 1913, d. 19.5. 1981, og Sig- ríður Olgeirsdóttir, f. í Stykk- ishólmi 23.9. 1917, d. 27.9. 1978. Svanhildur var fjórða í röð 7 systkina: 1) Una Traustadóttir f. 28.11. 1935, maki Gestur Guðjónsson, 2) Fríða Sigurveig Traustadóttir, f. 11.11. 1938, maki Jóhannes Helgason, 3) Borghildur Traustadóttir, f. Börn Svanhildar og Ósvalds eru: 1) Trausti Þór, f. 7.2. 1961, kvæntur Sif Kristjánsdóttur, f. 7.8. 1961. Börn þeirra eru tví- burarnir Ósvald Jarl, f. 22.10. 1995, og Svanhildur Erla, f. 22.10. 1995. 2) Margrét Árdís, f. 1.6. 1962, gift Vésteini Mar- inóssyni, f. 18.9. 1960. Þeirra börn eru Dagmar Ösp, f. 19.8. 1982, Íris Ösp, f. 20.11. 1985, og Birkir Steinn, f. 7.3. 1994. 3) Árni Þór, f. 21.10. 1963, kvænt- ur Ástu Hreiðarsdóttur Ós- valdsson, f. 16.1. 1957. Þeirra börn eru Alexander Ósi, f. 15.6. 1987, Anna, f. 30.1. 1990, og Trausti Hreiðar, f. 22.3. 1996, 4) Silja Dögg, f. 26.6. 1969 gift Valgeiri Magnússyni, f. 1.6. 1968. Börn þeirra eru Hildur Eva, f. 18.1. 1991, og Gunnar Ingi, f. 21.9. 1993. Barna- barnabörnin eru orðin sjö. Svanhildur stundaði versl- unarstörf og verslunarrekstur í Reykjavík og Kópavogi. Útför Svanhildar fór fram 20. mars 2020 í kyrrþey að ósk hennar. 15.5. 1941, d. 27.6. 2018, maki Sig- urður Einar Magn- ússon, d. 16.10. 2008, 5) Árni Traustason, f. 11.2. 1945, maki Kristín J. Gísladóttir, 6) María Olga Traustadóttir, f. 6.5. 1946, d. 6.6. 2008, maki Bjarni Þórhallsson, 7) Charlotta María Traustadóttir, f. 28.4. 1948, maki Magnús B. Sigurðsson. Svanhildur giftist Ósvald Gunnarssyni loftskeytamanni, f. 7.6. 1936, d. 8.10. 1995. For- eldrar hans voru Gunnar Krist- jánsson, f. 11.1. 1909, d. 20.12. 1977, og Margrét Pétursdóttir, f. 29.11. 1917, d. 25.6. 2008. Mamma, þú ert elskuleg mamma mín mér finnst gott að koma til þín. (Freymóður Jóhannsson) Þessar línur hafa hljómað í huga mér síðan ég kvaddi mömmu aðfaranótt 10. mars sl. Eftir baráttuna við skrímslið, eins og hún kallaði það, kom hennar tími. Að horfa á þessa sterku konu sem hafði reynt svo margt á sinni ævi kom hvíldin og var kærkomin. Hún sagði okkur að nú væri þetta orðið gott; orðið allt of erfitt. Mínar fyrstu minningar eru af mömmu að baka á Borgar- holtsbrautinni. Ég hef varla ver- ið nema 3ja ára. Það sem ég elskaði það þegar mamma bak- aði, sem hún gerði iðulega þegar ég var lítil. Hún gat alltaf glatt mann með fyrirtaksbakkelsi. Ég átti alltaf bestu kökuna á bekkj- arkvöldum í grunnskóla – þessa með púðursykurskreminu. Hinir krakkarnir fóru oft heim með afgang en aldrei ég. Kakan hennar mömmu kláraðist alltaf fyrst og af því var ég ávallt svo stolt. Mömmu féllu aldrei verk úr hendi. Ef hún var ekki að elda mat eða baka var hún annað- hvort að þrífa, þvo þvott eða sinna handverki. Og þvílíkur listamaður sem hún var. Það lék allt í höndunum á henni. Mynd- ir, gardínur, rúmteppi, peysur og bólstraðir stólar. Ég tel mig mjög lánsama að hafa erft eitt- hvað af þessum hæfileikum. Ég er ekki jafn góð með tuskuna en ég er ágæt í handverkinu og naut leiðsagnar hennar alla ævi. Ég átti ófá kvöld með mömmu og pabba við eldhús- borðið að spila Manna. Mamma elskaði að spila og síðustu árin höfum við ósjaldan gripið í Yatzy, Skrafl, Manna eða bara Ólsen Ólsen. Og oftast var Hild- ur Eva með okkur að spila en hún á spilaáhugann frá ömmu. Þær voru um margt líkar mamma og Hildur mín. Skoð- anaglaðar og þrjóskar steingeit- ur. Við áttum einnig saman ánægjuna af að púsla og gerðum mikið af því í Hrísey. Mömmu fannst lífið oft hafa leikið hana grátt. Þegar pabbi dó og mamma var bara 52ja ára slokknaði á einhverju hjá henni. Sorgin var mikil og við tók tími sem hún átti alltaf von á að yrði mun styttri. Hversu oft hafði hún sagt mér að hún yrði nú lík- lega ekki eldri en sextug því amma Sigga hefði bara rétt náð sextugu. En raunin varð allt önnur og fyrir það er ég þakk- lát. Að hún fengi að hitta litla Vilgeir Svan sem Gunnar Ingi og Ranka nefndu í höfuðið á henni er mér dýrmætt. Streng- urinn á milli mömmu og Gunn- ars Inga var ótrúlega sterkur og leituðu þau bæði í hvort annað. Tíminn með henni í Hrísey hjá okkur Valla og krökkunum yljar, sem og allar stundirnar með henni þar á pallinum í sól- inni þar sem henni leið best. Það verður skrítið næstu vik- urnar á meðan maður áttar sig á því að það er ekki lengur hægt að taka upp símann og hringja í mömmu. Hún hafði alltaf svör á reiðum höndum og í dægur- spjalli hafði hún sterkar skoð- anir og þær fengu allir að heyra. Já, mamma mín var sterk kona en líka þrjósk, ákveðin, með svartan húmor. dómhörð en umfram allt mamma mín. Hún var vinur vina sinna og var traust ef á reyndi. Ég veit að pabbi, amma og afi, Mæja og Bobbý og allir hin- ir hafa tekið henni fagnandi og gleðjast yfir því að nú hafi hún pabba hjá sér. Elsku mamma, Guð geymi þig og varðveiti uns við hittumst aftur. Silja. „Alveg er það lágmarkið að þessi drengur þrífi sig.“ Þetta var eitt það fyrsta sem verðandi tengdapabbi sagði um mig þeg- ar ég kom fyrst í Vesturbergið. Ósi fékk ekki gott fyrir hjá Svanhildi, sem tók karl á teppið og krafðist þess að hann bæði mig afsökunar, sem hann og gerði. Óheppilegt val á rakspíra. Strax frá fyrstu stund stóðu þau bæði við hlið mér sem klett- ur. Krakkakjánar, ég og Maggý, áttum von á barni og ekki búin að ljúka námi. Svanhildur og Ósi opnuðu heimili sitt fyrir mér. Heimili sem fyrir var fullt, og án efa íþyngjandi að bæta fleir- um við. Verður aldrei fullþakk- að. Tengdamamma hafði sterkar skoðanir á flestum hlutum og ekki mikið fyrir að breyta þeim. Lærðist mér fljótt, deildi ég ekki hennar skoðunum, að halda mínum frá henni. Það var best. Hennar stóra högg í lífinu var þegar Ósi lést sviplega, enn í blóma lífsins. Var hún lengi að vinna úr því áfalli og gerði í raun aldrei. Drífandi var tengdamamma með eindæmum, sífellt að sýsla við eitthvað. Lestrarhestur. Ferðalög voru henni kær, þar naut hún sín best. Ég heyri enn í yatzy-teningunum þegar hún kom með okkur í sumarbústað, sem var oft. Ekki búið að taka upp úr töskum, Svanhildur sest með teningana og galar „jæja“! Fyrir rétt rúmum tveimur ár- um veiktist tengdamamma af sjúkdómi sem að lokum lagði hana. Átti slæma daga, en fleiri góða. Tímann nýtti hún vel. Slökkti á útvarpi Sögu. Já- kvæðnin jókst. Nær alltaf hin glaðasta. Til í allt. Ferðaðist. Stöðnun var ekki til í orða- forða tengdamömmu. Fram á síðasta dag stóð hún í breyt- ingum. Skipti út húsgögnum. Málaði. Ný gluggatjöld og margt fleira. Naut þess að búa á fallegu heimili. Alltaf allt spikk og span. Áramótin síðustu borðaði tengdamamma með okkur. Slæmur dagur. Sárlasin. Kom samt. „Eigum við að skála?“ hvíslaði ég að henni. „Já.“ „Fyr- ir hverju?“ „Fyrir okkur.“ Nú skálum við ekki framar, en ég skála fyrir þér. Þú skilur eftir tómarúm. Komin í blóma- brekkuna. Við eigum minning- arnar. Minningar um sterka konu. Konu sem gætti að öllum sínum. Minningar sem ylja okk- ur. Góða nótt. Vésteinn Marinósson (Steini). Það var undarlegt að fá ekki að kveðja þig. En við máttum flest ekki koma og heimsókn- arbannið klippti á kveðjuna. Það var svo margt sem ég hefði vilj- að geta sagt við þig ef ég hefði vitað að síðasta skiptið sem við hittumst væri það síðasta. Ég hefði viljað þakka þér fyr- ir að vera hluti af lífi mínu og minnar fjölskyldu. Þakka þér fyrir hláturinn, þrjóskuna, sög- urnar, sleggjudómana, öll ráðin, samtölin, prjónaskapinn, af- skiptasemina, alla hjálpina, tengslin við börnin mín og sam- veruna. Því þegar ég gerðist tengdasonur þinn þá var ég enn bara unglingur og þurfti enn talsvert uppeldi. Það kom að hluta til í þinn verkahring að ala upp tengdasoninn og takk fyrir það, það gerði mig að betri manni. Það verður stórt skarð sem erfitt verður að fylla með þig farna frá okkur. Einhvernveg- inn tókst þér að verða mið- punktur hópsins þrátt fyrir að vera stöðugt að reyna að vera ekki fyrir og skipta engu máli. En á endanum snérist það í höndunum á þér og því meira sem þú reyndir að skipta engu máli, því meira skiptirðu máli fyrir okkur öll. Og nú þegar þú ert farin þá mun minningin um þig og það sem þú skildir eftir í okkur skipta öllu máli. Við erum sterkari, vitrari, yfirvegaðri, ákveðnari og með svartari og betri húmor vegna þín. Ásamt því að eiga fallegri og hlýrri peysur en allir aðrir. Ég kveð þig því með söknuði en líka með brosi, eða glotti eins þú varst alltaf með. Stríðnis- glottið þitt var mitt uppáhald. Þá vissi ég að eitthvað skemmti- legt var að fara að gerast eða einhver sleggjudómurinn var að fara að falla sem gat gert alla brjálaða. Þá þótti þér gaman. Hver maður á mörg líf. Án þess að deila, er ekki neitt. Líf með hverjum sem þú deilir með. Með þér átti ég gott líf. Valgeir Magnússon. Elsku amma. Heimurinn er svo mikið minni núna. Við áttum svo margar góðar stundir saman. Svo margar fal- legar minningar. Ég trúi varla að þær verði ekki fleiri. Ég vona að þú hafir fundið frið og sátt, að þú sért núna komin aftur til afa Ósa. Þegar ég spurði þig út í æskuvini þína sagðir þú mér að allir sem þú hefðir vingast við hefðu annaðhvort flutt í burt eða dáið. Ég vona að þú hittir allt þetta fólk aftur. Þegar ég hélt um köldu hend- urnar þínar uppi á líknardeild varstu með smá glott og svo friðsæl þannig að þú hlýtur að hafa séð eitthvað gott. Ég á mjög erfitt með að sætta mig við það að ég fékk aldrei að kveðja þig almennilega því líknardeildinni var lokað vegna kórónuveirunnar. Ég minnist allra kaffibollanna og allra sígarettnanna sem við deildum. Allir Dr. Phil þættirnir sem við horfðum á saman. Allar Agatha Christie myndirnar með Hercule Poirot. Öll skiptin sem ég skutlaði þér til augnlæknis. Öll jólin. Öll afmælin. Öll skiptin sem ég heimsótti þig þegar mér leið illa. Þú komst mér alltaf í betra skap. Þú varst minn besti vinur. Ég gat sagt þér allt. Þú dæmdir mig aldrei. Síðustu mánuðir hafa verið einstakir, fallegir og sorgmædd- ir allt á sama tíma. Ég tók upp viðtöl við þig um líf þitt og er að reyna að setja það í bók. Þér fannst það fáránlegt. Enginn myndi nenna að lesa bók um þitt ómerkilega líf, en lífið þitt var allt annað en ómerkilegt, amma. Þú áttir svo mörg misgóð æv- intýri. Ég hlusta nú á þessar upp- tökur og hugsa um þig. Ég spurði þig þessarar spurningar: „Nú eru öll börnin þín orðin fullorðin og komin i stjórnunarstöður. Þú hefur gert þinn part vel. Hvað meira get- urðu beðið um í lífinu?“ Þú hugsaðir þig aðeins um en svar- aðir síðan: „Þig. Að þú verðir heill.“ Ég svaraði: „Ég lofa því.“ Fyrirgefðu, elsku amma, að ég stóð ekki við loforðið en ég geri það einn daginn. Hvíldu í friði, elsku amma mín. Þinn Gunnar Ingi. Já snivinn er Snæfellsjökull og snjóþungt um Grímsvötn enn. Til fardaga hylur hjarnið að hálfu land – og menn. En leynst getur annað undir, þótt yfirborðið sé hrjúft, og bak við ísinn er ylur og eldur, sé grafið djúpt. (Örn Arnarson) Þetta er ljóðið við daginn þinn í afmælisdagabókinni okk- ar og okkur finnst það geta átt við þig, elsku systir. Okkur kom það ekki mikið á óvart að þú skyldir kveðja okk- ur núna, hafandi fylgst með baráttu þinni við þann illvíga sjúkdóm, krabbameinið, síðast- liðin tvö ár. Við hefðum viljað létta þér þessa baráttu meira en maður verður svo vanmátt- ugur frammi fyrir þessum vá- gesti. Þú ert sú þriðja úr systk- inahópnum sem kveður okkur, áður eru Mæja og Bobbý farn- ar. Við þessi tímamót hrannast að minningarnar frá æskuárun- um á Patreksfirði og síðar hér og hvar á landinu. Yngri systkin hennar þakka henni og Ósa fyr- ir umhyggju þeirra þegar þurfti að fara til Reykjavíkur og dvelja þar um lengri eða skemmri tíma. Ósvald, eiginmanni sínum, kynntist hún á Patreksfirði er hann starfaði sem loftskeyta- maður þar. Þau giftu sig 18. júní 1961 og settust að í Reykjavík og þar áttu þau heima og í Kópavogi allan sinn búskap. Ós- vald lést 8. október 1995 í hörmulegu bílslysi og var öllum sem hann þekktu harmdauði. Þau áttu saman rösk 35 ham- ingjuár. Þau ferðuðust mikið, bæði ut- an- og innanlands. Hún hafði yndi af að fara á berjamó. Einn- ig var hún alltaf í góðu sam- bandi við skyldfólk Ósvalds á æskustöðvum hans á Jökuldal fyrir austan, þar sem Trausti hennar var nokkur sumur í sumardvöl og Maggý líka í tvö sumur, og fór hún oft þangað, síðast í fyrrahaust. Einnig fór hún nokkrum sinnum til Kali- forníu til að heimsækja Árna og Ástu sem þar búa og dvaldi þá lengi í senn. Hún hafði yndi af því að dvelja hjá Silju og Valla í Hrísey og margar ferðir voru einnig farnar í sumarbústað Maggýjar og Steina í Þverár- brekku. Svanhildur gekk í Iðnskólann á Patreksfirði. Hún hóf nám í hárgreiðslu en lauk ekki prófi en sneri sér að barnauppeldinu. Þegar börnin voru vaxin úr grasi fór hún að vinna úti frá heimilinu, og um nokkurra ára skeið ráku þær systur Una og Gestur matvöruverslun á Dal- braut í Reykjavík. Hún vann við verslunarstörf mestan hluta þess tíma er hún vann utan heimilis. Svanhildur var ekki skoðana- laus manneskja og skoðanir sín- ar lét hún í ljós, hvort sem mönnum líkaði það betur eða verr. Hún gat verið beinskeytt í orðum en undir sló hlýtt hjarta sem ekkert aumt mátti sjá. Þau voru lík með það hjónin. Svanhildur var dugleg kona og geymdi það ekki til morguns sem hægt var að gera í dag. Hún var okkar systkinanna fróðust um frændfólk frá Látr- um og Hnjóti og hélt sambandi við þau nánustu og sérstaklega við föðurbræður okkar, Erlend og Ólaf. Elsku Trausti, Sif, Maggý, Steini, Árni, Ásta, Silja og Valli og fjölskyldur, Guð styrki ykkur og styðji í sorginni og haldi verndarhendi yfir ykkur. Að leiðarlokum þökkum við samverustundirnar, minninguna um yndislega systur geymum við í hjörtum okkar. Veri hún Guði falin, blessuð sé minning hennar. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir, og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Una, Fríða (Siddý), Árni, Charlotta, Unnar og fjölskyldur. Svanhildur Traustadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.