Morgunblaðið - 21.03.2020, Síða 31

Morgunblaðið - 21.03.2020, Síða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020 ✝ GuðmundurIngimund- arson fæddist í Borgarnesi 9. mars 1927. Hann lést í Brákarhlíð í Borgarnesi 6. mars 2020. Foreldrar hans voru Margrét Helga Guðmunds- dóttir frá Hunda- stapa á Mýrum, f. 21.7. 1893, d. 7.2. 1977, og Ingimundur Einarsson frá Hjarðarnesi í Kjós, f. 21.3. 1898, d. 4.2. 1992. Bræður hans voru Einar, f. 24.6. 1929, d. 11.12. 1997, Steinar, f. 28.10. 1930, Grétar, f. 28.2. 1934, d. 27.1. 1995, Ingi, f. 6.5. 1936, d. 10.6. 2014, Jóhann, f. 24.3. 1938, d. 23.7. 2009. Guðmundur kvæntist Ingi- björgu Eiðsdóttur, f. 5. ágúst 1927, d. 29. september 2019. Börn þeirra eru Margrét Helga, f. 28. október 1948, og Pálmi, f. 18. maí 1959. Margrét er gift Jóhannesi Ellertssyni, f. 1941. Börn þeirra eru: 1) Ingibjörg, f. Bjarki Már Jóhannsson, f. 1973, kvæntur Erlu Dögg Ás- geirsdóttur. Börn þeirra eru Arnór Orri, Anna Rakel og Atli Már. 2) Íris Heiður Jó- hannsdóttir, f. 1976, gift Ósk- ari Arasyni. Börn þeirra eru Dagmar Lilja, Elín Ósk og Ari Jökull. Guðmundur var mikill fé- lagsmálamaður og sinnti hann fjölda trúnaðarstarfa fyrir sveitarfélag sitt og þau mörgu félög sem hann starfaði í. Í mörg ár starfaði hann innan skátahreyfingarinnar og ung- mennafélagsins Skallagríms þar sem hann gegndi m.a. for- mennsku. Hann var einn af stofnendum Lionsklúbbs Borg- arness og Félags eldri borg- ara í Borgarnesi. Hann sat lengi í hrepps- nefnd og var oddviti í Borg- arnesi. Hann sat í stjórn Hita- veitu Akraness og Borgar- fjarðar og sinnti varafor- mennsku í stjórn Vírnets og Kaupfélags Borgfirðinga til fjölda ára. Ungur lærði Guð- mundur bakaraiðn og starfaði við það í 21 ár. Árið 1964 tók Guðmundur við Esso-stöðinni í Borgarnesi, sem síðar varð Hyrnan, og stýrði til ársins 1997 er hann lét af störfum sökum aldurs. Sökum sérstakra aðstæðna í þjóðfélaginu hefur útför Guð- mundar farið fram í kyrrþey. 1971, gift Hirti Friðriki Hjart- arsyni. Synir þeirra eru; Sveinn Hjörtur, Jóhannes Ernir og Guð- mundur Logi. 2) Guðmundur Ellert, f. 1976, kvæntur Þorgerði Tóm- asdóttur. Synir þeirra eru: Gunn- ar Þór, Haukur Ingi og Ellert Helgi. 3) Katrín, f. 1983. Frá fyrra hjónabandi á Jóhannes tvær dætur; 1) Margrét, f. 1964. 2) Hólm- fríður, f. 1969. Sonur hennar er Jökull Kristinsson. Pálmi er kvæntur Elínu Magnúsdóttur, f. 1956. Börn þeirra eru: 1) Guðmundur Birkir, f. 1980. Börn hans og Rakelar Mánadóttur eru; Lilja Marín, Máni Hrafn og Pálmi. 2) Hlynur, f. 1984, sambýlis- kona hans er Hildur Ýr Óm- arsdóttir. Börn þeirra eru; Ída Mekkín, Grímur og Þorgils. 3) Ingibjörg Lilja, f. 1988. Synir hennar eru; Sigurður Pálmi og Hlynur Darri. Frá fyrra hjónabandi á Elín tvö börn; 1) Þá eru þau aftur sameinuð, elsku afi og amma. Sálufélagar síðan fyrst þau hittust, 17 ára gamlir unglingar í Borgarnesi. Þar bjuggu þau allan sinn búskap, eignuðust tvö börn og nutu sam- vista við stóra fjölskyldu. Afi og bræður hans voru sex talsins og bjuggu þeir allir með fjölskyldum sínum í Borgarnesi. Það var mikið líf og fjör í kringum þessa stóru fjölskyldu. Það var gaman að alast upp með þennan stóra frændgarð í kringum sig. Á Þor- steinsgötunni, hjá afa og ömmu, var ég alltaf velkomin. Þar var gott að vera og mér leið eins og ég ætti þar annað heimili. Þau voru gestrisin og húsið jafnan fullt af vinum og vandamönnum, sem nutu góðra veitinga og vinalegs andrúmslofts. Afi var mikill félagsmálamaður og í minningunni alltaf á leið á fund með glansandi fallega skjala- tösku, í fínum frakka með hatt. Hann var líka mikill fjölskyldu- maður, hafði endalaust gaman af afa- og langömmubörnum, sem sóttu mikið til langafa og lang- ömmu. Hann lét sig flest varða, var áhugasamur um fólk og sam- ræðugóður. Hann hafði mikið skopskyn og það var stutt í hlát- urinn. Hann hafði gaman af ferða- lögum, bæði innanlands og utan. Hann naut þess að keyra og stundum var eins og hann nyti ferðalagsins meira en áfangastað- arins, því jafnskjótt og hann var kominn, þurfti hann að fara aftur af stað. Afi átti langa og góða ævi en hvíldin var honum líklega kær- komin. Þegar amma lést fyrir tæpu hálfu ári var mikið frá hon- um tekið og fljótlega fór heilsu hans að hraka. Það var ljóst að hann var farið lengja eftir að hitta ástina sína aftur, það var honum þungt að verða viðskila við sálu- félaga sinn og besta vin til 70 ára. Elsku afi, amma bíður eftir þér og í sorginni yfir að missa þig er huggun í voninni um að þið fáið að vera saman á ný. Guð geymi þig. Þín Ingibjörg. Löng og farsæl lífsganga Guð- mundar Ingimundarsonar (Gumma frænda) er á enda. Af Mýrum í móðurætt langt aftur, sunnlenskur í föðurlegginn. Fæddur Borgnesingur, frum- burður og óskoraður foringi og fyrirmynd sex bræðra. — Grandi bróðir! Foringi skáta, glaðlyndur grallari, félagslyndur, traustur og fremstur meðal jafningja, góð- gjarn og hjálpfús, viðkvæmur, hviklyndur, örlyndur, fljóthuga og fljótfær stundum. Skellti brún- um, varðist með versum stuttum, en beittum. Eldsnöggt, en svo var það búið. Logn við Hafnarfjall. — Allt samt og áður og hlýja komin í svip. Vaktina stóð hann eljusamur og trúr fyrir samvinnumenn leng- ur en hálfa öld, samfélagið, fjöl- skyldu og vini — alltaf! Í hans breiða faðm mátti falla, þegar á móti blés. — Hollráður frændi! Gummi var óeigingjarn og ær- legur félagi og leiðtogi í senn. Fyrir góða kosti átti hann fylg- ismenn marga. Hann sat í sveit- arstjórn í 20 ár og var oddviti í 12 ár. Þó voru tímar blómanna í litlum bæ, ekki honum einum að þakka, en hann átti sinn þátt, ástríðufullur og ósérhlífinn. Hug- sjónin var að vinna samfélaginu heilt, gera gagn. Íbúatalan tvö- faldaðist næstum því. Stóri draumurinn, hitaveitan, varð að veruleika. Hann stýrði fundum, og síðan bílnum, lyfti rósavíns- staupi, einhverjir skáluðu þá í sterkara! Flokkapólitík skipti hann litlu. Hann var samvinnumaður í besta skilningi, með skátann í brjóstinu, örlátur á tíma og kraft, þjónustan og erillinn var hans líf. Bræðrum hans, krötunum, fannst vont að að hann væri með Framsókn. Hall- dór E. átti sökina! sögðu þeir. Þótt pólitíkin væri dauðans alvara reyndust bræðraböndin sterkari. Frændi stóð lífsvaktina aldeilis ekki einn. Ingibjörg Eiðsdóttir var hans og hann hennar, þar til síðasta haust. Honum mesti miss- ir eftir farsæla samferð og undir sama þaki í meira en sjötíu ár. Hvort öðru allt, elskendur, sam- herjar og vinir. Hún viljaföst, traust, en ekki allra. Gaf ekkert fyrir ístöðuleysi, amlóðahátt — vissi hvað hún vildi og hvað ekki. Ráðdeildarsöm, verkhög, iðin, af traustum stofnum. Skagfirð- ingur í móðurætt og Borgfirðing- ur í hina, langafabarn Magnúsar auðuga Jónssonar á Vilmundar- stöðum, sívinnandi verkmanns. Sá hafði víst virðulegan sæmdar- svip, en frúin hans, Ástríður, bestu gát á orðum og athöfnum. Margt getur verið líkt með skyld- um! Svana frænka sagði fyrir sextíu árum, heilráð: „ ...viðmótið og andrúmsloftið á heimilum, sem gerir þau glæsileg og aðlaðandi, er börnunum betri arfur en þús- undir af gulli.“ Þannig var látlaust og glæsilegt heimili Ingibjargar og Gumma á Þorsteinsgötu 17 í Borgarnesi. Þar leiddi hún gest- inn milli myndaraða, sýndi stolt yndin sín öll. Hún hló enn hátt, að litlum Pálmum eins og þegar við afi þeirra og nafni vorum báðir litlir. Stuttu síðar kvaddi hún okk- ur öll eins og hennar var von, með reisn! Síðast. Frændi fundarfær, nema hvað vantaði hattinn, ekki alvörusvipinn, meðan dottað var. Nei!!! – Ert þú kominn hingað!? Stráksleg gleði í svipnum. Frétta- von. Spurt! Svo liðni tíminn, æskufélagar, skátarnir, vinir og aðrir samferðarmenn – ekki kala- orð. Þar sat sáttur höfðingi á frið- arstóli, en nú er hann allur – skarð fyrir skildi. Ég, börn mín og fjöl- skyldan öll munum geyma góðar minningar um sjarmahjónin og vinina traustu Guðmund og Ingi- björgu. Þökkum! Börnum, afkom- endum öllum og eftirlifandi bróð- ur sendum við samúðarkveðjur. Ingimundur Einar Grétarsson. Guðmundur Ingimundarson, Gummi, var Borgnesingur, hér ólst hann upp, gekk í barnaskól- ann og iðnskólann, nam bakara- iðn og vann hjá brauðgerð KB í mörg ár. Hann lauk starfsævi sinni sem verslunarstjóri hjá ESSO eftir mörg og farsæl ár, virtur bæði af samstarfsfólki og viðskiptavinum. Hann var dugnaðarmaður og vissi af reynslu að það þarf að vinna til að fá ánægju út úr lífinu, „vinnan göfgar manninn“. Gummi var félagslyndur, var í Skátafélagi Borgarness, var „ávallt skáti“. Hann var einn af stofnendum Lionsklúbbs Borgar- ness. Sat í sveitarstjórn Borgarness. Öll störf sem hann tók að sér leysti hann vel af hendi. Aldrei heyrði ég Gumma hall- mæla eða tala niður til fólks, allir voru jafnir. Hann var sannsögull og traustur, en það var aldrei nein lognmolla í kringum hann. Á lífsleiðinni hittir maður sem betur fer menn sem gaman er að eiga samleið með, Gummi var einn slíkur. Ég trúi að mesta hamingja Gumma hafi verið að eignast eig- inkonu sína hana Ingibjörgu. Voru þau hjón alla tíð einkar sam- rýnd og saman hafa þau gengið í meira en 70 ár. Ég minnist Gumma sem góðs vinar, nágranna og ferðafélaga. Að eiga góða vini er eitt af því mikilvægasta í lífinu, það finnur maður þegar þeir kveðja. Aðstandendum Gumma sendi ég innilegar samúðarkveðjur, megi allt gott styrkja þau. Blessuð sé minning hans. Helga Guðmars. Guðmundur Ingimundarson ✝ Inga DagbjörtDagbjartsdótt- ir fæddist 28. nóv- ember 1943 í Hafnarfirði. Hún lést á sjúkradeild Fjórðungssjúkra- hússins í Neskaup- stað þann 10. mars 2020. Foreldrar henn- ar voru Dagbjart- ur Geir Guð- mundsson sjómaður sem lést 17. júlí 2007 og Steinunn Gísl- ína Kristinsdóttir húsmóðir, en hún lést 4. febrúar 1984. Systir Ingu er Kristín Dag- bjartsdóttir, eiginmaður hennar er Ármann Pétursson, þau eru búsett í Hveragerði. Bróðir Ingu var Guðmundur Ómar sem lést 21. febrúar 1990. Eftirlifandi eiginmaður Ingu er Örn Ingólfsson húsa- smíðameistari á Breiðdalsvík. 2002. 3. Hrefna Dagbjört ferðaþjónustuaðili á Egils- stöðum, f. 8. febrúar 1977, eiginmaður hennar er Ívar Ingimarsson ferðaþjónustuað- ili, börn þeirra eru Víðir Freyr, f. 2004, og Íris Ósk, f. 2006. 4. Valur Þeyr bóndi og húsamálari í Breiðdal, f. 1. apríl 1982, eiginkona hans er Guðný Harðardóttir fram- kvæmdarstjóri, sonur þeirra er Dagbjartur Örn, f. 2016, dætur Guðnýjar eru Sólveig Björg, f. 2010, og Sólrún Líf, f. 2012. Inga Dagbjört, sem er fædd og uppalin í Hafn- arfirði, giftist Erni Ingólfs- syni 4. nóvember 1967 og flutti til Breiðdalsvíkur vorið 1968 og var búsett þar upp frá því. Inga rak lengst af mötu- neyti barnaskólans á Breið- dalsvík auk annarra starfa, s.s. afgreiðslu í apóteki. Inga var virk í kvennfélaginu Hlíf og Sambandi austfirskra kvenna (SAK) og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum, svo sem formennsku í báðum fé- lögum. Útförin fer fram í kyrrþey. Börnin eru fjögur: 1. Ingólfur Örn smiður, búsettur í Reykjavík, f. 8. apríl 1968, eig- inkona hans er Anna María Arn- arson, börn þeirra eru Lea Bryndís, f. 2007 og Ruben Leo, f. 2008, dóttir Ingólfs er Árný, f. 1992. 2. Steinunn Arna flugumferðarstjóri, bú- sett í Mosfellsbæ, f. 13. júní 1970, sambýlismaður hennar er Sveinn Óskarsson rafvirki. Dætur Steinunnar eru Mar- grét Lilja Arnbergsdóttir, f. 1996, sambýlismaður Gunnar Freyr Halldórsson, f. 1994, og Inga Sjöfn Arnbergsdóttir, f. 1998, unnusti Jón Bjarki Hlynsson, f. 1997, dóttir þeirra Linda Margrét, f. 2020. Börn Sveins eru Lovísa Sól, f. 1997, og Óskar Eiríkur, f. Elsku mamma, nokkur orð í kveðjuskyni. Hlátur, hlýja og gleði eru orðin sem koma upp í hugann þegar ég minnist þín. Umræður um bækur og ljóð. Þú varst lík- lega langt komin með bókasafn- ið á Breiðdalsvík og þið pabbi með ágætis bókasafn heima. Umræður um lífið og tilveruna, faðmlög og umhyggja þín fyrir okkur öllum. Mér fannst þú alltaf hafa áhuga á öllu. Bæði því sem var efst á baugi, hvað var um að vera í þorpinu og eins mínu lífi, vinum og seinna fjölskyldu. Alltaf svo stolt af börnum þínum og barnabörn- um. Nú síðast fyrsta barna- barnabarninu sem fæddist á árinu. Hvattir og trúðir á getu okkar til að gera allt sem við hefðum áhuga á. Það hefur lengi verið brandari í fjölskyld- unni að börnin hennar Ingu séu nú alveg einstök. Þú rakst meðal annars mötuneytið í barnaskólanum á Staðarborg. Krökkunum þótti mörgum gott að fara í eldhúsið í frímínútunum og spjalla og hlæja. Setið var við eldhúsborðið og á frystikistunni og jafnvel molasopi með spjallinu. Dönsku blöðin stutt undan, enda alltaf hrifin af Danmörku eftir að hafa eytt þar tíma sem ung stúlka með Laufeyju vin- konu. Krakkarnir í skólanum glöddu þig mikið á fertugs- afmælinu með því að slá sam- an í og færa þér tvær stærðar styttur sem síðan hafa staðið á arinhillunni. Elskaðir að ferðast með pabba, víða farið og margt skoðað, mest innanlands en líka nokkrar ferðir erlendis. Stund- um skipulagt að skoða eitthvað ákveðið en fannst líka gaman að taka bara óvænt næstu beygju og sjá hvað væri þar áhugavert að sjá. Snaraðir upp veislum, fyrir tugi manna, að manni fannst áreynslulaust. Allir alltaf vel- komnir til ykkar, bæði í stutt spjall eða gistingu. Þið pabbi bjugguð alltaf á Breiðdalsvík. Krossgerði þó alltaf saman- fléttað, fyrst við að aðstoða ömmu og afa í búskapnum, seinna þegar þið tókuð við. Trén og runnarnir sem þið Hanna ræktuðuð eru nú orðin fallegur trjálundur við bæinn. Ekki má gleyma hænunum, átt- uð á tímabili tvær og hálfa hvor og byggt á því fór bóndinn Hanna í bændaferðir. Síðustu árin gaf heilsan sig en þú barst þig alltaf vel og vildir frekar ræða hvað var að gerast hjá þeim sem þú varst að spjalla við í það skiptið. Elsku mamma, fyrirmyndin mín, takk fyrir allt. Ég mun sakna þín. Þín Steinunn Arna. Inga Dagbjört Dagbjartsdóttir ✝ Þórey IngaJónsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 13. júní 1931. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suður- lands í Vest- mannaeyjum 5. mars 2020. Foreldrar henn- ar voru Jón Benón- ýsson, f. 7.5. 1897, og Kristín Karitas Valdadóttir, f. 21.2. 1898. Hinn 25.12. 1953 giftist Þórey Ástþóri Jóni Val- geirssyni. Þau skildu. Þau eignuðust 2 börn. 1. Sól- rún Ástþórsdóttir, f. 15.5. 1953, d. 19.1. 2015. Eiginmaður Jón Sigurðsson, f. 19.11. 1950. Þau áttu einn son, Jón Rúnar, f. 29.3. 1989, kvæntan Kolbrúnu dóttir, f. 10.12. 1986. Sambýlis- maður Guðjón Ásgeir Helga- son, f. 15.3. 1978. Þeirra börn Bryndís, Bogi, Valdís Bylgja og Kristín Dóra. Fyrir átti Jón Ben. Margréti Sigurveigu Jónsdóttur, f. 10.5. 1978. Dætur hennar eru Herdís Júlía og Díana Sjöfn. Dóttir Díönu Sjafnar er Jökulrós Katrín. Seinni maður Þóreyjar var Hjörtur Eyjólfsson, f. 18.10. 1931, d. 16.2. 1992. Þórey átti 3 systkin. Þau voru Halldóra Þuríður Jóns- dóttir, f. 16.3. 1921, d. 27.7. 1926. Halldór Jón Jónsson, f. 6.6. 1926, d. 26.9. 1999. Guð- björg Benónía Jónsdóttir, f. 21.7. 1928. d. 8.2. 1997. Þórey vann ýmis störf um ævina. Þó lengst af við af- greiðslu og símavörslu á Heilsugæslu Sjúkrahússins í Vestmannaeyjum. Útför hefur farið fram í kyrrþey frá Landakirkju í Vestmannaeyjum að ósk hinnar látnu. Höllu Guðjóns- dóttur, f. 14.9. 1993. Fyrir átti Sól- rún, Þóreyju Gísla- dóttur, f. 3.2. 1972. Eiginmaður Svein- björn Auðunsson, f. 21.4. 1967. Þeirra börn eru Jóhannes, Inga Rún, Auðunn, Árni Tómas og Katrín Edda. 2. Jón Ben Ástþórsson, f. 9.10. 1958. Eiginkona Anna Kristín Hjálmarsdóttir, f. 10.10. 1960. Þeirra börn: a. Agnes Jónsdóttir, f. 8.11. 1978, sam- býlismaður Stefán Páll Ágústs- son, f. 17.12. 1974. Saman eiga þau Rakel Ágústu og Ásgeir Kristin; b. Hjálmar Jónsson, f. 26.10. 1980; c. Kristjana Jóns- Nú er komið að kveðjustund, elsku Þórey. Ég man okkar fyrstu kynni þegar ég stóð á tröppunum hjá þér á Hólagötunni og bauð þér að kaupa happdrættismiða sem ég var að selja. Ég var þá ófrísk að fyrsta barni okkar Jóns Ben og við ekki búin að rugla saman reytum. Ég var hálfkvíðin að banka upp á en það var óþarfi, slíkar voru mót- tökurnar frá þér. Koss á kinn og faðmlag. Eftirleikurinn var auð- veldur því þannig var það ávallt, Þórey mín. Það var alltaf auðsótt mál þeg- ar leitað var ráða eða óskað eftir pössun. Börnin okkar nutu þess að vera hjá þér, þú áttir alltaf nógan tíma fyrir þau, tekið í spil eða spjall við eldhúsborðið. Þú varst óspör á hrósið og varst svo stolt af þeim þegar þau fögnuðu sigri hvort sem var í námi eða starfi. Við eigum eftir að sakna þess að hafa þig ekki við eldhúsborðið hjá okkur og ræða málefni dags- ins. Ég tala nú ekki um fótboltann, auðvitað þitt lið Manchester Unit- ed en þar varstu á heimavelli, viss- ir allt um hvað þeir hétu og hvaða stöðu þeir léku. Við Jón Ben viljum þakka þér fyrir alla þína umhyggju og hlýju sem þú veittir okkur og börnum okkar í gegnum árin. Farðu í friði, kæra vina. Þín tengdadóttir, Anna Kristín (Anna Stína). Þórey Inga Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.