Morgunblaðið - 21.03.2020, Síða 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020
50 ára Magnús er
Garðbæingur og er
fæddur þar og upp-
alinn. Hann er stúd-
ent frá FG og er
framkvæmdastjóri
Létt flotastjórnun,
sem er rekstrarleiga
á bílum.
Maki: Ágústa Símonardóttir, f. 1971,
fjármálastjóri hjá Létt flotastjórnun.
Börn: María, f. 1997, Ásdís Milla, f.
2000. Eva Mía, f. 2008, og Stefán
Máni, f. 2010.
Foreldrar: Guðjón Oddsson, f. 1939,
fv. kaupmaður, og Gíslína Kristjáns-
dóttir, f. 1941, húsmóðir. Þau eru bú-
sett í Garðabæ.
Magnús Oddur
Guðjónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Annaðhvort ert þú í slæmu skapi
eða þú dregur til þín fólk sem er það. Hafðu
allan fyrirvara á því fólki sem talar í hálfum
setningum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert uppfull/ur af orku í dag.
Mundu að gleyma ekki þínu eigin frelsi og
þinni eigin velferð. Skrifaðu allt niður sem
fer út úr buddunni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er líklegt að þú lendir í nýju
ástarævintýri eða að það færist aukin
ástríða í eldra samband. Þú færð prik fyrir
góða frammistöðu í vinnunni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt þú sért ekki upp á þitt besta
þessa dagana tekst þér samt að hafa áhrif
á aðra þannig að mál þín þokast áfram.
Kærleikurinn sigrar allt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú skalt ekki vera vonsvikinn þótt
eitthvað renni þér úr greipum. Það koma
fleiri tækifæri. Reyndu að venjast því að
þurfa að bera ákvarðanir undir aðra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Af einhverri ástæðu ertu í sviðsljós-
inu í dag. Bankareikningurinn bólgnar
þessar vikurnar því þú ert búin/n að skella
buddunni í lás.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þitt mikla skap kemur af stað röð at-
burða. Einhverjum finnst hann/hún hafa
verið hlunnfarin/n eða þú munt sýna fram
á að svo sé ekki.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Fjárhagslegum markmiðum er
náð og þú gætir ekki verið ánægðari með
þig. Þú lætur einhvern taka pokann sinn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nýir vinir sem þú kynnist eru af
því tagi að hægt er að umgangast þá við
hvaða aðstæður sem er. Veldu bara það
besta fyrir þig og þína.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Farðu þér hægt í að velja nýjar
leiðir því það er í mörg horn að líta og engin
ástæða til breytinga breytinganna vegna.
Valdabarátta ríkir á heimilinu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Taktu lífið ekki of alvarlega.
Taktu púlsinn á máli sem hefur legið í dvala
í lengri tíma. Víkkaðu sjóndeildarhringinn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það eru þessir mörgu smáu hlutir
sem á endanum skapa frið og ró. Leyfðu
málum bara að hafa sinn gang og njóttu
lífsins með bros á vör.
og Fríður ferðuðust talsvert hin
seinni árin meðan Hjalti lifði og hélt
hún því áfram eftir andlát hans.
Árið 2000 hóf Fríður sambúð með
Reyni Ásberg Níelssyni og bjuggu
þau allmörg ár í Laugargerði en
en ánafnaði yngsta syni sínum,
Jakob, garðyrkjustöðina.
Fríður var ötul í starfi kvenfélags-
ins, söng í kórum, starfaði með leik-
félaginu og lét, ásamt manni sínum,
sveitarstjórnarmál til sin taka. Hjalti
F
ríður Ester Pétursdóttir
er fædd 21. mars 1935 í
Blesugróf í Reykjavík,
önnur í röð sjö systkina.
Pétur, faðir hennar, var
menntaður vélstjóri en þegar fjölga
fór í fjölskyldunni ákvað hann að
sækja um starf hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins sem hann og fékk
og fjölskyldan, sem þá var orðin
fimm talsins, flutti norður á Siglu-
fjörð.
Þar ólst Fríður upp við leiki og
störf, fór ung að láta til sín taka á
síldarplönum enda óvenjuhávaxin og
ævinlega álitin miklu eldri en hún í
raun var. Á veturna stunduðu vin-
konurnar skíði og náði hún talsverðri
leikni í þeirri í þrótt.
Að áeggjan Guðbjargar, móður
Fríðar, ákvað fjölskyldan árið 1951
að breyta til og flutti fjölskyldan að
Laxnesi í Mosfellssveit sem þá hafði
verið í eyði í nokkur ár. Mikil vinna
var að koma þar öllum húsakosti til
nota og fengu börnin að taka til hend-
inni. Þar stunduðu Pétur og Guð-
björg blandaðan búskap þar til Guð-
björg lést liðlega fimmtug. Þá brá
Pétur búi og flutti til dóttur sinnar
Drífu í Svíþjóð. Þar lést Pétur 1971.
Í Mosfellsdalnum kynntist Fríður
fljótlega mannsefni sínu, Hjalta Ó.E.
Jakobssyni, sem starfaði við garð-
yrkju þar í sveit . Eftir að þau rugl-
uðu saman reytum kom fljótlega að
því að Hjalti og Fríður vildu verða
sjálfstætt starfandi og réðu þau sig
til Ragnars í Smára sem átti og rak
garðyrkjustöð á Stóra-Fljóti í Bisk-
upstungum. Þangað fóru þau á vor-
dögum 1954 nýgift með nýfæddan
son sinn Pétur.
Árið 1957 bauðst Hjalta og Fríði
að leigja garðyrkjustöð í Laugarási í
Biskupsstungum, henni fylgdi lítið
íbúðarhús og fluttust þau þangað. Í
þessu litla húsi sem var aðeins um 40
fermetrar fæddust þeim flest börnin
sem urðu alls 6 og eru öll á lífi.
Hjalti og Fríður stofnuðu til ný-
býlis í Laugarási sem þau nefndu
Laugargerði og þar byggðu þau upp
af miklum myndarskap öfluga garð-
yrkjustöð og fluttu í nýtt íbúðarhús
árið 1965. Hjalti lést 1992 aðeins 63
ára að aldri og bjó Fríður þar áfram
fluttu 2016 á Selfoss þar sem þau
halda heimili saman í Sóltúni 29.
„Það er alltaf hægt að finna sér
eitthvað að gera,“ segir Fríður að-
spurð. „Ég prjóna og er í sjálfboða-
vinnu hjá Rauða krossinum, en við
hittumst vinkonurnar einu sinni í
viku og prjónum saman allt frá sjöl-
um og peysum í vettlinga og húfur.
En svo hefur maður verið að vinna öll
þessi ár svo það er kominn tími til að
hafa það rólegt.“
Fjölskylda
Eiginmaður Fríðar var Hjalti Jak-
obsson, f. 15.3. 1929, d. 18.6. 1992,
garðyrkjumaður. Foreldrar hans
voru hjónin Jakob Narfason, f. 12.8.
1891, d. 18.6. 1980, verkamaður í
Mosfellssveit, og Marta Hjaltadóttir,
f. 16.11. 1894, d. 10.12. 1970, verka-
kona. Sambýlismaður Fríðar er
Reynir Ásberg Níelsson, f. 26.4.
1931, rafvirkjameistari. Foreldrar
hans voru hjónin Níels Guðnason, f.
8.3. 1888, d. 27.6. 1975, bóndi og húsa-
smiður á Valshamri á Mýrum og í
Borgarnesi, og Soffía Hallgríms-
Fríður Esther Pétursdóttir, fyrrverandi garðyrkjubóndi – 85 ára
Stórfjölskyldan Á áttræðisafmæli Fríðar þar sem nær allir afkomendur og makar mættu. „Ég leigði mér rútu og allur
hópurinn fór á Gullfoss og Geysi og krakkarnir kynntust vel í ferðinni. Svona eiga afmæli að vera,“ segir Fríður.
Kominn tími til að hafa það rólegt
Hjónin Hjalti og Fríður á heimili sínu í Laugargerði.
Mosfellsbær
Björt
Sævars-
dóttir fædd-
ist 2. mars
2019 kl.
15.27 á
Landspít-
alanum. Hún
vó 3.334 g
og var 48,5
cm löng. Foreldrar hennar eru
Hallgerður Ragnarsdóttir og
Sævar Ingi Eiríksson.
Nýr borgari
30 ára Hjálmar ólst
upp í Steinsstaða-
hverfi í Skagafirði en
býr á Blönduósi. Hann
er rafvirki að mennt
og vinnur hjá Raf-
magnsverkstæðinu
Átaki. Hjálmar situr í
bæjarstjórn Blönduóss og er formaður
Björgunarfélagsins Blöndu.
Maki: Ingibjörg Signý Aadnegard, f.
1989, sjúkraliði hjá HSN á Blönduósi.
Börn: Guðjón Þór, f. 2011, og tvíburarnir
Helga María og Þórdís Harpa, f. 2016.
Foreldrar: Guðmundur Guðmundsson, f.
1966, smiður, og Helga Þorbjörg Hjálm-
arsdóttir, f. 1968, stuðningsfulltrúi í
Grunnskólanum í Varmahlíð, bús. í
Steinsstaðahverfi.
Hjálmar Björn
Guðmundsson
Til hamingju með daginn
30 ára Hallgerður býr í
Mosfellsbæ og ólst þar
upp. Hún er með BA-
gráðu í stjórnmálafræði
frá HÍ og Sciences Po
Paris, og er að klára
MS-gráðu í verk-
efnastjórnun frá HÍ.
Maki: Sævar Ingi Eiríks-
son, f. 1990, rafvirki hjá Straumbroti.
Dóttir: Björt, f. 2019.
Foreldrar: Oddný Guðnadóttir, f. 1965,
og Ragnar Sverrisson, f. 1959. Þau reka
Höfðakaffi og eru búsett í Mosfellsbæ.
Hallgerður Ragnarsdóttir