Morgunblaðið - 21.03.2020, Page 40
KÖRFUBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Finnur Freyr Stefánsson gerði
karlalið KR að Íslandsmeistara í
körfubolta fimm ár í röð, árin 2014-
2018. Í kjölfarið tók við eitt tímabil
þar sem hann dró sig út úr sviðs-
ljósinu og þjálfaði yngri flokka hjá
Val. Síðasta sumar ákvað hann svo
að róa á önnur mið og flutti til Dan-
merkur til að taka við Horsens í
efstu deild karla.
Nú er fyrsta tímabili Finns í Dan-
mörku lokið og hann fluttur heim, í
bili hið minnsta.
Fór í bikarúrslit
„Þetta var fyrst og fremst mjög
lærdómsríkt og skemmtilegt. Það
var gaman að fara í algjörlega nýtt
umhverfi og komast á stað þar sem
maður þekkti ekkert leikmennina,
hina þjálfarana eða boltann sem var
spilaður. Þetta var mjög skemmti-
legt og eins og með allt annað var
þetta svolítið upp og niður. Sem
betur fer var þetta meira upp,“
sagði Finnur.
Hann var með liðið í þriðja sæti
dönsku úrvalsdeildarinnar þegar
tímabilið var blásið af vegna kór-
ónuveirunnar og þá fór hann með
liðið í bikarúrslit. Finnur er heilt á
litið sáttur með árangurinn.
„Heilt á litið er ég það. Það er
margt sem ég hefði getað gert öðru-
vísi þegar ég horfi til baka. Það eru
þrír leikir sem svíða svolítið; bikar-
úrslitin gegn Bakken sem við náð-
um ekki að spila nægilega vel og svo
deildarleikir gegn Næstved og
Randers í kjölfarið. Þá duttum við
aðeins á botninn en svo náðum við
að rífa okkur aftur upp eftir það,“
sagði hann. Horsens hefur undan-
farin þrjú ár þurft að horfa á Bakk-
en Bears verða meistara, en þar á
undan varð Horsens danskur meist-
ari tvö ár í röð.
Síðasta vikan mjög skrítin
„Horsens er búið að vera með
betri liðum deildarinnar undanfarin
ár. Menn áttuðu sig á því að það
gæti orðið erfitt að fylgja því eftir á
fyrsta ári en markmiðið var að vera
í topp þremur, komast í undanúrslit
í úrslitakeppninni og í bikarúrslit.
Við vorum á góðri leið með að ná því
en liðin í neðri hlutanum eru tölu-
vert veikari. Það var kannski ekki
formsatriði að komast í undan-
úrslitin en líkurnar voru ansi
miklar.“
Eins og áður hefur komið fram
var tímabilið í Danmörku blásið af
vegna veirunnar og viðurkennir
Finnur að það hafi verið skrítin til-
hugsun að undirbúa lið fyrir leik
sem hann átti ekki endilega von á að
yrði spilaður.
„Það var mjög skrítið. Maður
fylgdist með stöðunni heima og svo
úti á sama tíma. Maður var búinn að
undirbúa sig fyrir þetta. Ég kom
heim fimmtudaginn 12. mars en
fjölskyldan kom heim tveimur vik-
um áður þegar við sáum í hvað
stefndi. Síðasta vikan var mjög
skrítin þar sem maður var að undir-
búa liðið fyrir leiki sem maður
eiginlega vissi að yrðu ekki spilaðir.
Þegar samgöngubannið skall á dreif
ég mig heim.“
Finnur viðurkennir að hann hafi
verið með hugann við að koma heim
eftir tímabilið, en eftir þennan leið-
inlega endi á fyrstu leiktíð, útilokar
hann ekki heldur að taka slaginn í
Danmörku á ný. Staðan er hins veg-
ar óljós vegna þess ástands sem nú
ríkir í heiminum.
Engin drauma atvinnumennska
„Þetta var tveggja ára samningur
með möguleika á einu ári til við-
bótar sem hægt er að semja um sér-
staklega. Við fjölskyldan ætlum að
skoða okkar mál. Fjárhagslega er
þetta engin drauma atvinnu-
mennska, svo það er margt sem
þarf að taka í myndina. Nú þurfum
við að sjá til hvað er best fyrir okk-
ur að gera, bæði atvinnulega og fé-
lagslega líka. Það er erfitt að segja
hvað ég mun gera. Ég var farinn að
hallast að því að koma heim en þessi
leiðinlegi endir lætur mér líða eins
og tíminn minn úti sé ekki endilega
búinn. Núna er hins vegar mikil
óvissa í samfélaginu og erfitt að
segja hvað gerist næst. Félagið er
nánast aðeins rekið af styrkjum frá
bænum og í kring. Það veit enginn
hvernig þau fyrirtæki koma út úr
þessu ástandi. Félagið er mjög vel
rekið og ólíkt því sem gerist heima,
þá treystir það ekki endilega á úr-
slitakeppnina til að fá tekjur. Þetta
er félag sem er búið að klára allt
sitt fyrir úrslitakeppnina. Við bíðum
og sjáum hvernig framhaldið
verður. Svo er sama óvissa ef maður
ákveður að koma heim.“
Finnur var ófeiminn við að láta
skoðanir sínar í ljós á samfélags-
miðlum áður en KKÍ tók þá ákvörð-
un að fresta og síðar aflýsa yfir-
standandi tímabili í körfuboltanum
heima. Hrósaði hann Brynjari Þór
Björnssyni, leikmanni KR og fyrr-
verandi lærisveini sínum, fyrir að
láta í sér heyra og neita að spila
þegar veiran kom fyrst hingað til
lands. Finnur hefði viljað sjá KKÍ
fresta mótunum fyrr.
Komið fram við þá eins og dýr
„Ég hafði sterka skoðun á þessu.
Brynjar opnaði fyrir þessa umræðu
og það var hárrétt metið hjá honum.
Það var skrítið að setja leikmenn í
þá aðstæðu að spila leiki þegar þeir
þurftu kannski að óttast um heils-
una sína. Þú getur passað fjarlægð
fólks og sprittað uppi í stúku en þú
getur það ekki inni á vellinum. Í
lokaumferðunum geta leikirnir skipt
öllu máli og þá er erfitt samtal að
greina frá því að þú ætlir ekki að
spila. Ég hefði viljað sjá menn vera
enn varkárari og stoppa mótið að-
eins fyrr. Maður hefur tekið eftir
íþróttafólki eins og Wayne Rooney
og leikmenn í ensku úrvalsdeildinni
tala um að það sé komið fram við þá
eins og einhver sýningardýr eða
skylmingaþræla. Þetta er fjöl-
skyldufólk sem á ættingja og vini,“
sagði Finnur.
Auðvelt að rífa kjaft á Twitter
Hann skilur gremju sumra liða
eftir að KKÍ blés tímabilið af og
felldi Grindavík úr efstu deild
kvenna og sendi Hött upp í efstu
deild karla á meðan Hamar sat eftir
með sárt ennið. Grindavík átti enn
möguleika á að halda sæti sínu í
deildinni og möguleikar Hamars á
að fara upp í efstu deild voru góðir.
„Auðvitað skilur maður að þeir
séu svekktir. Það var erfitt að finna
leið sem allir væru sáttir við. Ef tvö
efstu liðin hefðu farið upp og tvö
neðstu niður þá hefðu örugglega
Þór Akureyri og Breiðablik orðið
brjáluð. Þeir sem stýra hreyfing-
unni vinna mikið og gott starf og
það er enginn sem ætlar sér að fara
illa með einn eða neinn. Menn eiga
fullan rétt á að vera ósáttir en þetta
var erfið ákvörðun sem var tekin.
Það er auðvelt að vera eins og ég og
rífa kjaft á Twitter en það er erfið-
ara að taka ákvörðunina á endanum.
Auðvitað vorkennir maður Hamri
og Grindavík, en það var fullt af
góðu fólki sem tók þessar ákvarð-
anir og við verðum að taka þeim,“
sagði Finnur Freyr.
Sáttur við flest en þrír
leikir sem svíða svolítið
Fyrsta tímabil Finns í Danmörku var blásið af Útilokar ekki að halda áfram
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sigursæll Þó að Finnur Freyr Stefánsson sé aðeins 36 ára gamall á hann þegar að baki fimm Íslandsmeistaratitla
sem þjálfari í meistaraflokki. KR-ingar urðu meistarar fimm ár í röð undir hans stjórn.
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020
Tom Brady, sigursælasti leikstjórn-
andi allra tíma í NFL-deildinni í
bandaríska ruðningnum, tilkynnti á
samfélagsmiðlum í gær að hann
væri genginn til liðs við Tampa Bay
Buccaneers. ESPN segir að sam-
kvæmt sínum heimildum sé hann
búinn að skrifa undir tveggja ára
samning við félagið.
Brady er 42 ára gamall og hefur
unnið Ofurskálarleikinn, Super
Bowl, sex sinnum með New Eng-
land Patriots á tuttugu ára ferli þar
og fjórum sinnum verið valinn besti
leikmaðurinn í úrslitaleiknum.
Brady á Flórída
næstu tvö árin
AFP
Reyndur Tom Brady kveðst ætla að
spila áfram til 45 ára aldurs.
Blaksamband Íslands hefur ákveðið
að núverandi staða í deildakeppn-
um karla og kvenna á Íslands-
mótinu í blaki verði lokastaða mót-
anna. KA er þar með deildar-
meistari kvenna 2020 og Þróttur
frá Neskaupstað deildarmeistari
karla 2020. Stjórn BLÍ ætlar að
nýta næstu daga til að meta og
ákveða hvort úrslitakeppni Íslands-
mótsins verði haldin, sem og úr-
slitahelgi bikarkeppninnar sem var
blásin af á síðustu stundu vegna
kórónuveirunnar. Niðurstaða á að
liggja fyrir í síðasta lagi 3. apríl.
KA og Þróttur
deildarmeistarar
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Sigursælar KA er ríkjandi Íslands-
meistari kvenna í blaki.
21. mars 1964
Frétt í Morgunblaðinu: Knatt-
spyrnukvikmyndin England –
Heimurinn verður sýnd í
Gamla bíói í dag vegna fjölda
áskorana. Myndin verður ekki
sýnd oftar hér, og er þetta því
síðasta tækifærið sem knatt-
spyrnuunnendum gefst til að
sjá hana.
21. mars 1980
Handboltamaðurinn Viggó
Sigurðsson skýrir frá því í
Morgunblaðinu að hann hafi
ákveðið að yfir-
gefa Barcelona
eftir tímabilið,
eftir að hafa
orðið fyrsti Ís-
lendingurinn til
að vinna
spænska
meistaratitilinn í handknatt-
leik. „Ég er með góð tilboð frá
liðum í V-Þýskalandi og
reikna með að gera samning
við eitthvert þeirra,“ segir
Viggó.
21. mars 1986
„Þetta er gjörsamlega óút-
skýranlegt. Enginn okkar hef-
ur lent í öðru eins og þessu,“
segir Lárus Guðmundsson við
Morgunblaðið eftir að hafa
komist í undanúrslit Evrópu-
keppni bikarhafa í fótbolta á
ævintýralegan hátt með
Uerdingen frá Vestur-Þýska-
landi. Uerdingen vann þá 7:3
sigur á Dynamo Dresden eftir
að hafa verið 1:3 undir í hálf-
leik og 1:5 samanlagt. Lárus
gerði eitt markanna.
21. mars 1991
Kvennalandslið Íslands í
handknattleik sigrar Belgíu,
15:14, í C-heimsmeistara-
keppninni í
Cassano á Ítal-
íu. Rut Bald-
ursdóttir skor-
ar 5 mörk og
Erla Rafnsdótt-
ir 4. Þar með
er fram undan
úrslitaleikur við Spánverja
um 5. sætið og þátttökurétt í
næstu B-keppni.
21. mars 1992
Ísland sigrar Belgíu, 25:16, í
öðrum leik sínum í B-keppni
heimsmeistaramóts karla í
Linz í Austurríki, er með fullt
hús stiga og öruggt í milli-
riðil. Valdimar Grímsson
skorar 8 mörk, Sigurður
Bjarnason og Gunnar Andrés-
son 5 hvor.
21. mars 2000
„Ég er í sjöunda bekk í Álfta-
mýrarskóla og námið er ekki
orðið svo erfitt
þannig að mér
gengur vel að
sameina skól-
ann og fim-
leikana,“ segir
hin 12 ára
gamla Sif Páls-
dóttir úr Ármanni við
Morgunblaðið eftir að hafa
orðið Íslandsmeistari fullorð-
inna í áhaldafimleikum.
21. mars 2015
Eiður Smári Guðjohnsen er
valinn í íslenska landsliðið í
knattspyrnu á ný eftir sextán
mánaða hlé fyrir leik gegn
Kasakstan í undankeppni EM.
Í fréttaskýringu í Morgun-
blaðinu er sagt að þjálfar-
arnir hafi sem minnst viljað
gera úr endurkomu Eiðs en
hún sé afar mikilvæg vegna
ástands á öðrum sóknar-
mönnum landsliðsins um þess-
ar mundir.
Á ÞESSUM DEGI