Morgunblaðið - 21.03.2020, Side 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Það er vissulega erfitt að segja það
en ég sé mig í raun ekki spila fót-
bolta aftur,“ sagði Harpa Þorsteins-
dóttir, þriðji markahæsti leikmaður
efstu deildar kvenna í knattspyrnu
frá upphafi, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Harpa hefur ákveðið að leggja
skóna á hilluna eftir afar farsælan
feril en hún er ólétt að sínu þriðja
barni. Hún á að baki 252 leiki í efstu
deild með Stjörnunni og Breiðabliki
þar sem hún skoraði 181 mark. Hún
lék stærstan hluta ferilsins með upp-
eldisfélagi sínu Stjörnunni þar sem
hún varð fjórum sinnum Íslands-
meistari með liðinu og þrívegis bik-
armeistari.
Harpa lék síðast með Stjörnunni
sumarið 2018, en sleit krossband í
hné í bikarúrslitaleik gegn Breiða-
bliki á Laugardalsvelli í ágúst og
hefur ekki spilað fótbolta síðan.
„Eftir að ég sleit krossbandið
2018 fór ég að skoða málin betur og
ég var í raun aldrei ákveðin hvort ég
ætlaði mér að snúa aftur á knatt-
spyrnuvöllinn. Það er ekkert grín að
koma til baka eftir svona meiðsli og
þú þarft að æfa af 150% krafti þess
að ná upp fyrri styrk. Það er ekki
auðvelt þegar að maður er með fjöl-
skyldu og ég í fullri vinnu þannig að
að lokum þá ákvað ég að segja þetta
gott.“
Meiri ábyrgð í landsliðinu
Harpa lék 67 A-landsleiki fyrir Ís-
land þar sem hún skoraði 19 mörk á
árunum 2006 til 2018. Hennar bestu
leikir í bláa búningnum komu í und-
ankeppni EM 2017 þar sem hún var
markahæsti leikmaður undan-
keppninnar með 10 mörk í sex leikj-
um.
„Þessi undankeppni fyrir EM
2017 var klárlega hápunkturinn á
mínum landsliðsferili. Ég var að
spila minn besta fótbolta þar og ég
fékk mun meiri ábyrgð í landsliðinu
eftir að Freyr Alexandersson tók við
þjálfun liðsins árið 2013. Það var
alltaf gríðarlegur heiður að spila fyr-
ir landsliðið og ég fann alltaf fyrir
miklu stolti þegar ég klæddist bláa
búningnum.“
Meistari eftir barneignarfrí
Eins og áður segir varð Harpa
fjórum sinnum Íslandsmeistari með
Stjörnunni, árin 2011, 2013, 2014 og
2016. Þá varð hún bikarmeistari með
liðinu árin 2012, 2014 og 2015.
„Það er margt sem stendur upp úr
á mínum knattspyrnuferli og ég á
mjög margar frábærar minningar,
sérstaklega með Stjörnunni. Allir
titlar eru sætir en það var hrikalega
gaman að koma inn í Stjörnuliðið ár-
ið 2011 á miðju tímabili eftir barn-
eign. Ég náði að spila seinni hlutann
á tímabilinu og að enda sumarið á
titli var gríðarlega eftirminnilegt.
Eins stendur Íslandsmeistaratitilinn
árið 2016 upp úr líka því það var
mikið um meiðsli í okkar herbúðum
á þeim tíma. Við náðum í raun aldrei
að stilla upp sama byrjunarliðinu allt
sumarið og það var þess vegna gríð-
arlega sætt að taka þann titil því það
gekk einhvernveginn allt upp þetta
sumar.
Langhlaup og spretthlaup
Það var líka alltaf sérstakt að
spila þessa bikarúrslitaleiki og það
er meira adrenalín og kikk að vinna
bikarmeistaratitil en Íslandsmeist-
aratitil. Annað er langhlaup og hitt
er spretthlaup. Mér hefur alltaf
gengið vel í þessum úrslitaleikjum
sem er að sjálfsögðu jákvætt en það
var alltaf gaman að spila á Laugar-
dalsvelli og ennþá skemmtilegra að
taka á móti bikar. Persónulega
fannst mér það svo mikill heiður
þegar ég var valin knattspyrnukona
ársins hjá KSÍ árið 2014 og það er
mitt stærsta persónulega afrek á
ferlinum.“
Tölfræðin aukaatriði
Harpa er þriðji markahæsti leik-
maður efstu deildar frá upphafi með
181 mark. Aðeins Margrét Lára
Viðarsdóttir, 207 mörk, og Olga
Færseth, 269 mörk, hafa skorað
meira en hún.
„Ég hef ekkert fylgst neitt sér-
staklega mikið með tölfræðinni í
gegnum tíðina, aðallega vegna þess
að ég var ekki að skora jafn mikið á
fyrri hluta ferilsins og þeim seinni.
Þegar maður var ungur þá var mað-
ur meira að spá í mörkin sem maður
skoraði og tölfræðinni en það breyt-
ist einhvern veginn þegar maður
eldist og þá pælir maður minna í
þessu.“
Stjörnuliðið 2014 varð bæði Ís-
lands- og bikarmeistari og Harpa
viðurkennir að það lið hafi verið eitt
af þeim betri sem hún hafi spilað
með.
„Stjörnuliðið 2014 var rosalegt lið,
það má alveg segja það. Margar
stelpur sem spiluðu í því liði eru
ennþá lykilmenn í landsliðinu og það
segir kannski mikið um styrkleika
liðsins. Þetta voru mestallt stelpur
með alvöru Stjörnuhjarta og þannig
lið ná oft ansi langt,“ bætti Harpa
við í samtali við Morgunblaðið.
Undankeppni EM há-
punktur á landsliðsferli
Harpa Þorsteinsdóttir leggur fót-
boltaskóna á hilluna Erfitt að ætla
að koma til baka eftir krossbandsslit
Morgunblaðið/Eggert
Markaskorari Harpa Þorsteinsdóttir skoraði 19 mörk fyrir íslenska lands-
liðið, tíu þeirra í undankeppninni fyrir Evrópumótið 2017.
Leikur Íslands og Rúmeníu í undan-
úrslitum umspilsins fyrir EM karla
2020 í knattspyrnu á að fara fram á
Laugardalsvellinum fimmtudaginn
4. júní, svo framarlega sem keppni
verði komin af stað á nýjan leik.
Liðið sem vinnur leikinn mætir
annaðhvort Búlgaríu eða Ungverja-
landi í úrslitaleik um sæti á EM
fimm dögum síðar, þriðjudaginn 9.
júní. UEFA hefur jafnframt til-
kynnt að keppnin verði áfram
kennd við árið 2020, enda þótt loka-
keppninni hafi verið frestað til
sumarsins 2021.
Rúmenar eiga að
koma 4. júní
Morgunblaðið/Eggert
EM 2020 Leikurinn við Rúmena á
að fara fram eftir 75 daga.
Tímabilinu hjá Halldóri Stefáni
Haraldssyni og leikmönnum hans í
norska B-deildarliðinu Volda er
lokið vegna kórónuveirunnar.
Norska handknattleikssambandið
ákvað í gær að senda Rælingen upp
í efstu deild, en ekki Volda, þrátt
fyrir að Volda væri í þriðja sæti og
Rælingen í fjórða sæti B-deildar
kvenna. „Maður er í raun bara
sjokkeraður. Það að liðið sem er
svo í fjórða sæti B-deildarinnar
skuli fara upp um deild er algjör-
lega fáránlegt,“ sagði Halldór í við-
tali sem birtist á mbl.is í gær.
Maður er í raun
bara sjokkeraður
Ljósmynd/Volda
Ósáttur Halldór Stefán Haraldsson
er langt frá því að vera sáttur.
Framkvæmd Ólympíuleikanna
2020 hefur valdið mér ákveðnu
hugarangri undanfarna daga.
Íþróttamenn keppast við að stíga
fram og kalla eftir því að leik-
unum verði frestað vegna kór-
ónuveirunnar sem nú herjar á
heimsbyggðina. Forsætisráðherra
Japans, Shinzo Abe, steig fram á
dögunum og lýsti því yfir að ekki
kæmi til greina að fresta leik-
unum.
Í gær birtist viðtal við fram-
kvæmdastjóra ÍSÍ, Líneyju Rut
Halldórsdóttur, í Morgunblaðinu
sem undirritaður tók þar sem hún
talaði um stór orð hjá forsætis-
ráðherranum. Stór orð voru ekki
það fyrsta sem mér datt persónu-
lega í hug þegar ég sá fréttina,
mér fannst þetta meira bara óá-
byrg yfirlýsing hjá Japananum,
sem virðist ekki vera í miklum
takti við raunveruleikann þessa
dagana.
Það er ekki langt síðan ráðherra
ólympíumála í Japan, Yoshitaka
Sakurada, steig fram og sagði að
það kæmi vel til greina að fresta
leikunum fram á haustið. Japanir
virðast hins vegar hafa tekið
mikla u-beygju í málinu. Í fyrra-
dag kom svo tilkynning frá Al-
þjóðaólympíusambandinu um að
allir ættu að halda sínu striki fyrir
leikana og að stefnt væri að því
að þeir myndu hefjast 24. júlí.
Við lifum á skrítnum og for-
dæmalausum tímum. Að tala um
Ólympíuleikana eins og einhverja
heilaga messuhátíð sem ekki
megi raska er hin mesta þvæla.
Útgöngubann ríkir víða í heim-
inum og hvernig á fólk að undir-
búa sig almennilega fyrir þessa
leika þegar það kemst ekki út úr
húsi?
Hættið þesum vandræðalega
leikþætti, það geisar heimsfar-
aldur sem á eftir að ná hámarki,
þannig að vinsamlegast frestið
leikunum.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
ÍSÍ og UMFÍ til-
kynntu í gær að
allt skipulagt
íþróttastarf hér
á landi yrði lagt
niður vegna út-
breiðslu kór-
ónuveirunnar.
Óljóst er hve
lengi bannið
mun standa yfir.
„Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands og
UMFÍ treysta því að öll íþrótta-
hreyfingin muni fara að þessum
afgerandi tilmælum og að allt
íþróttastarf falli tímabundið nið-
ur. Það er augljóslega ekki auð-
velt fyrir íþróttahreyfinguna en
við þessar aðstæður er mjög mik-
ilvægt að þjóðin standi saman sem
einn maður og að íþróttahreyf-
ingin sýni fulla samstöðu og
ábyrgð,“ segir í yfirlýsingu sam-
bandanna í gær.
„Við viljum jafnframt minna á
mikilvægi þess að landsmenn
haldi áfram að hreyfa sig þrátt
fyrir að skipulagt íþróttastarf sé
ekki til staðar. Þá er mikilvægt að
félögin haldi áfram að þjónusta
sína iðkendur með þeim hætti sem
mögulegt er, með fjar- og heima-
æfingu,“ segir sömuleiðis í yfir-
lýsingu sambandanna.
Íþróttastarf
lagt niður
ótímabundið
Aníta
Hinriksdóttir
Harpa er 33 ára gömul og hóf meistaraflokksferlinn með Stjörnunni 15
ára gömul árið 2002.
Harpa lék með Stjörnunni allan sinn feril fyrir utan þrjú ár í Breiðabliki,
2008 til 2010, og spilaði jafnframt með Charlton í ensku úrvalsdeildinni í
tvo mánuði áður en tímabilið 2007 hófst.
Harpa er næstleikjahæsti leikmaður úrvalsdeildar kvenna frá upphafi
með 252 leiki. Hún er þriðja leikjahæst hjá Stjörnunni með 205 leiki og lék
47 leiki í deildinni með Breiðabliki.
Harpa er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar frá upphafi með 181
mark. Hún er markahæst Stjörnukvenna með 158 mörk og skoraði 23
mörk fyrir Breiðablik.
Harpa varð fjórum sinnum Íslandsmeistari með Stjörnunni og þrisvar
bikarmeistari á árunum 2011 til 2016.
Harpa lék 67 A-landsleiki frá 2006 til 2018 og var með landsliðinu í loka-
keppni EM 2013 og 2017. Hún skoraði 19 mörk og er sjöunda markahæsta
landsliðskona Íslands frá upphafi.
Harpa Þorsteinsdóttir