Morgunblaðið - 21.03.2020, Síða 44

Morgunblaðið - 21.03.2020, Síða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020 VIÐ LEITUM AÐ LISTAVERKUM Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónskáldið Atli Örvarsson er alltaf með mörg járn í eldinum og þessa dagana er hann að ljúka við tónlist við gamanmyndina Eurovision sem Netflix tekur til sýninga síðar á árinu. Gamanleikarinn Will Ferrell er aðalmaðurinn á bak við þá mynd, átti hugmyndina að henni og skrif- aði handrit hennar með Andrew nokkrum Steele, er einn framleið- enda hennar og leikur auk þess í myndinni eina af aðalpersónunum, náunga að nafni Lars Erickssong. Aðrir helstu leikarar eru Rachel McAdams sem leikur Sigrit Eiricks- dottir og Pierce Brosnan sem leikur Erick Erickssong en einnig leika í myndinni söngkonan Demi Lovato og íslensku leikararnir Ólafur Darri Ólafsson, Björn Hlynur Haraldsson, Nína Dögg Filippusdóttir og Jó- hannes Haukur Jóhannesson. Eins og fjallað hefur verið um í íslenskum fjölmiðlum segir í mynd- inni af íslenskum þátttakendum í Eurovision-söngvakeppninni sem Ferrell og McAdams leika og var kvikmyndin tekin upp að stórum hluta á Húsavík í október í fyrra. SinfoniaNord leikur m.a. tónlist Atla við kvikmyndina og hafa upp- tökur farið fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri en Atli býr og starfar í bænum. Upptökur á tónlist Atla voru um það bil að hefjast þegar viðtalið fór fram í síðustu viku en Atli sagðist enn vera að semja þó komið væri að þeim. Var þá ekki búið að aflýsa Eurovision-söngvakeppninni. Flutn- ingur er bæði í höndum SinfoNord og stakra hljóðfæraleikara og man- dólín, gítar og píanó eru meðal hljóðfæra sem koma við sögu. Því er ekki aðeins sinfóstemning heldur líka hljómsveitarstemning í tónlist- inni, að sögn Atla. Hægri höndin vestur Atli er spurður að því hvort kór- ónuveiran og bann við flugi frá Evr- ópulöndum til Bandaríkjanna hafi haft áhrif á hans störf en Atli er tíð- ur gestur í Los Angeles. „Ég var að fljúga frá Bandaríkjunum bara í fyrradag,“ segir Atli og að flug- bannið setji helst það strik í reikn- inginn að einn af samverkamönnum hans hafi verið sendur frá Íslandi til Bandaríkjanna degi fyrir flugbann. Fyrir vikið segist Atli þurfa að vanda sig meira við skipulagningu en ella þar sem fyrrnefndur sam- starfsmaður hafi verið hans hægri hönd í því að halda utan um hvað eigi eftir að taka upp, hvað sé búið að taka upp og fleira þess háttar. „En kórónuvírusinn hefur ekki ennþá áhrif á fjarskipti og inter- netið þannig að þetta ætti að vera í lagi,“ bætir Atli við. Líkaði tónlist Atla Við snúum okkur að Eurovision og Atli er spurður að því hvort ná- lægð hans við tökustað myndarinn- ar, Húsavík, hafi eitthvað haft um það að segja að hann honum var boðið þetta verkefni. „Nei, ég var nú í Los Angeles þegar ég fékk þetta verkefni,“ svarar hann. En veit hann þá hvers vegna hann fékk verkefnið? „Já … kannski hjálpaðist ýmislegt að, að hluta til kom mitt nafn upp af því ég er frá Íslandi og leikstjórinn heyrði tónlist sem ég gerði fyrir kvikmyndina The Edge of Seventeen og fannst músíkin í henni passa inn í það sem hann sá fyrir sér,“ svarar Atli. Tónlistin í þeirri mynd hafi verið í anda þess sem hann var að leita að. –Hverju var leikstjórinn að leita að? „Það var aðallega ákveðið píanó- sánd sem hann heillaðist af og ein- hvers konar tónn í músíkinni sem honum fannst að myndi passa við húmorinn í myndinni. Líka einhvers konar hreinskilni og heiðarleiki sem honum fannst skína í gegnum tón- listina í The Edge of Seventeen,“ svarar Atli. Sú kvikmynd hafi verið dramatísk gamanmynd um unglinga og kvíða. Alvarlegt og hrikalega fyndið „Eins og svo oft er með gaman- myndir – og þá jafnvel þessa Euro- vision-mynd – er rétta leiðin að gera mjög alvarlega mynd um fólk sem er að gera mjög fyndna hluti. Sú er kannski nálgunin í báðum þessum myndum,“ útskýrir Atli. Eurovision sé hreinræktuð gaman- mynd og farin sú leið að segja al- varlega frá keppninni frjá sjónar- horni sögupersóna. „Þegar allt kemur til alls er þetta bara ástar- saga en kannski sú kvikmynd sem kemst næst því að vera hreinrækt- uð grínmynd af þeim sem ég hef samið við.“ –Máttu eitthvað segja frá mynd- inni? „Ekki í smáatriðum og það er heillavænlegast að þegja yfir því hvað gerist,“ segir Atli kíminn. En má þó spyrja að því hvort myndin sé fyndin? „Mér finnst hún spreng- hlægileg,“ svarar Atli. –Er hætt við því að einhverjir Ís- lendingar móðgist yfir þessu Íslend- ingagríni Ferrell? „Kannski móðgast einhverjir en ég held að þeir sem hafi einhvern húmor muni bara hafa gaman af þessu.“ –Þú hefur ekki hlustað á ABBA til að koma þér í rétta gírinn? „Nei, ég þurfti þess ekki því ABBA er í myndinni,“ segir Atli og hlær við. Til áréttingar er ABBA- söngsveitin sjálf ekki í myndinni heldur gamlar upptökur af henni að keppa í Eurovision í Brighton árið 1974. Gullnáma fyrir grínista Ferrell er kvæntur sænskri leik- konu, Vivecu Paulin, og mun áhugi hans á Eurovision hafa komið þaðan enda Svíar gríðarlegir áhugamenn um Eurovision. „Ég giska á að hann hafi séð hvers konar gullnáma fyrir húmorista þetta gæti orðið og feng- ið þessa hugmynd að gera þessa mynd,“ segir Atli. Sem fyrr sagði var ekki búið að slá Eurovision að þegar viðtalið fór fram og sagðist hann telja að frum- sýna ætti myndina um svipað leyti og keppnin yrði haldin. Nú verður því miður engin Eurovision og eng- in leið að vita hvernig Daða Frey og Gagnamagninu hefði gengið í Rotterdam. En það er eftir sem áð- ur nóg að gera hjá tónskáldinu Atla Örvarssyni og frekari fróðleik um hann og fyrri verkefni hans má sjá á vefsíðu með eftirfarandi vefslóð: atliorvarsson.com. „Mér finnst hún sprenghlægileg“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Spaugilegt „Þetta er alvarlegt mál fyrir þeim en okkur finnst það sem er að gerast auðvitað hrikalega fyndið,“ segir Atli um Eurovision. dsdsdsdsdsdsd Grínisti Will Ferrell er með fremstu og vinsælustu gamanleikurum Banda- ríkjanna og auk þess er hann mikilvirkur framleiðandi. Eurovision mun hann hafa kynnst í gegnum sænska eiginkonu sína, Vivecu Paulin. Rachel McAdams Pierce Brosnan Ólafur Darri Ólafsson  Atli Örvarsson leggur lokahönd á tónlist við gamanmynd Will Ferrell um Eurovision  Alvarleg nálgun á bráðfyndið efni, segir Atli um kvikmyndina sem fjallar um íslenska keppendur í Eurovision Björn Hlynur Haraldsson Jóhannes Haukur Jóhannesson Nína Dögg Filippusdóttir Peter Gelb, stjórnandi Metropolit- an óperunnar í New York, hefur sagt upp öllum starfsmönnum hljómsveitar hússins og kór frá og með 12. mars síðastliðnum. Fá starfsmennirnir greidd laun út mánuðinn, að því er fram kemur á menningarfréttasíðunni Slipped Disc en engin tilkynning um þetta hafði borist í gær þegar fréttin var skrifuð. Starfsmennirnir munu þó halda sjúkratryggingum sínum og tryggingum fyrir hljóðfæri. Er þetta í fyrsta sinn sem beitt er ákvæði í ráðningarsamningum um óviðráðanlegar aðstæður, „force majeure“ eins og þær eru nefndar, sem kórónuveirufarald- urinn flokkast vissulega undir. Slíkt ákvæði hefur verið í ráðning- arsamningum Metropolitan allt frá sjöunda áratugnum og hefur aldrei verið beitt áður, að því er fram kemur í frétt vefsíðunnar fyrr- nefndu. Hljómsveit og kór Metropolitan sagt upp AFP Neyðarúrræði Uppsagnir hljóðfæraleik- ara og söngvara við Metropolitan-óperuna í New York eru með vísan til óviðráðan- legra aðstæðna, force majeure, þ.e. kórónuveirufaraldursins sem nú geisar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.