Morgunblaðið - 21.03.2020, Page 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þó að þær væru kornungar, með-
limir Pascal Pinon, er þær tóku þátt
í Músíkilraunum árið 2009, var yfir
þeim furðu mikið öryggi og einkum
sá maður það í Jófríði Ákadóttur,
sem söng og lék þar á gítar. „Fólk
er alltaf að hafa
samband og biðja
okkur að spila.
Vinatölurnar á
myspacesíðunni
ruku svo upp í
kjölfarið,“ sagði
Jófríður við mig, stuttu eftir
keppni. Já, það er langt síðan
greinilega, þegar vísað er í nánast
gleymda samfélagsmiðla!
Jófríður hefur verið einkar
virk allar götur síðan, með téðri
sveit, svo Samaris og einnig var
hún hluti af ofurtríóinu Gangly. Um
síðir steig hún svo fram sem sóló-
listamaður. Árið 2017 kom sólóplat-
an Brazil út og hefur listamaðurinn
einbeitt sér að einyrkjastörfum síð-
an þá. Og sem slík hefur hún vakið
athygli út fyrir landsteinana og
Hluti af mér,
hluti af þér
skal ekki undra. Í grein sem ég
skrifaði árið 2017, undir heitinu
„Árið hennar Jófríðar“, lýsti ég
stórkarlalega yfir: „Þeir sem hafa
séð Jófríði á sviði, heyrt tónlist
hennar eða þá í henni þar sem hún
úttalar sig um list sína þurfa ekki
að efast um náttúruhæfileika henn-
ar á sviðinu.“
Á New Dreams er Jófríður
með alla þræði í hendi sér og upp-
tökustýrði m.a. sjálf. Þriggja ára
stoppið á milli platna var útskýrt að
einhverju leyti í viðtali við þetta
blað fyrir stuttu; hún hafi upplifað
tilgangsleysi á tímabili og segir:
„Ef maður lendir í því að líða illa
eða upplifa sig einmana er rosalega
erfitt fyrir mann að átta sig á því
hvað maður á að gera.“ Tafir hafi
svo verið þegar þurft hafi að
ákveða fráganginn á heildarpakk-
anum á meðan tónlistin hafi flætt
tiltölulega auðveldlega.
Og hvað er að gerast þar, svo
við kveðjum loks þessar bakgrunns-
upplýsingar? Jú, að einhverju leyti
er þetta framhald af Brazil, að því
leytinu til að hljóðheimurinn er
auðþekkjanlegur. Við erum enn í
þessu draumkennda, umlykjandi
flæði sem Jófríður magnar upp með
tiltölulegri hægð. Fyrir mig, sem
poppfræðing, er líka athyglisvert
að finna og heyra á hverju hún
byggir. Hér erum við með íslenskan
tónlistarmann af yngri kynslóð sem
sækir í brunn samlanda sinna sem á
undan fóru. Björk, Sigur Rós, múm.
Alla þessa meistara má greina í list
Jófríðar. Hún sagði mér einu sinni,
glettin, að íslenskar tónlistarkonur
gætu ekki opnað munninn án þess
að vera líkt við Björk.
Platan hefst á „Care for you“,
söngröddin hvíslandi og næm og
þessi handanheimsára yfir allri
framvindu. Platan er þar allan tím-
ann, líður áfram á milli endalauss
bils á milli svefns og vöku. Mjúkir
raftaktar leiða okkur inn í „Taking
a part of me“ og unnið er með söng-
röddina, hún er lækkuð svo hún
minnir á karlmannsrödd en einnig
tvöfölduð, þannig að Jófríður syng-
ur með sjálfri sér. Lög eins og
„Think to fast“ kalla fram Asíu,
jafnvel David Sylvian og Jófríður
nær í raun mesta fluginu í lág-
stemmdustu smíðunum. „Dive in“
fer nærri Talk Talk og því sem
Sylvian var að gera á Brilliant
Trees (titillaginu sérstaklega) og
Secrets of the Beehive. Söngröddin
er einkar tilfinningaþrungin í þess-
um lögum, sjá líka „Falls (no
wonder)“.
New Dreams er stöndugt verk,
kemur sannarlega ekki úr engu eins
og ég hef rakið en framkvæmdin er
slík að rödd listakonunnar tónar
sterkt yfir verkinu og gefur henni
ósvikinn, frumlegan blæ.
» Við erum enn íþessu draumkennda
umlykjandi flæði sem
Jófríður magnar upp
með tiltölulegri hægð.
Ný hljóðversplata Jófríðar Ákadóttur, sem kallar
sig JFDR, kallast New Dreams. Pistilritari tekur
gripinn til kostanna og setur hann í samhengi við
fyrri verk listamannsins.
Draumar Jófríður
Ákadóttir vinnur með
nýja drauma og gamla
á nýútkominni skífu.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
Klassísk gæða
hönnun á
góðu verði
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Mikil sala!
Góður sölutími framundan.
Óskum eftir öllum tegundum
eigna á skrá.
„Vorið kemur, sumarið kemur – og
laxinn kemur í ána – og veiran mun
fara!“ sagði Bubbi Morthens hvetj-
andi öllum þeim sem fylgdust með
tónleikum hans á sviði Borgarleik-
hússins í hádeginu í gær. Í salnum
voru örfáir, aðeins tæknimenn og
fulltrúar fjölmiðla, en tónleikunum
var streymt á netinu. Þeir voru liður í
dagskránni „Borgó í beinni“, en leik-
húsið býður þessa daga upp á allra-
handa viðburði sem hægt er að fylgj-
ast með á netinu. Þetta voru fyrstu
föstudagstónleikar Bubba á þessum
vettvangi, haldnir í tengslum við sýn-
inguna 9 líf sem frumsýnd var um
liðna helgi við frábærar viðtökur en
liggur nú í dvala.
„Svo lengi sem samkomubann rík-
ir þá ætla ég að vera hér á föstudög-
um og spila,“ sagði Bubbi. „Við þurf-
um ekki á úrtölufólki að halda sem
segir okkur að allt muni fara á versta
veg. Það fólk hefur klætt sig í ham
óttans og óttinn er okkar versti óvin-
ur á tímum sem þessum.“ Hann
bætti við að á tímum sem þessum
þyrftum við „hugrakkt fólk, með
kjark. Við þurfum sjálf að grafa djúpt
til að ná í hugrekkið okkar og kjark-
inn, við þurfum að standa saman,
ekki láta óttann sundra okkur.“
Tónleikarnir stóðu í nær fimmtíu
mínútur og flutti Bubbi nokkur af
vinsælustu lögum sínum, lög sem öll
koma fyrir í sýningunni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skemmtun „Látum ekki óttann ná okkur,“ sagði Bubbi og brýndi áheyrendur við skjái sína, hvar sem þeir voru
staddir, til dáða. Hann flutti nokkur af þekktustu lögum sínum, eins og Ísbjarnarblús, Blindsker og Svartan Afgan.
Bubbi á breyttum tímum
Fámennt Fáir voru í salnum en án efa fylgdust margir með flutningi Bubba.