Morgunblaðið - 21.03.2020, Síða 45

Morgunblaðið - 21.03.2020, Síða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Þó að þær væru kornungar, með- limir Pascal Pinon, er þær tóku þátt í Músíkilraunum árið 2009, var yfir þeim furðu mikið öryggi og einkum sá maður það í Jófríði Ákadóttur, sem söng og lék þar á gítar. „Fólk er alltaf að hafa samband og biðja okkur að spila. Vinatölurnar á myspacesíðunni ruku svo upp í kjölfarið,“ sagði Jófríður við mig, stuttu eftir keppni. Já, það er langt síðan greinilega, þegar vísað er í nánast gleymda samfélagsmiðla! Jófríður hefur verið einkar virk allar götur síðan, með téðri sveit, svo Samaris og einnig var hún hluti af ofurtríóinu Gangly. Um síðir steig hún svo fram sem sóló- listamaður. Árið 2017 kom sólóplat- an Brazil út og hefur listamaðurinn einbeitt sér að einyrkjastörfum síð- an þá. Og sem slík hefur hún vakið athygli út fyrir landsteinana og Hluti af mér, hluti af þér skal ekki undra. Í grein sem ég skrifaði árið 2017, undir heitinu „Árið hennar Jófríðar“, lýsti ég stórkarlalega yfir: „Þeir sem hafa séð Jófríði á sviði, heyrt tónlist hennar eða þá í henni þar sem hún úttalar sig um list sína þurfa ekki að efast um náttúruhæfileika henn- ar á sviðinu.“ Á New Dreams er Jófríður með alla þræði í hendi sér og upp- tökustýrði m.a. sjálf. Þriggja ára stoppið á milli platna var útskýrt að einhverju leyti í viðtali við þetta blað fyrir stuttu; hún hafi upplifað tilgangsleysi á tímabili og segir: „Ef maður lendir í því að líða illa eða upplifa sig einmana er rosalega erfitt fyrir mann að átta sig á því hvað maður á að gera.“ Tafir hafi svo verið þegar þurft hafi að ákveða fráganginn á heildarpakk- anum á meðan tónlistin hafi flætt tiltölulega auðveldlega. Og hvað er að gerast þar, svo við kveðjum loks þessar bakgrunns- upplýsingar? Jú, að einhverju leyti er þetta framhald af Brazil, að því leytinu til að hljóðheimurinn er auðþekkjanlegur. Við erum enn í þessu draumkennda, umlykjandi flæði sem Jófríður magnar upp með tiltölulegri hægð. Fyrir mig, sem poppfræðing, er líka athyglisvert að finna og heyra á hverju hún byggir. Hér erum við með íslenskan tónlistarmann af yngri kynslóð sem sækir í brunn samlanda sinna sem á undan fóru. Björk, Sigur Rós, múm. Alla þessa meistara má greina í list Jófríðar. Hún sagði mér einu sinni, glettin, að íslenskar tónlistarkonur gætu ekki opnað munninn án þess að vera líkt við Björk. Platan hefst á „Care for you“, söngröddin hvíslandi og næm og þessi handanheimsára yfir allri framvindu. Platan er þar allan tím- ann, líður áfram á milli endalauss bils á milli svefns og vöku. Mjúkir raftaktar leiða okkur inn í „Taking a part of me“ og unnið er með söng- röddina, hún er lækkuð svo hún minnir á karlmannsrödd en einnig tvöfölduð, þannig að Jófríður syng- ur með sjálfri sér. Lög eins og „Think to fast“ kalla fram Asíu, jafnvel David Sylvian og Jófríður nær í raun mesta fluginu í lág- stemmdustu smíðunum. „Dive in“ fer nærri Talk Talk og því sem Sylvian var að gera á Brilliant Trees (titillaginu sérstaklega) og Secrets of the Beehive. Söngröddin er einkar tilfinningaþrungin í þess- um lögum, sjá líka „Falls (no wonder)“. New Dreams er stöndugt verk, kemur sannarlega ekki úr engu eins og ég hef rakið en framkvæmdin er slík að rödd listakonunnar tónar sterkt yfir verkinu og gefur henni ósvikinn, frumlegan blæ. » Við erum enn íþessu draumkennda umlykjandi flæði sem Jófríður magnar upp með tiltölulegri hægð. Ný hljóðversplata Jófríðar Ákadóttur, sem kallar sig JFDR, kallast New Dreams. Pistilritari tekur gripinn til kostanna og setur hann í samhengi við fyrri verk listamannsins. Draumar Jófríður Ákadóttir vinnur með nýja drauma og gamla á nýútkominni skífu. N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Klassísk gæða hönnun á góðu verði GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Mikil sala! Góður sölutími framundan. Óskum eftir öllum tegundum eigna á skrá. „Vorið kemur, sumarið kemur – og laxinn kemur í ána – og veiran mun fara!“ sagði Bubbi Morthens hvetj- andi öllum þeim sem fylgdust með tónleikum hans á sviði Borgarleik- hússins í hádeginu í gær. Í salnum voru örfáir, aðeins tæknimenn og fulltrúar fjölmiðla, en tónleikunum var streymt á netinu. Þeir voru liður í dagskránni „Borgó í beinni“, en leik- húsið býður þessa daga upp á allra- handa viðburði sem hægt er að fylgj- ast með á netinu. Þetta voru fyrstu föstudagstónleikar Bubba á þessum vettvangi, haldnir í tengslum við sýn- inguna 9 líf sem frumsýnd var um liðna helgi við frábærar viðtökur en liggur nú í dvala. „Svo lengi sem samkomubann rík- ir þá ætla ég að vera hér á föstudög- um og spila,“ sagði Bubbi. „Við þurf- um ekki á úrtölufólki að halda sem segir okkur að allt muni fara á versta veg. Það fólk hefur klætt sig í ham óttans og óttinn er okkar versti óvin- ur á tímum sem þessum.“ Hann bætti við að á tímum sem þessum þyrftum við „hugrakkt fólk, með kjark. Við þurfum sjálf að grafa djúpt til að ná í hugrekkið okkar og kjark- inn, við þurfum að standa saman, ekki láta óttann sundra okkur.“ Tónleikarnir stóðu í nær fimmtíu mínútur og flutti Bubbi nokkur af vinsælustu lögum sínum, lög sem öll koma fyrir í sýningunni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skemmtun „Látum ekki óttann ná okkur,“ sagði Bubbi og brýndi áheyrendur við skjái sína, hvar sem þeir voru staddir, til dáða. Hann flutti nokkur af þekktustu lögum sínum, eins og Ísbjarnarblús, Blindsker og Svartan Afgan. Bubbi á breyttum tímum Fámennt Fáir voru í salnum en án efa fylgdust margir með flutningi Bubba.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.