Morgunblaðið - 21.03.2020, Síða 48
Astaxanthin frá Algalíf er 100% náttúrulegt
hágæða bætiefni, framleitt á sjálfbæran hátt
við kjöraðstæður sem tryggja að innhaldið skili
sér til neytenda.
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir, Costco og flestum stórmörkuðum.
■ Rannsóknir sýna að Astaxanthin er allt að 6000
sinnum sterkara andoxunarefni en C vítamín.
■ Náttúrulegasta og hreinasta uppspretta
astaxanthins finnst í smáþörungum sem kallast
Haematococcus pluvialis, en þeir framleiða
þetta sem varnarefni gegn erfiðum aðstæðum í
umhverfinu?
Styrktu ónæmiskerfið með Astaxanthin!*
* Park JS et al. Nutr Metab. 2010;7:18.
Astaxanthin
Eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar
Menningarhátíðum víða um lönd hefur verið
frestað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og
hafa skipuleggjendur kvikmyndahátíðarinnar í
Cannes nú sent frá sér tilkynningu þess efnis að
hátíðin verði ekki haldin 12.-23. maí eins og til
stóð. Mögulega verði hún haldin í lok júní og
fram í byrjun júlí en hafa verði samráð við frönsk
yfirvöld og borgarstjórnina í Cannes hvað það
varðar sem og aðra sem koma að skipulagi há-
tíðarinnar.
Kvikmyndahátíðinni í Cannes
frestað vegna kórónuveiru
LAUGARDAGUR 21. MARS 81. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Eftir að ég sleit krossbandið 2018 fór ég að skoða málin
betur og ég var í raun aldrei ákveðin hvort ég ætlaði mér
að snúa aftur á knattspyrnuvöllinn. Það er ekkert grín að
koma til baka eftir svona meiðsli,“ segir Harpa Þorsteins-
dóttir, ein fremsta knattspyrnukona landsins um árabil,
sem nú hefur ákveðið að leggja fótboltaskóna á hilluna.
Hún er ein sú leikja- og markahæsta í sögu íslenskrar
knattspyrnu. »41
Ekkert grín að koma til baka
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Við stöndum mjög vel og erum í há-
marki hamingjunnar í augnablikinu,“
segir Aðalsteinn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Bindindissamtakanna
IOGT á Íslandi. „Við erum á góðum
stað í góðu húsi í hæstu hæðum á
Vatnsendahæðinni, byggjum á
traustum grunni, erum mjög framar-
lega í forvarnarmálum og í sífelldri
endurnýjun.“
Starfsemin er í raun tvíþætt.
Annars vegar er félagsstarfið, þar
sem boðið er upp á dagskrá í hverri
viku, og síðan forvarnarstarfið á opin-
berum vettvangi, sem er í höndum
framkvæmdastjórnar og felst meðal
annars í því að senda inn umsagnir
vegna til dæmis frumvarpa um breyt-
ingar á áfengislöggjöfinni.
Samkomubannið vegna kórónu-
veirunnar hefur haft áhrif á starfsem-
ina, eins og á aðra félagastarfsemi, og
til dæmis varð að aflýsa fyrirhuguðu
gömludansakvöldi í gærkvöldi auk
þess sem annað félagsstarf og nám-
skeið liggja niðri þar til annað verður
ákveðið. „Við höldum samt áfram að
gera okkur glaðan dag í vímulausu
umhverfi,“ segir Aðalsteinn. „Það
hefur mikil áhrif að geta ekki hist, en
við færum okkur meira inn á netið og
höldum sambandinu þar gangandi
auk þess sem við erum í talsam-
bandi.“
Vilja skapa betra samfélag
Góðtemplarareglan var stofnuð
1884 og lét til sín taka í áratugi. Beitti
sér meðal annars fyrir
því að aðflutningsbann
var sett á áfengi. Það tók
gildi 1915 og var end-
anlega aflétt 20 árum síð-
ar. Árið 2000 var gerð sú
skipulagsbreyting að
nafninu var breytt í
frjálsu félagasamtökin
IOGT á Íslandi í sam-
ræmi við slíkar breyt-
ingar erlendis. „Templarahugtakið
var neikvætt í áratugi – hver kannast
ekki við að hafa heyrt talað um fana-
tísku templarana – og menn vildu
færa sig frá því,“ útskýrir Aðalsteinn.
„Margir sem vinna að góðum málum
verða fyrir fordómum og við höfum
fengið að finna fyrir því.“
Aðalsteinn áréttar að IOGT standi
fyrir góð gildi og eina skilyrðið fyrir
aðild að samtökunum sé að neyta
hvorki áfengis né annarra vímuefna.
„Við viljum skapa betra samfélag og
stysta skrefið, sem hægt er að taka til
að auka vellíðan, er að draga úr
áfengisneyslu, því hún hefur svo gríð-
arleg áhrif á samfélagið í heild, bæði
á einstaklingana og samfélagið.“
Hann segir að til að ná markmiðinu
séu reglulega haldnir fundir til að op-
inbera lífsstílinn og hvetja
til heilbrigðra lífshátta. Í
því sambandi má nefna að í
vor býður IOGT upp á
sjálfstyrkingarnámskeið
fyrir 12 til 14 ára börn í
þeim tilgangi að aðstoða
þau á erfiðum og vanda-
sömum tíma unglings-
áranna. Aðalsteinn bendir
líka á að IOGT vinni mikið
með öðrum forvarnarsamtökum, eins
og til dæmis Saman-hópnum, sem
hvetji fjölskyldur til að vera saman á
tímamótum, og Náum áttum-
hópnum, sem vinni að því að bæta að-
stöðu barna. „Dans hefur alltaf verið
mikilvægur hluti í félagsstarfi okkar,
því þeir sem hafa áhuga á dansi eru
almennt ekki í mikilli vímu eða áfeng-
isneyslu.“
Hreyfing Dansæfingar eru reglulega en nú dansa félagar saman á netinu vegna samkomubannsins.
Gera sér glaðan dag
í vímulausu umhverfi
Félagar Bindindissamtakanna IOGT á Íslandi „hittast“ á netinu