Morgunblaðið - 15.04.2020, Qupperneq 11
Morgunblaðið/RAX
Hraunfoss Var alls 200 metra hár
og mikið sjónarspil í náttúrunni.
hraunsprungu rann fram hraun-
eflur sem féll ofan í gil skammt
frá og þar myndaðist 200 metra
hár hraunfoss, sá hæsti í heimi að
sagt var. Á þessum dögum fóru
margir, ýmist gangandi eða á
jeppum, að gosstöðvunum sem
voru heitur reitur í tvöfaldri merk-
ingu orðanna. Túristagos er lýsing
nærri sanni.
Gosið í toppgígnum var annars
eðlis; sannkallaðar hamfarir.
Öskumökkur lá yfir dögum saman
svo mjög reyndi á líf og líðan fólks
undir Eyjafjöllum, enda var sér-
staklega ógnað heilsu þess. Þegar
gosinu slotaði var þó fólk fljótt að
ná vopnum sínum aftur.
Nýttu athyglina
Strax var ljóst að eldgosið hefði
mikil áhrif á ferðaþjónustu á Ís-
landi, svo mikið höfðu flug-
samgöngur raskast. Fyrir gos ríkti
jákvæðni í ferðaþjónustu fyrir
komandi sumri og var talað um
10% aukningu frá fyrra ári. En
þegar gosið byrjaði hrundi allt.
Talið var að samdrátturinn gæti
numið um 34 milljörðum kr. fyrir
þjóðarbúið, en á þessum tíma
komu um 500 þúsund ferðamenn á
ári til landsins. Strax var ljóst að
aðgerða væri þörf og því var verk-
efninu Inspired by Iceland hleypt
af stokkunum. Tilgangur þess var
að nýta þá athygli sem eldgosið
vakti.
Samstarf skilaði árangri
„Skilaboðin voru þau að Ísland
hefði aldrei verið jafn lifandi bæði
með tilliti til náttúrunnar, afþrey-
ingar og skapandi greina, og nú
væri einmitt tíminn til þess að
ferðast til landsins. Mikil áhersla
var lögð á að nýta almannatengsl
og samfélagsmiðla og fá aðra til
þess að segja söguna. Staðið var
fyrir ýmsum viðburðum og alls
komu um 400 erlendir blaðamenn í
heimsókn til Íslands þetta ár,“
segir Inga Hlín Pálsdóttir al-
þjóðamarkaðsfræðingur sem á
þessum tíma starfaði hjá Íslands-
stofu að landkynningarmálum.
„Stærsta áskorun verkefnsins á
þessum tíma var að tækla þá
fækkun sem var fyrirséð. Ferða-
menn í lok árs urðu 488 þúsund og
úr varð 1% fækkun frá árinu áður.
Það var varnarsigur fyrir íslenska
ferðaþjónustu og fjölgun ferða-
manna árin á eftir var æv-
intýraleg,“ segir Inga Hlín og
bætir við:
„Sá samtakamáttur sem mynd-
aðist á þessum tíma var gæfuspor
fyrir íslenska ferðaþjónustu. Sam-
starf og samtal er lykill að árangri
og eykur slagkraft í öllum krísum,
sama hverjar þær eru, og það
mættum við hafa í huga í núver-
andi ástandi.“
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2020
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Ten Points New Toulouse
22.990 kr.
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
ERUM FLUTT Í STÆRRA
RÝMI Á GARÐATORGI 6
Í tilefni af 80 ára afmæli Margrétar
Danadrottningar hinn 16. apríl og 90
ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur,
fyrrverandi forseta Íslands, hinn 15.
apríl í ár setur Carlsberg-sjóðurinn á
fót dansk-íslenskt rannsóknasetur í
samvinnu við íslensk stjórnvöld.
Rannsóknarsetrinu er ætlað að
auka skilning á samspili loftslags og
vistkerfa og á áhrifum loftslags-
tengdra breytinga í hafinu á íslenska
menningu og samfélag. Carlsberg-
sjóðurinn leggur röskar 500 milljónir
króna, eða 25 milljónir danskra
króna, til verkefnisins, íslenska ríkið
140 milljónir króna og Rannsóknar-
sjóður í umsýslu, Rannís, 100 millj-
ónir króna.
Rannsóknasetrið er þvervísinda-
legt og mun á ensku heita „Queen
Margrethe’s and Vigdís Finnboga-
dóttir’s Interdisciplinary Research
Centre on Ocean, Climate and So-
ciety“ en á íslensku „Þvervísindalegt
rannsóknasetur Margrétar drottn-
ingar og Vigdísar Finnbogadóttur
um hafið, loftslag og samfélag“.
Rannsóknasetrið er sameiginleg af-
mælisgjöf til Margrétar drottningar
og Vigdísar Finnbogadóttur, fv. for-
seta Íslands.
Rannsóknasetrið mun hafa aðsetur
bæði við Kaupmannahafnarháskóla
og Háskóla Íslands og verður stýrt af
Katherine Richardson, prófessor við
Kaupmannahafnarháskóla, í sam-
vinnu við nokkra danska og íslenska
vísindamenn. Framlagi Carlsberg-
sjóðsins verður fyrst og fremst varið
til að ráða unga, hæfileikaríka
vísindamenn að verkefninu, einkum
nýdoktora, en þeir munu stunda
rannsóknir bæði við Kaupmanna-
hafnarháskóla og Háskóla Íslands.
Þeir munu gegna lykilhlutverki við að
efla samvinnu þeirra dönsku og ís-
lensku vísindamanna sem tengjast
rannsóknasetrinu.
Carlsberg-sjóðurinn er einn af
elstu atvinnulífssjóðum heims. Árið
2019 úthlutaði sjóðurinn jafnvirði um
10 milljarða íslenskra króna til
grunnrannsókna. Sjóðurinn er móð-
ursjóður Carlsberg-fjölskyldunnar.
740 milljónir í
rannsóknasetur
Tilefnið er 90 ára afmæli Vigdísar
og 80 ára afmæli Danadrottningar
Vigdís
Finnbogadóttir
Margrét Þórhildur
Danadrottning
Morgunblaðið/RAX
Öskuský Horft til eldgossins með sinn kalda gráa mökk frá Voðmúlastöðum í Austur-Landeyjum.
Morgunblaðið/RAX
Upphafið Jarðeldar milli jökla á Fimmvörðuhálsi hófust að kvöldi 20. mars 2010 og stóðu í um það bil einn mánuð.