Morgunblaðið - 15.04.2020, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
LeiðtogarESB hafaað und-
anförnu tekist á og
svo reynt að fjar-
stýra fjár-
málaráðherrum
sínum til sinnar
niðurstöðu. Þá er eins og
endranær átt við þessa þrjá til
fjóra sem hafa vægi á þeim bæ.
Sagt hafði verið að sambandið
mætti ekki við því að bregðast
núna eftir að hafa horfið og
hvergi stuðlað að heilsteyptum
vörnum gagnvart veirunni
vondu. Einstök lönd urðu að
bregðast við ógninni og spila
aðgerðir af fingrum fram al-
gjörlega óháð því hvað ná-
grannalöndin væru að hafast
að. Nú væri svo komin sú efna-
hagslega kollsteypa sem hlaut
að fylgja, bættist við stöðu
heilbrigðislega laskaðra þjóða,
sem höfðu engst síðustu tvo
mánuði, misgetulausar, undir
sífelldum árásum og áföllum
og væru enn fjarri að ná landi.
Og loksins, eftir japl, jaml
og fuður var slegið saman í
hjálparsjóð til að stoppa upp í
fjárhagsleg göt þeirra sam-
bandsríkja sem verst væru
sett. Fjármálaráðherrar ESB
afgreiddu pakkann sinn loks-
ins og önduðu léttar. Fæðing-
arhríðirnar voru einstaklega
erfiðar. Leit á tímabili út fyrir
að ríkisstjórn Hollands myndi
liðast í sundur vegna af-
greiðslu hans, svo dæmi sé
nefnt.
Ýmis ríki sunnan megin í
álfunni hafa gengið í gegnum
óhugnanleg svipugöng kór-
ónuveirunnar. Fjárhagur
sumra þeirra var ekki burðug-
ur fyrir og máttu þær því illa
við því að skella öllum hurðum
efnahagslífs síns í lás. En hin
fyrirvaralausa veiruárás gaf
þeim engin skárri færi.
Björgunarpakkinn virtist
svo sem bólginn við fyrstu sýn.
Fjármálaráðherrarnir reyndu
að kynna afurð sína með
fjaðraþyt og söng og létu töl-
una „540 milljarðar evra“
tróna efst og sem sýnilegasta.
Kynningin á sjóðnum var svo
ólánleg að birtast í sömu andrá
og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
tilkynnti það mat sitt að þjóðir
heims yrðu flestar að leita
langt aftur í nútímasögu sína
til að finna aðra eins mynd af
efnahagslegri hningnun og
kórónuveiran væri að
skammta þeim núna. Voru
helstu og verstu kreppur sem
þjóðirnar hafa gengið í gegn-
um nefndar til sögu án þess að
nokkrir fyrirvarar væru gerð-
ir!
Flest ríki sem teljast búa við
meðalstyrk efnahags eða betur
þurftu að horfa framan í nið-
urdrepandi spár sjóðsins fyrir
sinn hatt og síns nágrennis.
Evrusvæðið var
þar í mesta frosti
spárinnar með
hagvaxtarsam-
drátt upp á 9%!
Það var því ekki
að undra þótt vart
heyrðist fagn-
aðarstuna, hvað þá fagn-
aðarlæti, þegar blásið var til
kynningar á „björgunar-
pakkanum“. Björgunarpakk-
inn var því líkastur leikriti sem
féll á frumsýningunni og vakti
hvorki gleði né væntingar eftir
það. Það má þó segja að jafn-
ræðis hafi gætt í viðtökunum.
Pakkinn var rakkaður niður af
öllum, hvort sem það voru for-
ystumenn eða „óhlutdrægir“
fræðimenn sem lýstu áliti sínu.
Ítalía sem stendur hvað verst
að vígi veirulega og fjárhags-
lega séð talaði skýrt. For-
sætisráðherra landsins hafnaði
algjörlega þeirri leið sem
menn þættust vera að fara með
þessum pakka. Hann gerði
hvoru tveggja í senn að rakka
pakkann niður og rekja þræði
hans upp svo að fátt stóð eftir.
Aðrir, nær og fjær, fylgdu á
eftir. Þegar að pakkinn var
kynntur var látið eins og þar
væru stórkostlegir haugar af
„nýjum peningum“ sem settir
yrðu sem deyfandi krem á
svöðusárin. En foxillir for-
ráðamenn þeirra þjóða sem
verst eru staddar sögðu það
blekkingar einar. Framlög
sem að ESB hafði þegar
ákveðið að ganga skyldu til
starfsemi innan einstakra
landa væru í þessum tillögum
soguð til baka og felld svo inn í
hjálparsjóðinn og þannig not-
uð tvisvar! Og augljóst væri að
skuldsetning þeirra þjóða ESB
sem verst stæðu mundu í fram-
haldinu bólgna út yfir öll ber-
anleg mörk.
Og það sem sé þó verst,
segja gagnrýnendurnir, að um
leið séu þær þjóðir, sem neyð-
ast til að þiggja þetta lánsfé,
leiddar í gildrur af grískum
toga. Sjálfsstjórn þeirra verði
felld undir „trium virat“ eins
og það sem helst var notað til
að niðurlægja Grikki í heilan
áratug og enn eimir af.
Fréttaskýrendur benda á að
engum forsætisráðherra sé
ætlandi að samþykkja þessar
„neyðartillögur“ í því hitasótt-
arástandi sem nú ríkir á Ítalíu.
Hvorki hann né ríkisstjórnin
lifði slíkt af. Þing og þjóð
myndu á örskotsstund samein-
ast um að skjóta slík áform í
bólakaf.
Þótt fjármálaráðherrar ESB
hafi tilkynnt hjálparsjóðinn
sinn bæði sem stórvirki og
fagnaðarundur sáust engin
merki um það á neinum þekkt-
um mælistikum efnahags- og
fjármálalífs að nokkur einasti
maður hrifist með.
Ákvarðanir og kynn-
ing á hjálparsjóði
ESB vegna kór-
ónuveiru reyndist
ömurlegt klúður}
Öfug hjálp í viðlögum
M
argir kannast við sporvagna-
vandamálið þar sem þú ert
vagnstjóri sem hefur þá tvo
möguleika að beygja á sporin
til hægri þar sem hópur fólks
stendur á teinunum eða til vinstri þar sem einn
stendur á teinunum. Svo er spurt, hvað myndir
þú gera?
Afbrigðin af þessu vandamáli eru fjölmörg,
þar sem sú eina sem stendur á teinunum til
vinstri er barn, ólétt kona eða Trump. Þar sem
hópurinn hægra megin er einsleitur á einhvern
hátt eða á annan hátt spilað með samanburð
þessara tveggja hópa og miðað við það, hvað
myndir þú gera.
Vandamálið er dálítið öfgafullt. Í raunveru-
leikanum er oft sama fólkið á teinunum bæði
hægra og vinstra megin og áhrifin af því að
senda sporvagninn í áttina að því eru mismikil eftir því
hvoru megin það er. Í samhengi þess faraldurs sem við
glímum nú við getum við verið með einhvern sem er með
einhvers konar öndunarfæravandamál og með erfiða
efnahagslega stöðu. Ef vægari samkomubannsaðgerðir
eru valdar er áhætta þess aðila mikil vegna öndunar-
færavandamálsins en ef það er farið í miklar lokanir kem-
ur það niður á efnahagslegri stöðu sama einstaklings.
Til þess að gera sporvagnavandamálið enn raunveru-
legra er oft hægt að búa til nýja teina í staðinn fyrir að
velja bara þær leiðir sem eru settar fyrir framan okkur.
Það er samt ekki tilgangur vandamálsins. Því er ætlað að
sýna okkur erfitt val í einfaldri mynd. Oftast eru vanda-
málin ekki erfið og það er frekar augljóst
hvora leiðina á að fara.
Faraldurinn sem við erum nú að glíma við
er ágætt dæmi um þetta vandamál. Ég tel að
valið hafi hins vegar verið auðvelt þrátt fyrir
að valmöguleikarnir hafi allir verið slæmir. En
þótt valið sé auðvelt er ferðin ekkert endilega
auðveld. Í gær var tilkynnt að við ættum von á
þremur vikum í viðbót af samkomubanni með
skertu skólastarfi. Eftir það áframhaldandi
takmarkanir og tveggja metra fjarlægð inn í
sumarið. Samkomubann er kannski auðvelt
val til þess að glíma við útbreiðslu veirunnar
en það er langt frá því að vera auðvelt að við-
halda slíku banni. Ég var til dæmis í jarðarför
um daginn (skipt í hópa, innan við 20 manns
og vel passað upp á tveggja metra regluna).
Það var gríðarlega erfitt og enginn hefur hug-
mynd um hvenær hægt verður að halda minningarathöfn.
Þær mótvægisaðgerðir sem eru í notkun eru erfiðar og
verða erfiðari eftir því sem á líður. Þess vegna er gríðar-
lega mikilvægt að fólk fari eftir þeim. Haldi þolinmæðinni
og hafi skilning á aðstæðum annarra. Annars er hætta á
því þar sem fleiri en einn eru á teinunum til vinstri að
leiðin endi ekki þar heldur haldi áfram og áfram með sí-
fellt fleira fólki sem verður fyrir áfalli. Sama hvað við ger-
um, þá töpum við. Reynum að tapa eins litlu og við get-
um.
Björn Leví
Gunnarsson
Pistill
Sporvagnavandamálið og faraldurinn
Höfundur er þingmaður Pírata.
bjornlevi@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Einbreiðum brúm á Suður- ogSuðausturlandi fækkar umþrjár í ár og væntanlegaum þrjár til viðbótar á
næsta ári og verða eftir það 30 talsins.
Hægar hefur gengið að fækka ein-
breiðum brúm en ráð var fyrir gert,
ekki síst vegna þess að Vegagerðin hef-
ur ekki fengið nógu hagstæð tilboð í
smíði mannvirkjanna.
Nú eru 36 einbreiðar brýr á hring-
veginum og fjöldamargar aðrar á fjöl-
förnum þjóðvegum. Mikil umferð er um
hringveginn frá höfuðborgarsvæðinu
og um Suður- og Suðausturland og hafa
orðið mörg alvarleg slys á brúnum sem
margar hverjar eru orðnar gamlar og
erfitt að halda þeim við. Einbreiðu
brýrnar eru 4 metra breiðar eða jafnvel
heldur mjórri en það.
Til að vara við hættunni, ekki síst
erlenda ferðamenn sem margir eru
óvanir slíkum hindrunum, setti Vega-
gerðin hámarkshraðann á umferð-
armiklum einbreiðum brúm niður í 50
kílómetra á klukkustund.
Ístak byggir fjórar brýr
Tókst að fækka einbreiðum brúm
um sjö á síðasta ári en einhver verk
frestuðust til þessa árs, eins og til dæm-
is Brunná sem er austan við Kirkjubæj-
arklaustur. Vegagerðin fékk engin eða
óviðunandi tilboð í brýr á Suðurlandi
sem boðnar voru út síðasta sumar.
Eftir endurtekin útboð samdi
Vegagerðin við Ístak um að byggja
brýr á Steinavötn og Fellsá í Suð-
ursveit. Átti fyrirtækið lægsta tilboð,
770 milljónir kr., sem var lítilsháttar yf-
ir áætluðum verktakakostnaði. Brúin
yfir Steinavötn á að vera rúmlega 100
metra löng og koma í stað bráða-
birgðabrúar sem gerð var þegar gamla
brúin skemmdist í flóðum. Hún á að
vera tilbúin í haust en framkvæmdum
við Fellsá lýkur ekki fyrr en á næsta
ári. Sú brú verður 46 metra löng og er
gamla brúin frá árinu 1968.
Vegagerðin hafnaði einnig öllum
tilboðum sem bárust í smíði brúa á
Kvíá í Öræfum og Brunná í Fljóts-
hverfi við endurtekin útboð á síðasta
ári. Eftir viðræður við verktaka sem
áttu hagstæðustu tilboð náðust samn-
ingar við Ístak. Báðar brýrnar eru frá
því um 1970. Verksamningur hljóðar
upp á 590 milljónir kr. og eiga brýrnar
að vera tilbúnar fyrir 1. nóvember í
haust.
Brúarflokkur Vegagerðarinnar
byrjar í þessari viku að byggja bráða-
birgðabrú, við hlið gömlu brúarinnar á
Brunná, sem notuð verður á meðan á
framkvæmdum stendur.
Ístak hefur því tekið að sér smíði
fjögurra brúa á Suðurlandi fyrir alls
um 1.360 milljónir kr.
Tvö stór verk undirbúin
Vegagerðin hefur stefnt að því að
bjóða í ár út smíði brúnna á Jökulsá á
Sólheimasandi og á Hverfisfljót Skaft-
árhreppi. Brúin á Jökulsá verður
nærri 160 m löng. Hún er umferð-
armesta einbreiða brú landsins enda á
leiðinni á milli höfuðborgarsvæðisins
og vinsælla ferðamannastaða í Mýrdal
og á Suðurlandi Báðar eru brýrnar frá
því fyrir 1970. Brúin yfir Hverfisfljót
verður um 60 m löng. Ekki hefur verið
tilkynnt hvenær útboðin verða aug-
lýst.
Fækkar um sex ein-
breiðar brýr á 2 árum
Ljósmynd/Þórhallur Helgason
Brunná Lagður vegur að ánni þar sem bráðabirgðabrú verður sett upp.
Kortagrunnur: OpenStreetMap
Verklok 2020 Lengd Byggð Verktaki
Steinavötn, Suðursveit 104 m 2017* Ístak
Kvíá, Öræfasveit 38 m 1974 Ístak
Brunná, Fljótshverfi 24 m 1970 Ístak
Áætluð verklok 2021 Lengd Byggð Verktaki
Fellsá, Suðursveit 46 m 1968 Ístak
Jökulsá, Sólheimasandi 159 m 1967
Hverfi sfl jót, Fljótshverfi 60 m 1968
*Bráðabirgðabrú
Einbreiðum brúm fækkar
Fellsá
Suðursveit
Kvíá
Öræfasveit
Brunná
Fljótshverfi
Jökulsá
Sólheimasandi
Steinavötn, Suðursveit
Vík í Mýrdal
Kirkjubæjarklaustur
Hverfi sfl jót
Fljótshverfi