Morgunblaðið - 15.04.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2020
Bláa stellið er komið
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
Opið virka daga kl. 12-18, lokað laugardaga
Stræti miðborgarinnar í Moskvu eru sótthreinsuð til að draga úr útbreiðslu
kórónuveirufaraldursins í borginni. Þrátt fyrir að stjórnvöld í Rússlandi
hafi gripið til hertra aðgerða hefur smitum og dauðsföllum af völdum veir-
unnar í landinu fjölgað talsvert, mest í Moskvu.
AFP
Sótthreinsað í
miðborg Moskvu
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Rúmlega 120 þúsund hafa látist og
tæplega tvær milljónir manna víðs
vegar um heim hafa smitast af kór-
ónuveirunni samkvæmt opinberum
tölum að sögn AFP-fréttastofunnar.
70% látinna eru Evrópubúar, eða
rúmlega 81 þúsund manns.
Flestir sem fengið hafa veiruna eru
búsettir í Bandaríkjunum, rúmlega
580 þúsund manns. Flest dauðsföll
miðað við einstök lönd hafa einnig
orðið þar, tæplega 24 þúsund hafa lát-
ist. Á Ítalíu höfðu í gær 20.465 látist, á
Spáni 18.056, í Frakklandi 14.967 og í
Bretlandi 11.329. Líklegt er talið að
fjöldi smitaðra og látinna af völdum
veirunnar sé mun hærri í mörgum
löndum en opinberar tölur greina.
Þær ráðstafanir sem gripið hefur
verið til í því skyni að hindra út-
breiðslu veirunnar hafa valdið gífur-
legum samdrætti í alþjóðlegu efna-
hagslífi. Hefur annað eins ekki sést
frá því á dögum heimskreppunnar
miklu um 1930. Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn, IMF, spáði í gær 7,5%
samdrætti hagkerfa á evrusvæðinu á
þessu ári og 6,5% samdrætti í Bret-
landi. Spáð er 5,9% samdrætti í
Bandaríkjunum á sama tíma. Batinn
á næsta ári yrði minni en sem nemur
samdrættinum. Sérfræðingar sjóðs-
ins sögðu að ekki væri þó hægt að úti-
loka að samdrátturinn yrði enn meiri,
þar sem mjög erfitt væri að sjá fyrir
hver þróun faraldursins yrði.
Breskir hagfræðingar hafa spáð
því að samdráttur í efnahagslífi
landsins geti numið allt að 13% á
þessu ári ef útgöngu- og samkomu-
bann verður við lýði í þrjá mánuði
eins og margir telja. Þá hafa hag-
fræðingar frönsku ríkisstjórnarinnar
spáð allt að 8% samdrætti innanlands
á árinu.
Indversk stjórnvöld tilkynntu í
gær að útgöngubannið í landinu yrði
framlengt til 3. maí. Í Frakklandi hef-
ur það verið framlengt til 11. maí, en
eftir það er að því stefnt að skólar og
verslanir verði opnuð í áföngum. Lít-
illega hefur verið slakað á sam-
komubanni sums staðar á Ítalíu og
hafa til dæmis bókaverslanir og
þvottahús verið opnuð.
Andrew Cuomo, ríkisstjóri New
York, sagðist í gær telja að versta
ástandið væri yfirstaðið. Þar hafa tíu
þúsund manns látist í faraldrinum.
Trump forseti boðar áætlun um opn-
un hagkerfisins innan skamms. Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin segir að
kórónuveirufaraldurinn verði ekki
stöðvaður að fullu fyrr en öruggt
bóluefni sé fundið.
Dýpsta kreppa í nær hundrað ár
Tvær milljónir manna hafa smitast af kórónuveirunni Mikil samdráttur í efnahagslífi heimsins
AFP
Lokað Verslun liggur víða niðri.
Ríkisstjórn Möltu hvatti í gær Evr-
ópusambandið til að veita Líbíu
mannúðaraðstoð án tafar. Með því
væri hægt að draga út straumi
flóttamanna til Möltu frá Líbíu. Var
lagt til að varið yrði allt að eitt
hundrað milljónum evra – rúmlega
fimmtán milljörðum íslenskra króna
– í matvörur og lyf sem send yrðu til
landsins.
Um helgina urðu varðskip frá
landamæraeftirliti Möltu vör við
fjóra báta með á þriðja hundrað afr-
íska flóttamenn um borð sem hugð-
ust reyna að komast til eyjarinnar.
Landamæri Möltu eru eins og flestra
Evrópuríkja lokuð vegna kórónu-
veirunnar.
Þýsk samtök sem fylgjast með
ferðum flóttafólks um Miðjarðarhaf
telja að einn bátanna fjögurra hafi
sokkið og 85 manns um borð drukkn-
að.
Spænsku mannúðarsamtökin
Salvamento Maritimo Humanitario
segja að flóttafólkið komi frá lönd-
unum sunnan Sahara.
Utanríkisráðherra Möltu telur að
yfir 650 þúsund manns bíði þess við
strandlengju Líbíu að komast til
Evrópu. Hann segir að flóttafólki
fjölgi mikið vegna aukinna átaka í
Afríkuríkjum, sjúkdóma og skorts á
grundvallarþörfum. Skjótlegast sé
að bregðast við þeim erfiðu aðstæð-
um sem flóttamennirnir búa við við
með því að beina aðstoðinni til Líbíu í
stað heimaríkja flóttamannanna
sunnan Sahara.
Þrír höfðu í gær látist af völdum
kórónuveirunnar á Möltu samkvæmt
opinberum tölum, en 384 smitast.
Áður en faraldurinn hófst að ráði
höfðu stjórnvöld þar sýnt flóttafólki
frá Líbíu mikla hörku og látið líbísk
varðskip flytja til baka þá sem kom-
ist höfðu til landsins.
Flóttamenn fái
aðstoð í Líbíu
Flóttafólk reynir að komast til Möltu
AFP
Á flótta Fólkið leggur sig í mikla
lífshættu til að komast frá Afríku.
Sérfræðingar
Alþjóðaheil-
brigðisstofnunar-
innar (WHO)
funduðu fyrir
helgi til að ræða
hvort ebólu-
faraldurinn sem
hófst í Kongó í
ágúst 2018 væri
enn ógn við al-
þjóðlegt heil-
brigðisöryggi. Beðið er niðurstöðu
fundarins. Þess hafði verið vænst að
stjórnvöld í Kongó gætu greint frá
því síðastliðinn mánudag að farald-
urinn væri genginn yfir, en ný tilfelli
sem komu í ljós urðu til þess að
fresta varð tilkynningunni.
Rúmlega 2.300 manns hafa látið
lífið í faraldrinum í Kongó. Til að
hægt sé að tilkynna um að hann sé
yfirstaðinn má ekkert nýtt tilfelli
hafa orðið í 42 daga.
Rétt áður en fundur sérfræðing-
anna hófst komu í ljós þrjú ný tilfelli
ebóluveirusmits í borginni Beni í
norðausturhluta landsins. Eru tveir
sjúklinganna látnir en sá þriðji lifir
enn. Uppruni smitanna hefur verið
rakinn og allir verið bólusettir að
sögn talsmanns WHO.
Ebóla aft-
ur í Kongó
Kongó Ekki
lausir við ebólu.