Morgunblaðið - 27.04.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Hreint loft - betri heilsa
Loftmengun er hættuleg heilsu og
lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki
eru góð við myglu-gróum, bakteríum,
frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
Verð kr.
18.890
Verð kr.
49.920
Verð kr.
35.850Verð kr.15.960
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Salan geti minnkað þörf á lántökum
Hafnarfjarðarbær hefur sett rúmlega 15% hlut sinn í HS veitum í söluferli Bæjarstjóri segir ljóst
að þörf sé á innspýtingu Áætlanir gera ráð fyrir tekjumissi og kostnaðarauka upp á 5-6 milljarða kr.
Viðar Guðjónsson
vidargudjons@gmail.com
Hafnarfjarðarbær hefur samþykkt í
bæjarráði að setja ríflega 15% hlut
sinn í HS veitum í söluferli. Rósa Guð-
bjartsdóttir bæjarstjóri segir að áætl-
anir geri ráð fyrir tekjufalli og kostn-
aðarauka upp á 5-6 milljarða kr. á
þessu ári og því næsta. Því sé leitað
leiða til fjármögnunar.
Hún segir þó að ekki verði tekin
ákvörðun um það hvort hluturinn
verði seldur fyrr en ljóst er hve mikið
fæst fyrir hlutinn.
Samkvæmt verðmati sem gert var í
fyrra var verðmæti veitunnar metið á
um 23 milljarða
króna.
Arðgreiðslur til
bæjarfélagsins
hafa numið 60-70
milljónum króna á
ári síðustu ár að
sögn Rósu. Sé
miðað við hlut
bæjarins og verð-
mat sem gert var í
fyrra nemur hann
um 3,5 milljörðum króna. „Sveitar-
félögin í kringum okkur eru fæst með
eignarhlut í veitum og við vitum að
það kemur ekki til með að hafa áhrif á
notendur rafmagns í Hafnarfirði
hvort sem við eigum þennan hlut eða
ekki,“ segir Rósa.
Þurfa að taka lán
Hún segir að þegar ljóst verður hve
mikið fæst fyrir hlut bæjarins verði
hægt að meta hagkvæmni sölunnar.
Horft verði til arðsemi sem bærinn
hefur notið en einnig til þess kostn-
aðar sem frekari lántaka hefur í för
með sér áður en ákvörðun verður tek-
in. Hún segir ljóst að bæjarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu séu öll á sama
stað með það að þurfa að fara í miklar
lántökur til þess að standa undir þjón-
ustunni. „Það eina sem ég get sagt á
þessum tíma er það að við munum líta
til þess hvað fékkst fyrir hlut sem
seldur var í fyrra. Svo í framhaldinu
munum við skoða þetta í samhengi við
það hver kjörin verða á því lánsfjár-
magni sem við munum þurfa á að
halda. Við munum alltaf þurfa að taka
einhver lán en ef vel tekst til þá mun
þessi sala minnka þörfina á lántöku,“
segir Rósa og bætir við: „Við erum
mjög skuldsett sveitarfélag og því er
vert að hugsa sig vel um áður en farið
er út í frekari lántökur,“ segir Rósa.
Þörf á innspýtingu fljótlega
Hún segir að mjög fljótlega þurfi
bæjarfélagið á innspýtingu fjármagns
að halda. „Við erum að verða fyrir
gríðarlegu tekjufalli og kostnaðar-
auka samhliða,“ segir Rósa og bendir
á að aukinn þungi hafi færst á félags-
þjónustuna. Eins hafi sveitarfélög
verið hvött til þess að fara í fram-
kvæmdir. „Við viljum leggja okkar af
mörkum þar og halda framkvæmdum
áfram og jafnvel bæta við mannafls-
frekum viðhaldsaðgerðum sem við
teljum góða fjárfestingu fyrir bæjar-
félagið,“ segir Rósa.
Hún segir að einnig sé horft til sölu
á fasteignum sem bæjarfélagið hefur
ekki verið að nýta sér að undanförnu.
Verið er að búa til lista yfir eignir sem
á að selja. Þegar er eitt hús á Vestur-
götu 8 komið í sölu.
Rósa
Guðbjartsdóttir
Sambíóin munu að líkindum opna
einn eða tvo sali í byrjun næstu
viku þegar samkomubann stjórn-
valda verður rýmkað. Undirbún-
ingur stendur yfir. Árni Sam-
úelsson forstjóri segir að fleiri
salir verði opnaðir þegar í ljós
kemur hvernig aðsókn verður.
Kvikmyndahúsum var lokað eft-
ir að leyfilegur fjöldi samkomu-
gesta var minnkaður niður í 20
manns 22. mars. Árni segist hafa
orðið var við að sumir bíði eftir að
komast út og í bíó, eftir allan
þennan tíma.
Stærstu salirnir hjá Sambíóun-
um rúma 300-400 gesti og því auð-
velt að koma þar fyrir 50 manns,
samkvæmt reglum yfirvalda um að
tveir metrar séu
á milli fólks.
Erfiðara er að
eiga við minni
sali, þar yrðu
enn færri gestir.
Árni segir að
tveggja metra
reglan sé nokkuð
ströng. Vonast
hann til að hún
færist niður í
einn metra og hægt verði að
hækka töluna í 100 sem fyrst, ef
baráttan gegn kórónuveirunni
heldur áfram að ganga vel. Hælir
hann sérstaklega teyminu sem hér
hefur unnið að málum tengdum
veirunni og segist hafa trú á því.
Rekstrargrundvöllur bíóa er á
mörkunum, að sögn Árna, miðað
við þær takmarkanir sem verða
eftir 4. maí. Eigi að síður þurfi að
opna til að þjóna fólkinu.
Frumsýningum seinkað
Árni reiknar með að þráðurinn
verði tekinn upp frá því sem frá
var horfið 22. mars. Þá hafi verið
nýbyrjað að sýna einhverjar
myndir og eitthvað hafi borist af
nýjum myndum síðan. Hann bend-
ir á að kvikmyndaverin hafi seink-
að frumsýningum á stórmyndum
fram í júlí og jafnvel út árið. Það
helgist af ástandinu á stóru mörk-
uðunum í Ameríku og Asíu.
helgi@mbl.is
Opna 1-2 bíósali 4. maí
Árni Samúelsson vonast til að reglurnar verði rýmkaðar
frekar Segir að fólk bíði eftir því að komast í bíó
Árni
Samúelsson
Ef fram fer sem
horfir fara 350 af
þeim 400 millj-
ónum sem gert
var ráð fyrir að
nota í fyrirhugað
fjölmiðlafrumvarp
í staðinn í ein-
greiðslu til fjöl-
miðla vegna
heimsfaraldurs.
Að tryggja frum-
varpinu aftur fé er því „framtíðar-
mál“ að sögn Willums Þórs Þórs-
sonar, þingmanns Framsóknarflokks
og formanns fjárlaganefndar.
„Eins og málin koma inn í þingið
núna er það hugmyndin að nýta þess-
ar fjögur hundruð milljónir sem ætl-
aðar voru í fjölmiðlafrumvarpið, sem
liggur inni í allsherjar- og mennta-
málanefnd,“ sagði Willum í samtali
við mbl.is, aðspurður hvernig um-
rædd eingreiðsla hins opinbera til
fjölmiðla yrði fjármögnuð.
Eingreiðslan hljóðar upp á 350
milljónir og óljóst hefur verið hvaðan
fjármagnið verði tekið, þ.e. hvort
skapað verði nýtt svigrúm í fjárauka-
lagafrumvarpi, sem ekki stefnir í, eða
hvort fjármagnið sem ætlað var í fjöl-
miðlafrumvarpið verði nýtt í þessa
sérstöku aðgerð. Willum segir þó
ekki útilokað að fjárheimildarbeiðni
komi fram.
Frumvarp-
ið nú fram-
tíðarmál
Willum Þór
Þórsson
Eingreiðslan tefur
fjölmiðlafrumvarp
Líf er að færast í miðbæ Reykjavíkur að nýju,
eftir erfiðan tíma í kórónuveirufaraldrinum.
Líklega á sumarblíðan sem lék við höfuðborgar-
búa, eins og flesta landsmenn, í gær stærstan
hlut að máli. Einnig eru fréttir af kórónuveir-
unni uppörvandi og auka fólki kjark til að fara
út að hreyfa sig og njóta veðurblíðunnar. Ekki
var annað að sjá í miðbænum, við Tjörnina og
víða á göngustígum en að fólk virti tilmæli heil-
brigðisyfirvalda um fjarlægð. Fjölskyldur sátu,
gengu eða stóðu saman en pössuðu upp á fjar-
lægðina við næsta einstakling eða fjölskyldu.
Líf færist í miðbæ Reykjavíkur á ný
Ljósmynd/Sigurður Ragnarsson
Einmuna veðurblíða á landinu