Morgunblaðið - 27.04.2020, Side 13
AFP
Óvissuástand Kim Jong-un veifar á leið inn í lest sína. Myndin er úr safni.
Járnbrautarlest sem tilheyrir Kim
Jong-un, einræðisherra Norður-
Kóreu, sást í vikunni í austurhluta
landsins í borginni Wonsan, sem
þekkt er fyrir sjóböð. Ekkert hefur
dregið úr vangaveltum síðustu
daga um heilsufar Kim sem er
sagður alvarlega veikur, ef ekki
dauðvona.
Lestin kom fram á gervihnatta-
myndum sem bandarísk hugveita
birti í gær, en samkvæmt þeim var
lestin í Wonsan í þrjá daga fyrri
hluta vikunnar, 21. til 23. apríl. Var
henni lagt á sérstakri stöð sem ein-
göngu er ætluð ríkislest þessari.
Þar er að finna hvíldarhallir fyrir
fyrirmenn Norður-Kóreu, að sögn
vefsíðunnar 38North. Hún segir
veru lestarinnar ekki sanna að Kim
hafi verið í bænum eða segja nokk-
uð um heilsu hans. Hún ýti hins
vegar undir getgátur um að Kim
hafi farið þangað sér til hvíldar.
Mjög hefur verið fjallað um
heilsufar Kim eftir að hann mætti
ekki til hátíðarhalda 15. apríl, á af-
mælisdegi afa hans, Kim Il Sung,
stofnanda ríkisins. Er það jafnan
mikilvægasti dagur pólitískrar
dagskrár Kim á ári hverju.
Hann hefur ekki sést opinber-
lega frá því hann stýrði fundi
stjórnmálaráðs Verkamanna-
flokksins og skoðaði æfingar norð-
urkóreska flughersins daginn eftir.
Vefmiðillinn Daily NK, sem að
mestu er mannaður flóttamönnum
frá Norður-Kóreu, segir að Kim
hafi gengist undir blóðrásaraðgerð
fyrr í mánuðinum og hafi hvílt sig
eftir hana í villu í héraðinu Norður-
Pyongan. Hafði miðillinn eftir
heimildarmanni í Norður-Kóreu að
Kim, sem er á fertugsaldri, hefði
þurft á bráðaaðgerð að halda vegna
stórreykinga, offitu og þreytu.
agas@mbl.is
Kim er talinn hafa farið á hvíldarhæli elítunnar í Wonsan eftir aðgerð
Kim nær áttum á sjóbaðsströnd
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020
ÖNDUNARGRÍMUR
RYKGRÍMUR,
LÆKNAMASKAR,
HÁLFGRÍMUR OG
HEILGRÍMUR
Franska stjórnin hefur ákveðið að
koma tveimur af nafntoguðustu
fyrirtækjum landsins til hjálpar
vegna tekjufalls af völdum
kórónuveirufaraldursins.
Björgunarpakki flugfélagsins
Air France-KLM hljóðar upp á um
það bil tíu milljarða evra, eða um
1.500 milljarða króna. Fær Air
France þriggja milljarða lán frá
ríkinu og ríkisábyrgð fyrir fjög-
urra milljarða láni til viðbótar.
Hollenska ríkisstjórnin er talin
munu bæta þar við tveimur til
fjórum milljörðum evra.
Forstjóri Air France, Ben
Smith, sagði að ekki væri um
„óútfyllta ávísun“ að ræða, heldur
aðstoð sem kallaði á erfiðar hag-
ræðingaraðgerðir til að ná niður
kostnaði og tryggja afkomu.
„Fjármögnunin gerir okkur kleift
að endurbyggja fyrirtækið. Við
þurfum að hugsa rekstrarmódel
okkar strax upp á nýtt,“ bætti
hann við. Hið sameinaða félag
varð til 2004.
Franska stjórnin ákvað um
helgina að bjarga bílrisanum Re-
nault með fimm milljarða evra rík-
istryggðu láni. agas@mbl.is
FRAKKLAND
AFP
Á lofti Air France fær mikla aðstoð.
Air France-KLM fær
um 1.500 milljarða
Boris Johnson
tekur í dag að
nýju við starfi
breska forsætis-
ráðherrans,
hálfum mánuði
eftir að hann
fékk að fara
heim af spítala
þar sem hann
dvaldist eftir að
hafa veikst af völdum kór-
ónuveirunnar.
„Það er kraftur í honum, hann
getur vart beðið eftir því að taka
aftur við,“ sagði Dominic Raab
utanríkisráðherra sem gekk í
störf Johnsons í veikindum hans.
Breska stjórnin sætir vaxandi
gagnrýni vegna þess hvernig hún
hefur haldið á málum í stríðinu
gegn kórónuveirunni sem kostað
hefur rúmlega 20.000 manns lífið
þar í landi. Raab hafnaði því þó í
gær að slaka á reglum stríðsins
gegn veirunni. Sagði að það yrði
ekki gert fyrr en öruggt væri tal-
ið, en útgöngubann í Bretlandi
gildir til 7. maí.
BRETLAND
Boris aftur í vinnuna
Boris Johnson
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Alls höfðu 202.994 manns um heim allan dáið af
völdum kórónuveirunnar frá því hún blossaði upp
í Kína í desember og þar til í gærmorgun, sunnu-
dag. Alls hafa 2,9 milljónir í 193 löndum smitast
af veirunni á þessu tímabili, að sögn AFP-frétta-
stofunnar.
Langflest hafa dauðsföllin orðið í Bandaríkj-
unum, eða 53.934. Þar næst á Ítalíu en þar hafa
26.384 látist. Í þriðja sæti er svo Spánn með
23.190 dauðsföll, í fjórða sæti Frakkland með
22.614 og í fimmta sæti er Bretland með 20.319.
Sé tekið mið af íbúafjölda landa er dánartíðnin
hæst í Belgíu eða 612 dauðsföll á hverja milljón
íbúa. Á Spáni er tíðnin 496 dauðsföll, Ítalíu 436,
Frakklandi 346 og í Bretlandi er hún 299 dauðs-
föll á hverja milljón íbúa. Bandaríkin eru langt að
baki með 163.
Slakað á klónni
Einstök ríki eru farin að aflétta ströngum
reglum sem bundið hafa fólk um heim allan heima
við. Í Ísrael eru allar verslanir nema verslunar-
kringlur opnar í dag. Í Sádi-Arabíu verður aflétt
útgöngubanni sem gilt hefur frá kl. 9 að morgni
til fimm síðdegis og banni við lokun allra verslana
var í dag frestað til 13. maí. Áfram verður út-
göngubann allan sólarhringinn á spennusvæðum,
eins og í hinni helgu borg, Mekku.
Börn á Spáni hafa verið lokuð innandyra frá
miðjum mars en geta loks nú gengið, hlaupið eða
leikið sér utandyra í heimahverfi sínu allt að
klukkustund á dag, í fylgd foreldris. Mega þau þó
ekki fara lengra frá heimili sínu en einn kíló-
metra.
Andlitsgrímur undir smásjá
Andlitsgrímur koma mjög við sögu stríðsins
gegn kórónuveirunni og hefur verið skortur á
þeim fyrir aðra en lækna, hjúkrunarfólk og aðra í
framlínu stríðsins. Hafa einhverjir freistast til
framleiðslu gríma en ekki alltaf vandað sig nóg.
Þannig sögðust Kínverjar í gær hafa lagt hald á
rúmlega 89 milljónir gríma sem stóðust engan
veginn kröfur. Hafa Kínverjar sætt gagnrýni um
heim allan fyrir að senda gallaðan hlífðarbúnað
um jarðir allar. Í mörgum löndum er skylt að
bera andlitsgrímur á almannafæri og bættist La-
gos í Nígeríu í þann hóp í gær.
Í Ástralíu var hleypt af stokkum um helgina
snjallsímaappi sem leitar uppi einstaklinga sem
komist hafa í snertingu við fólk sem smitast hefur
af kórónuveirunni. COVIDSafe-appið styðst við
þráðlaust blátannarmerki til að varðveita gögn
um samskipti fólks.
Banna ósiðsemi
Yfirvöld í Peking í Kína sögðust ætla að grípa
til banns gegn „ósiðsamlegu“ athæfi á borð við að
taka ekki fyrir vit sér þegar hóstað eða hnerrað
er. Verður bannið liður í nýjum reglum sem ætlað
er að auka og bæta almennt hreinlæti. Skylda
þær veikt fólk til að bera andlitsgrímur og vera
„vel tilhaft“ í klæðaburði. Brot gegn banninu
varða sektum.
Rúmlega 200.000 andlát
Spænsk börn fengu að fara út úr húsi í gær í fyrsta sinn í hálfan annan mánuð
AFP
Útivera leyfð Spænsk börn gripu gæsina og spruttu út úr húsum í gær eftir að hafa verið innilokuð
undanfarnar vikur. Hér sparkar snáði bolta til föður síns á Can Pere Antoni-ströndinni á Majorka.