Morgunblaðið - 27.04.2020, Page 19

Morgunblaðið - 27.04.2020, Page 19
✝ Jóhanna Stef-ánsdóttir fædd- ist í Reykjavík 2. júní 1932. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Droplaug- arstöðum 11. apríl 2020. Foreldrar henn- ar voru Oddný Vil- borg Guðjónsdóttir frá Kolmúla við Reyðarfjörð, f. 19. ágúst 1902, d. 13. maí 1989, og Stefán Hermannsson, f. 7. júní 1905, stýrimaður á togaranum Gullfossi sem fórst í febrúar 1941. Systkini Jóhönnu voru: 1) Hrafnhildur Erla (Stella), f. 1926. Hún giftist árið 1952 bandarískum verkfræðingi, My- ron Kisselburg að nafni, og fluttist með honum til Banda- ríkjanna. Þau eignuðust tvær starfaði hjá Skýrr mestallt sitt líf. Börn Jóhönnu og Óttars eru: 1) Stefán, f. 20. júní 1967, d. 24. júní sama ár. 2) Oddný Kristín, f. 9. ágúst 1968. 3) Kjartan Sæv- ar, f. 6. maí 1974. Búsettur í Svíþjóð. Dóttir hans er Karen Birta, f. 27. júlí 2000. Jóhanna lauk námi í Kvenna- skólanum í Reykjavík 1950 og prófi frá Hjúkrunarskóla Ís- lands 1964. Hún lauk námi í uppeldis- og kennslufræði 1979 og sérfræðinámi í geðhjúkrun 1983. Hún starfaði við hjúkrun með hléum frá 1964, vann mikið á geðdeildum Landspítalans og var meðal annars á tímabili framkvæmdastjóri þar. Hún tók þátt í félagsmálum, var í hand- knattleiksdeild KR og tók þátt í starfi ITC á Íslandi, söng í kór- um, virkur aðili í félagsstarfi aldraðra, hafði gaman af útivist og hreyfingu, stundaði göngu- ferðir, hestamennsku og var í sundleikfimi svo eitthvað sé nefnt. Útför Jóhönnu fer fram 27. apríl 2020 í kyrrþey vegna ástands í samfélaginu. Minning- arathöfn verður auglýst síðar. dætur, Jóhönnu og Stephanie. Stella lést árið 1977. 2) Hermann banka- starfsmaður, f. 1934, kona hans var Olga Halldórs- dóttir. Þau áttu ekki börn, en Her- mann á son, Sigurð Inga. Hermann lést 2013. 3) Kristín Jóna, f. 1939, d. 1985. Hinn 30. janúar 1965 gengu Jóhanna og Óttar Kjartansson, f. í Reykjavík 7. ágúst 1930, d. 17. apríl 2010, í hjónaband. For- eldrar hans voru Kristín Odds- dóttir frá Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri, f. 7. ágúst 1902, d. 19. júlí 1986, og Kjartan Magn- ússon kennari frá Hvítárholti í Hrunamannahreppi, f. 5. júlí 1885, d. 26. ágúst 1933. Óttar Nú er hún Jóhanna, mín ynd- islega og góða vinkona, búin að kveðja þetta jarðlíf. Hún er laus við þennan hræðilega sjúkdóm alzheimer sem við óttumst flest. Hún fæddist á Landspítalanum 2. júní 1932, dóttir hjónanna Odd- nýjar Vilborgar Guðjónsdóttur, sem ættuð var frá Kolmúla við Reyðarfjörð, og Stefáns Her- mannssonar frá Seyðisfirði. Þau voru búsett í Reykjavík. Stefán var fyrsti stýrimaður á togaran- um Gullfossi sem fórst í ofsaveðri út af Snæfellsnesi með allri áhöfn, 19 manns, 28. febrúar 1941. Stef- án var þá 35 ára. Oddný stóð þá ein uppi ekkja með fjögur börn, hið yngsta 2 ára og það elsta 14 ára. Elst var Hrafnhildur Erla (Stella), f. 1926, næst Jóhanna, f. 1932, svo Hermann, f. 1934 og yngst Kristín Jóna (Stína), f. 1939. Oddný var dugmikil kona sem tókst að sjá um fjölskyldu sína með því að reka matsölu (hafa kostgangara) á heimili sínu. Að mínu áliti hefði hún átt að fá íslensku fálkaorðuna. Ég kynntist Jóhönnu í Kvennaskólanum í Reykjavík ár- in 1946-1950. Jóhanna var mjög félagslynd. Hún dreif okkur í handbolta hjá KR. Á þessum ár- um sungum við líka og spiluðum á gítar, hún söng milliröddina og ég lagið. Á ferðalögum var gítarinn með og við sungum stundum á skemmtunum hjá skólanum og fleirum. Einu sinni sungum við í barnatíma útvarpsins en hvernig það kom til veit ég ekki, gruna Jó- hönnu. Við æfðum frjálsar íþrótt- ir um tíma, þar fyrir utan var Jó- hanna í unglingastúku og æfði sund hjá sundfélagi. Jóhanna var alla tíð ákveðin í því að læra hjúkrun eftir útskrift úr Kvenna- skólanum. Hún lauk því hjúkrun- arfræðiprófi frá Hjúkrunarskóla Íslands með frábærum einkunn- um árið 1964. Um þetta leyti kynntist hún sínum kæra eigin- manni, Óttari Kjartanssyni kerf- isfræðingi. Þau giftu sig 30. jan- úar 1965 og eignuðust þrjú börn, Stefán, Oddnýju Kristínu og Kjartan Sævar. Dóttir Kjartans og Hrafnhildar Stefánsdóttur er Karen Birta, f. 29.7. 2000, sann- kölluð birta í lífi Jóhönnu ömmu sinnar. Jóhanna og Óttar voru með sumarbústað skammt frá Hellu í Rangárvallasýslu. Bústaðnum fylgdi land til beitar fyrir hestana sem þau áttu. Þau ferðuðust mik- ið um Ísland á hestum næstu ár- in. Óttar þekkti næstum hverja þúfu á Íslandi svo það hefur verið gaman að hafa hann sem ferða- félaga. Að lokum vil ég þakka Jó- hönnu fyrir vináttu og tryggð á undanförnum árum. Það gladdi mig mikið að Jóhanna skyldi allt- af þekkja mig þrátt fyrir þessi erfiðu veikindi sem fylgja alz- heimer. Ég votta Oddu, Kjartani og Karen Birtu og öðrum aðstand- endum djúpa samúð. Blessuð veri minning Jóhönnu Stefánsdóttur. Ásta Ólafsdóttir. Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga, að heilsast og kveðjast. Það er lífsins saga. (Páll J. Árdal) Um áramótin 1960-1961 hittist stór hópur ungra stúlkna í Hjúkr- unarskóla Íslands við Eiríksgötu 34 og dvöldu þar í 3 ár og 3 mán- uði, óháð því hvort þær ættu heima í næsta húsi við skólann eða úti á landsbyggðinni. Flestar luku námi 12. mars 1964. Ein af þeim var Jóhanna Stefánsdóttir. Hún var elst í hópnum, 10 ár- um eldri en þær yngstu. Hún hafði dvalist um tíma í Bandaríkjunum enda átti hún systur og fjölskyldu þar. Hún var lífsreynd að okkar mati, við litum upp til hennar, glæsileg, glaðleg og vandaði sig við allt sem hún sagði og gerði, já- kvæð, lífsglöð, tónelsk og leit á björtu hliðarnar. Jóhanna giftist Óttari Kjart- anssyni, kerfisfræðingi hjá Skýrsluvélum ríkisins, og varð þeim þriggja barna auðið. Stefán, f. 1967, lést stuttu eftir fæðingu, Oddný Kristín, f. 1968, og Kjart- an, f. 1974, hann á eina dóttur, f. 2000, Karenu Birtu, sem var mik- ill sólageisli ömmu sinnar. Jó- hanna vann lengst af við geð- hjúkrun á Kleppsspítala og Landspítalanum enda var hún með menntun í þeirri grein. Eftir andlát Óttars tók heilsu Jóhönnu að hnigna. Síðastliðin ár hefur hún dvalið á Droplaugar- stöðum og notið þar umönnunar. Alltaf hélt hún sinni reisn og fal- legu söngrödd, naut þess að hlusta og syngja, ýmist ein eða með öðrum. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar frá hollsystrum og fjölskyldum okkar. Blessuð sé minning hennar. Ásdís og Jónína (Jonna). Til þín ég hugsa, staldra við. Sendi ljós og kveðju hlýja. Bjartar minningarnar lifa ævina á enda. (Hulda Ólafsdóttir) Þegar komið er að kveðju- stund koma margar minningar og myndir í hugann. Jóhönnu Stefánsdóttur man ég fyrst eftir í Skeiðarvoginum á heimili hennar og eiginmanns hennar Óttars Kjartanssonar, sem lést fyrir 10 árum. Stundum eru myndir minninganna af þeim hjónum báðum og börnunum þeirra en einnig af Jóhönnu einni. Þegar ég svo fór í menntaskóla fékk ég að búa hjá þeim Jóhönnu og Óttari á Kópavogsbrautinni, þá áttu tengsl okkar eftir að styrkjast og aukast. Jóhanna og Óttar áttu fallegt heimili og sinntu því af alúð. Þegar ég hugsa til Jóhönnu sé ég fyrir mér konu sem hafði mik- inn metnað, var dugleg, jákvæð, ákveðin, hvetjandi, skipulögð og talaði vel um fólk. Hún hafði mikla trú á að við þyrftum að sinna sjálfum okkur vel til að geta haldið heilsu, bæði andlegri og líkamlegri. Þegar ég kom í heim- sókn til Jóhönnu voru oftar en ekki greinar út tímaritum, um hollustu og heilbrigði, sem hún var búin að lesa, velta fyrir sér, taka til hliðar og var tilbúin að deila með öðrum. Jóhanna elskaði fólkið sitt skilyrðislaust og var stolt af því. Hún var líka stolt af því sem hún hafði sjálf afrekað um ævina. Án efa mótaði það hana að alast upp hjá einstæðri móður og þremur systkinum. Jó- hanna fór snemma að vinna, bar út blöð og sagði að það erfiðasta við það hefði verið að rukka fólk. Hún spilaði handbolta með KR. Hún sagði oft „Ég er KR-ingur“ og í mínum huga hafði það þá merkingu að hún ætlaði að nota keppnisskapið á þá áskorun sem hún stóð frammi fyrir. Hún var ákveðin í að mennta sig. Jóhanna hafði alltaf nóg að gera, hún elsk- aði fjölskylduna sína, vinnuna, hestamennskuna og annað sem hún tók sér fyrir hendur. Þegar Jóhanna hætti að vinna launa- vinnu fann hún annað sem hún hafði gaman af að gera, hún söng í tveimur kórum, fór í gönguferðir, stundaði hestamennsku, var í fé- lagi eldri borgara í Kópavogi og var virk í þeirra starfi, hún var í leikfimi og sundi, hún málaði á postulín, ferðaðist erlendis og fór í sumarbústaðinn þó ferðum þangað fækkaði eftir að Óttar lést. Flest gerðu þau Jóhanna og Óttar saman. Oftast kom ég til þeirra hjóna á Kópavogsbrautina, seinna í Blásali og sumarbústað- inn. Börnunum mínum fannst hún eins og amma, í heimsókn til þeirra hjóna og seinna Jóhönnu einnar fannst þeim gott að fá eplaköku með rjóma eða ís. Suðu- súkkulaði er líka eitt af því sem minnir þau á Jóhönnu. Gestrisni, hlýja, væntumþykja og virðing voru einkennandi fyrir þessar heimsóknir. Elsku Jóhanna og Óttar takk fyrir alla kaffisopana, vináttuna, samveruna, stuðninginn og spjallið í gegn um árin. Það er margt sem ég hef lært af ykkur og margt sem ég get ennþá lært og tekið mér til fyrirmyndar. Odda, Kjartan, Karen Birta, aðr- ir ættingjar og vinir, innilegar samúðarkveðjur til ykkar. Elsku Jóhanna nú ertu komin til Óttars þíns og ættingja þinna sem hafa farið á undan þér og þú hefur saknað, hvíl í friði, kæra vinkona, kveðja, Bjarney. Jóhanna Stefánsdóttir ✝ GuðmundurGuðbrandsson var fæddur í Reykjavík 14. nóv- ember 1939. Hann andaðist á Heil- brigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi 19. apríl 2020. Foreldrar Guð- mundar voru Halla Sigurðardóttir frá Gljúfri í Ölfusi og Guðbrandur Elifasson, Borgfirðingur, þau skildu. Stjúpfaðir Guðmundar var Páll Ögmundsson. Guðmundur átti eina alsyst- ur, Þorbjörgu, sem er látin. Samfeðra bræður hans eru Frið- rik Ómar og Óðinn Þröstur Guð- brandssynir. Sam- mæðra systkini eru Guðný Pálsdóttir, Kolbrún Pálsdóttir og Páll Breiðfjörð Pálsson (kjör- sonur). Guðmundur gekk í hjónaband 25.10. 1966, eftirlif- andi eiginkona hans er Sigrún Grímsdóttir, f. 25.10. 1942. Börn þeirra eru: Sesselja, fædd 11.5. 1966, gift Magnúsi Guðmundssyni, þau eiga tvö börn; Halla, fædd 23.6. 1969; Guðný Sif, fædd 24.1. 1973; Andri, fæddur 9.12. 1978, giftur Hönnu Rún Ólafsdóttur, þau eiga samtals 5 börn. Áður eignaðist Guðmundur Kristjönu, f. 12.2. 1962, móðir Margrét Halldórsdóttir, og Guð- mund Geir, f. 31.8. 1964, móðir Kristný Pétursdóttir. Við skilnað foreldranna fór Guðmundur til ömmu sinnar og móðurbræðra á Gljúfri í Ölfusi og naut þar mikils ástríkis. Frændurnir kenndu honum að þekkja og virða náttúruna, vinna, smíða og gera við það sem bilaði frekar en kaupa nýtt. Eftir fermingu tók við alvara lífsins og vinna við hin ýmsu störf: messagutti á Esjunni, vinna í blikksmiðju, akstur á alls konar farartækjum, síðast leigu- bíl, uns hann gerðist bóndi, sem varð ævistarfið með fjölskyld- unni. Meðfram búskapnum stundaði Guðmundur m.a. skóla- akstur og refa- og minkaveiðar. Útför Guðmundar fer fram í kyrrþey. Pabbi …  þessi móeygði, myndarlegi maður með dökku krullurnar  keyrði skólabíl, oftast hinum megin í dalnum,  reyndi að vekja fuglaáhuga hjá nærsýna barninu sem sá enga smærri fugla en hrafna,  kenndi okkur að smyrja hey- vinnuvélar og vera með koppa- fjöldann á hverri vél á hreinu til að gleyma nú engum,  safnaði tófu- og minkaskottum í stór knippi áður en þeim var skilað til að fá launin,  kenndi okkur systkinunum að meta sánabað,  kunni ógrynni af ljóðum og söngtextum,  gat gert við næstum allt sem bilaði,  kenndi mér að hafa fjármálin á hreinu, að það ætti alltaf að standa í skilum og bregðast við í tæka tíð ef eitthvað liti illa út,  sagði sögur úr leigubílaakstr- inum í Reykjavík,  stífbónaði ekki einungis bíl- ana heldur líka traktorana,  kenndi mér að þekkja slóðir eftir rjúpu, ref og mink,  sagði ökukennaranum að ég kynni alveg að keyra, hefði margra ára reynslu,  glímdi við Bakkus með mis- jöfnum árangri,  elskaði heiðarnar,  keyrði þannig að langa loft- netsstöngin lá lárétt aftur úr volvónum,  breyttist svo mikið,  kenndi okkur að halda á hamri og hitta naglann á höf- uðið,  var oftar með Fauna-vindilinn á bak við eyrað en í munn- inum,  smíðaði stór og smá leikföng handa börnum og barnabörn- um,  sem við þekktum varla um tíma, en kynntumst svo aftur,  var óþreytandi að kenna okkur að þekkja landið og örnefnin,  spilaði lomber,  vildi alltaf syngja líka „hitt lagið sem við kunnum“,  barðist við parkinsonssjúk- dóm en átti ekki möguleika á sigri. Sesselja. Systkin víðs vegar minnast þín, og ljós og loft þig tregar. Móðir Guðs man þér nafnið þitt og lífs og yndis ann þér. Lítill vænglami flýgur nú í nýjum geislahami. (Þorsteinn Valdimarsson) Í huga mér koma þessar línur er ég minnist fóstra míns Mumma í Saurbæ. „Og ég elska þig líka“ voru síðustu orð hans er við kvödd- umst í desember er leið á sjúkra- húsinu á Blönduósi, hann rúm- fastur og ég á leið suður yfir heiðar. Er faðir okkar systkina lést fyrir um sex áratugum man ég hversu Mummi var okkur bræðr- um góður frændi. Fljótlega fór- um við að kalla hann fóstra. Við vorum afar hrifnir af honum, fannst hann mikill töffari en samt svo ljúfur, en þó á stundum einfari. Mummi hafði lag á að finna hvað var ungum föðurlausum drengjum mikilvægt. Eitt af því sem ég lærði af honum er hversu góður hann var ömmu okkar á Gljúfri. Mummi var í leigubílaakstrin- um, ók um á Simca-fólksbíl með plötuspilara og fjölbreytt safn hljómplatna. Í því naut hann sín vel. Með gæsku og þolinmæði fengum við bræður stundum að æfa okkur í akstri hjá honum. Svo eignaðist hann kærustu norður í Vatnsdal. Og ferðalögin norður og norðan urðu lærdóms- tími. Minnist svipsins á verðandi tengdaföður hans er við rennd- um í hlað í Saurbæ á Simcunni um hávetur í brunagaddi og snjóþyngslum. Flestir vegir virt- ust Mumma ævinlega færir. Mummi og Sigrún byggðu við gamla bæjarhúsið og síðan fal- lega og snyrtilega vélageymslu þar sem fljótlega var farið að gera við fyrir sveitunga. Mummi var vel metinn fyrir þá hjálp- semi. Allt lék í höndum hans. Hann hafði yndi af að halda bíl- um vel hirtum og var ekki við hæfi að koma í heimsókn til hans á óþrifnum bíl. Saman stóðu ungu hjónin að framförum og myndarskap á býlinu. Þar var Guðmundur Guðbrandsson meira að segja byggt gufubað. Nokkuð sem óvíða tíðkaðist þá. Í minningunni iðaði bærinn af glaðværum börnum og sumar- börnum þar sem nóg var að leika og starfa. Mummi og Sigrún voru sam- taka í því að hlúa vel að öllu er búið varðaði. Ræktunarfólk voru þau bæði og var unaðslegt að fylgjast með skógrækt þeirra eftir að þau hættu að búa með skepnur. Með búskapnum var Mummi veiðimaður á fugl og fisk, unn- andi heiðarinnar. Fór um heiðina vetur sem sumur og var afburða grenjaskytta. Einu sinni ætlaði hann að kenna mér að skjóta rjúpu. Þeirri leiðsögn lauk með því að hann sagði mér að taka heldur um hlaupið á byssunni og rota rjúpuna með skeftinu. Afar fallegt safn uppstoppaðra dýra þeirra vakti jafnan verðskuldaða aðdáun. Þegar við Jónína mín urðum par var einhver fyrsta ferð okkar saman gerð í Saurbæ. Oft síðan nutum við gestrisni og góðra stunda með fjölskyldunni þar. Og nú er leiðir okkar skilur um sinn veit ég að afi og amma taka vel á móti Mumma, og það verður honum gott að komast til þeirra eftir langt og strangt heilsuleysi. Við fjölskyldan biðjum Mumma fóstra mínum Guðs blessunar, að hann styrki ykkur Sigrúnu, Sesselju, Höllu, Sif, Andra og allt ykkar fólk. Hver veit hvort hinsta kvöld vort er nær eða fjær lofum því líðandi stund hvern ljúflingsfund vinur kær. Þinn einlægur vinur, Guðlaugur Óskarsson. Hann Mummi í Saurbæ er fallinn frá. Síðustu mánuðir og ár voru honum erfið, hann fjarlægð- ist alltaf meira og meira sökum veikinda. Áður glímdi hann nokkur ár við Bakkus sem lék hann oft illa. Við kynntumst Mumma er hann kom með systur og mág- konu í Saurbæ og gerðist bóndi. Strax kom í ljós hvílíkum hæfi- leikum hann bjó yfir og snyrti- mennska hans var einstök. Hann var góður bóndi, hann var refaskytta, hann var skólabíl- stjóri, hann var veiðivörður, hann gerði við bíla og hverskon- ar tæki, hann var mikið náttúru- barn. Hann sótti á heiðarnar, í göngur og smalamennsku, síð- ast en ekki síst stundaði hann silungsveiði í vötnum heiðanna og áttum við þar margar góðar stundir með honum og Sigrúnu hans. Margt fleira gerði hann, ekki síst var annáluð snyrti- mennska hans í skúrnum þar sem öllu var snyrtilega upp rað- að og merkt, hver hlutur átti sinn stað og hægt var að ganga að honum vísum þar. Sonur okkar Grímur var mörg sumur í Saurbæ, kom þar til dvalar 5 ára og dvaldi sum- arlangt þar til hann varð 18 ára, má þakka Mumma og Sigrúnu að hann gerðist bóndi, þau kveiktu áhuga hans á búskap og hjá þeim lærði hann margt nyt- samlegt í búskap, ekki síst lærði hann margt í viðhaldi og við- gerðum tækja hjá Mumma. Við þökkum Mumma samfylgd nær 60 ára, við nutum gestrisni í Saurbæ og áttum þar með þeim margar gleðistundir. Vottum Sigrúnu, Sesselju, Höllu, Sif, Andra og fjölskyldum innilega samúð. Minningin lifir í hugum okk- ar. Sæunn, Freydís og Guðmundur Karl. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.