Morgunblaðið - 27.04.2020, Page 24

Morgunblaðið - 27.04.2020, Page 24
B rynhildur er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún gekk í Fossvogs- skóla, Réttarholtsskóla og Menntaskólann við Hamrahlíð þaðan sem hún lauk stúdentsprófi árið 1990. Hún tók BA-gráðu í almennri bókmennta- fræði árið 1993 frá Háskóla Íslands, post graduate-gráðu frá Drama Studio London 1994 og ABRSM- próf frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2000. Hún var kynningarstjóri Máls og menningar og seinna Eddu útgáfu á árunum 1999-2004 og hefur starfað sem blaðamaður á Frétta- blaðinu með hléum frá 2004. Þá vann hún að dagskrárgerð á Rás 1 á RÚV frá 2007 til 2015, bæði í útvarpi með þáttinn Leynifélagið og sjón- varpi en þátturinn Vasaljós undir hennar stjórn var tilnefndur til Edduverðlauna í flokki barna- og unglingaefnis árið 2013. Brynhildur dvaldi um hríð í Ma- puto í Mósambík á árunum 2001 til 2004, þar sem faðir hennar var sendiherra og tók þar meðal annars þátt í uppfærslu Opera Moçambique á Carmen þar sem hún fór með hlut- verk Michaelu. Hún hefur gert þrjár fræðslustuttmyndir fyrir börn og unglinga um varnir gegn kynferð- islegu ofbeldi: Fáðu já 2013, ásamt Páli Óskari Hjálmtýssyni og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur, og Stattu með þér 2014 og Myndin af mér 2018 með Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur og Höllu Kristínu Einarsdóttur en Stattu með þér var tilnefnd til Edduverðlaunanna í flokki barna- og unglingaefnis 2014. Þá hefur hún skrifað tvær bækur, Kramhúsið – orkustöð í miðbænum árið 2013 og Komdu út! Virknibók fyrir fjölskyld- una með Kristínu Evu Þórhalls- dóttur. Brynhildur er einn stofnfélagi femíníska vefritsins Knúz.is og var í framboði til Alþingis fyrir VG árin 2017 og 2018. Brynhildur er félagi í víkinga- félaginu Rimmugýgi í Hafnarfirði frá árinu 2000 og í burlesk-hópnum Dömur og herrar sem stofnaður var í Kramhúsinu árið 2017. Hún er einnig annar stofnandi og stjórnar- formaður Blúshátíðar í Reykjavík. Þá er hún stjórnarformaður Nem- enda- og hollvinasamtaka Mennta- skólans við Hamrahlíð. Hún starfar nú sem verkefnis- stjóri Vísindafélags Íslands og sinn- ir bókmenntagagnrýni fyrir Frétta- blaðið og leikhúsgagnrýni fyrir RÚV. „Ég hef alltaf haldið tónleika á af- mælinu mínu, eða að minnsta kosti stefnt að því að vera með einhvers konar „performans“. Þótt ég sé ekki starfandi söngkona þá er ég með þessa menntun og hef notið þess að syngja, núna ætlaði ég að halda tón- leikaröð, þrenna tónleika, á Korn- hlöðunni, í tilefni fimmtugsafmæl- isins, en auðvitað er það ekki hægt núna eins og staðan er,“ segir Bryn- hildur og vísar til kórónuveirunnar sem nú umlykur allt. Óneitanlega fæst Brynhildur við mjög ólíka hluti í lífinu, hvernig kom tónlistar- ástundunin til? „Ja, hún kom eig- inlega fyrst. Ég byrjaði á að fara í leiklistarskóla og svo í Söngskólann í Reykjavík, en það var ekki fyrr en nokkrum árum seinna sem ég fór að vinna á fjölmiðlum,“ útskýrir Bryn- hildur og kveðst um þessar mundir sinna ólíkum verkefnum. „Mitt aðal- starf núna er sem verkefnisstjóri hjá Vísindafélagi Íslands þar sem ég sé meðal annars um að halda mál- þing og breiða út boðskap vís- indanna á Íslandi sem er mjög gef- andi og skemmtilegt starf og blandar í raun saman fjölmiðla- manneskju og svona almennum nörd sem ég er líka,“ segir Bryn- hildur og hlær. Hún skrifar auk þess reglulega í Fréttablaðið, einkum Brynhildur Björnsdóttir, fjölmiðla- og söngkona – 50 ára Mæðgur Hér er Brynhildur frekar ný af nálinni með móður sinni, Sigrúnu Valdimarsdóttur. Myndin er tekin árið 1970. Alltaf haldið tónleika á afmælinu Fimmtug Brynhildur býður í kaffi á afmælinu með tveggja metra millibili. 24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020 40 ára Sigurbjörg Dóra Ragnarsdóttir er frá Reykjavík en búsett í Mosfellsbæ. Hún er hársnyrtir að mennt frá Iðnskólanum í Reykja- vík sem þá hét og starfar á Aristó hár- stofu í Mosfellsbæ. Maki : Jón Ágúst Valdimarsson, f. 1978, húsasmiður úr Reykjavík. Börn: Anton Darri, f. 2000, Telma Dröfn, f. 2002, og Karen Brá, f. 2003. Foreldrar: Ragnar Óli Ragnarsson frá Hafnarfirði, f. 1961, umsjónarmaður fasteigna, og Jórunn Halldórsdóttir frá Reykjavík, f. 1962, skólaliði. Þau búa í Hafnarfirði. Sigurbjörg Dóra Ragnarsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er stutt í einhvern stóratburð sem þú þarft að vera reiðubúin/n fyrir hvað sem það kostar. Vertu á varðbergi gagnvart sölufólki. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur gert of miklar kröfur til ann- arra. Talaðu um það og afsakaðu það. Þú ferð á námskeið sem veldur því að þú færð hugljómun. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Stundum verður bara að kýla á hlutina en ekki bíða þess að þeirra tími sé kominn. Þú hittir einhvern sem á eftir að heilla þig upp úr skónum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Enginn veit jafn vel og þú hvers þú þarfnast. Gerðu áætlun sem þú skalt svo fylgja sama hvað. Gefðu fólki stundum ann- að tækifæri. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er nauðsynlegt að lesa smáa letr- ið ekki síður en aðalefni allra samninga. Stutt ferðalag gæti hresst upp á sálartetrið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þetta er góður dagur fyrir þá sem standa í framkvæmdum heima hjá sér. Allt gengur upp og þú færð hrós fyrir sniðugar lausnir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér býðst óvænt tækifæri í dag. Gættu þess að láta ekki aðra stjórna þér. Það fjölg- ar í fjölskyldunni þegar líður á árið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það tekur á taugarnar þegar þeir sem manni eru kærir sýna þrjósku og afneita staðreyndum. Þú ert að skipuleggja framtíð þína upp á nýtt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er engu líkara en einhverju moldviðri hafi verið þyrlað upp í kringum þig. Láttu það eftir þér að kaupa eitthvað fallegt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að æfa þig í að auka sjálfsöryggi þitt. Gamall vinur kemur óvænt í heimsókn og færir þér fréttir sem eiga eft- ir að breyta ýmsu hjá þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gefðu þér tíma til þess að sinna áhugamálunum þótt barnauppeldið taki næstum allan þinn tíma. Þú færð kæran vin í heimsókn. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér eldri og reyndari manneskja ræður þér heilt í dag. Mundu að það er und- ir þér komið hversu hamingjusöm/samur þú ert. 50 ára Guðmundur Fannar Guðjónsson er frá Akranesi en býr í Reykjavík. Hann er matreiðslumeistari, lærði við Hótel- og veitingaskóla Íslands og tók samninginn á Akranesi, en starfar nú í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Maki: Hugrún Magnúsdóttir, f. 1973, starfsmaður í leikskólanum Nóaborg í Reykjavík. Sonur: Ingibjörn Natan Guðmundsson, f. 2009. Foreldrar: Guðjón Guðmundsson, f. 1949, vélvirki, og Ríkey Andrésdóttir, f. 1951, sjúkraliði. Þau eru búsett á Akranesi. Guðmundur Fannar Guðjónsson Til hamingju með daginn BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR • Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré • Mikið úrval efna, áferða og lita • Framleiðum eftir óskum hvers og eins • Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.