Morgunblaðið - 27.04.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 27.04.2020, Síða 25
bókmenntagagnrýni. Hvað með fræðslumyndagerðina, hvernig stendur á henni? „Það var þannig að við Palli [Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður] erum mjög góðir vinir úr Menntaskólanum við Hamrahlíð. Við vorum að ræða það okkar á milli hvað hægt væri að gera betur í sambandi við skilning og upplifun unglinga af kynlífi og sam- skiptum. Við fengum til liðs við okk- ur Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur, bar- áttukonu gegn kynferðisofbeldi sem þá þegar bjó yfir ríkulegri reynslu af gerð fræðsluefnis, og svo fæddist handritið að fyrstu myndinni sem við hlutum styrk til að gera. Palli var svo á fullu í tónlistinni og hafði ekki tök á að koma að næstu mynd með okkur, svo við Þórdís stóðum að baki henni. Við fengum svo styrk frá Vodafone og Jafnréttissjóði til að gera þriðju myndina,“ segir Bryn- hildur. Ekkert verður af tónleika- haldi á afmælisdaginn, en þess í stað hyggst afmælisbarnið halda röð kaffiboða með tveggja tíma og tveggja metra millibili svo sem uppálagt er á kórónuveirutímum. Fjölskylda Fyrri maki Brynhildar er Magnús Teitsson, f. 19.4. 1972, prófarkales- ari í Reykjavík, börn þeirra eru Valgerður Birna Magnúsdóttir, f. 12.1. 2006, og Sigrún Ásta Magn- úsdóttir, f. 17.10. 2008. Hálfsystir Brynhildar er Sigurveig Huld Sig- urðardóttir, f. 1.9. 1954, dósent í fé- lagsráðgjöf við Háskóla Íslands, for- eldrar Brynhildar eru Sigrún Valdimarsdóttir, f. 9.1. 1936, d. 6.5. 2001, leiðsögumaður og bankastarfs- maður í Reykjavík, og Björn Dag- bjartsson, f. 19.1. 1937, fyrrverandi alþingismaður og sendiherra. Brynhildur Björnsdóttir Björg Jónína Þorsteinsdóttir húsfreyja í Sandvík í Bárðardal Sigurður Friðriksson bóndi í Bárðardal Dagbjartur Sigurðsson bóndi í Álftagerði í Mývatnssveit Kristjana Ásbjörnsdóttir kennari og húsfreyja í Álftagerði í Mývatnssveit Björn Dagbjartsson fyrrverandi alþingismaður og sendiherra í Reykjavík Ásbjörn Stefánsson bóndi á Guðmundarstöðum á Vopnafirði Ástríður KristjanaSveinsdóttir húsfreyja á Guðmundarstöðum á Vopnafirði Hildur Vigfúsdóttir húsfreyja í Hemru í Skaftártungu Jón Einarsson hreppstj. og Dannebrogsmaður í Hemru í Skaftártungu Valdimar Jónsson skólastjóri í Vík í Mýrdal og bóndi í Hemru í Skaftártungu Sigurveig Guðbrandsdóttir húsfreyja í Vík í Mýrdal Elín Björnsdóttir húsfreyja á Loftsölum í Mýrdal Guðbrandur Þorsteinsson vitavörður á Loftsölum í Mýrdal Úr frændgarði Brynhildar Björnsdóttur Sigrún Valdimarsdóttir leiðsögumaður og bankastarfsmaður í Reykjavík DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020 AÐ VINNA HEIMA ER FRÁBÆRT – ÞEGAR ÞÚ HEFUR SETT ÁKVEÐIN MÖRK. „TAKTU EITT HYLKI Í KVÖLD OG EF ÞÉR ER EKKI BATNAÐ Í FYRRAMÁLIÐ SKALTU BARA KLÁRA ALLT PILLUGLASIÐ.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... samansafn margra hluta. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann PÚKI ER FRÁBÆR EN EKKI SVO FRÁBÆR ÞETTA ER SKELFILEGT! ÚFF! KLÆNG VÆRI ÞÉR SAMA ÞÓTT VIÐ FÆRÐUM OKKUR Í SKUGGANN? ER ÉG AÐ TRUFLA? Hörður Þorleifsson sendi mérsumarkveðjur, sagðist vona ég væri hress þrátt fyrir þær hörm- ungar sem gengju nú yfir heiminn. Og bætti við: „Virus er latneskt orð sem þýðir eitur. Nú er sumarið að byrja. Í stafakveðanda um allt staf- rófið eru þessar vísur til“: Ég er ekki mæðumaður. Mýkist geð við skýjarof. Er nú alltaf gegn og glaður og gef því öllum tíma lof. Fögnum vori um vetrarlok, virðum aukinn sólargang. Hverfur ekki regn né rok sem rýkur okkur beint í fang. Gaman er að geta ort á góðum degi vísu þá sem hérna æxlast upp á sport og endar nú á stafnum h. Harpa vekur von að nýju, veit að sumardagur fyrsti býður upp á blíðu og hlýju þó blendinn sé og stundum frysti. Friðrik Steingrímsson yrkir á Leir og þarfnast ekki skýringa: Dýru verði góðverk gjalda gjarnan þeir sem annað halda. Nú á hann Skírnir í nokkrum vanda, í nafni Guðs friðar og heilags anda. Pétur Stefánsson yrkir á síðasta vetrardegi og kallar „Vorhnoð“: Veðrið blíða vermir sál, vafstri eyðir hörðu. Vorsins græna gróðurnál glæðir líf í jörðu. Einnig má hafa vísuna víxlhenda: Ylur í blænum sefar sál. Sjatna kífin hörðu. Vorsins græna gróðurnál glæðir líf í jörðu. Nú er sólríkt norðan og austan: Bráðna svell hjá bændaþjóð, blómgast fell og garðar. Sólin hellir geislaglóð glatt á velli jarðar. Kristjana Sigríður Vagnsdóttir svarar með vísu um „Vorið“: Vorið kemur, vandi og rex vindur herðir róminn. Út með hlíðum vatnið vex vaxa fögur blómin. Fornt viðlag í lokin: Við skulum búa, blómarósin fríða, á þeim skóg, sem aldin stár og laufin vaxa á liljukvistum víða. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vírus er latneskt orð og þýðir eitur Við erum sérfræðingar í malbikun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.