Morgunblaðið - 27.04.2020, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020
Fjarþjónusta
fyrir betri heyrn
ReSound Smart3D
Afgreiðslutími 10:00-14:00 • Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Við bendum þeim á sem komast ekki í heyrnarþjónustu til okkar
að nýta sér forritið ReSound Smart3D í snjalltækjum
og fá þar heyrnartækin sín fínstillt og uppfærð.
Með fjarþjónustunni er snjalltæki notað til að senda
heyrnarfræðingum beiðni um að breyta stillingu ReSound Linx 3D
og Quattro heyrnartækjanna.
Við svörum eins fljótt og auðið er.
Nánari upplýsingar er á finna á www.heyrn.is eða í síma 534 9600.
Birta Guðjónsdóttir, sýningarstjóri
og myndlistarmaður, mælir hér
með forvitnilegum viðburðum að
fylgjast með, lesefni og öðru sem
hentar vel fólki heima í samko-
mubanni:
„Hver dagur er sunnudagur og
heimaveruleikinn orðinn dálítið
absúrd. Ég er ein af þeim heppnu,
frísk og með mikla heimavinnu og
upplifi því ástandið hvorki sem
hvíldar- né biðástand. Ég er ekki
að hámhorfa á sjónvarpsseríur,
ekki að þrífa skápana, ekki að
læra á nýtt
hljóðfæri … En,
ég finn að
ástandið hefur
tilfinningaleg
áhrif, ég sakna
samveru við vini
og fjölskyldu,
finn fyrir útþrá
og innilok-
unarkennd á eyj-
unni, og póesíu í
lífinu. Þegar
samkomubann var hert fylgdist ég
með Niflungahring Wagners dag-
lega í viku á vef Metropolitan-
óperunnar í NY og mæli með upp-
tökum frá óperuuppfærslum þar.
„Við erum ekki aðeins að berjast
við farsótt; við erum að berjast við
faraldur rangra upplýsinga,“ sagði
yfirmaður Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar með dóms-
dagssvip og í kjölfarið lét ég mig
sogast inn í hringiðu allskyns sam-
særiskenninga um Covid-19 á
hlaðvarpinu Stuff they don’t want
you to know. Menningarneysla
mín litast þessa dagana af þörf
fyrir að halda tengingu við fag
mitt innan og utan eyjunnar í
heimaverunni. Ég elska vikulega
gjörninga listamannsins Karls
Holmqvist á vef Gavin Browns En-
terprise, hlusta á áhugaverða fyr-
irlestra á síðu Haus Der Kulturen
der Welt í Berlín og frábært hlað-
varp um listir og menningu á vef
Hyperallergic.com.
Ég hef líka þörf fyrir léttmeti
og hef verið að horfa á mat-
reiðslu-ferðaþætti New York Tim-
es Magazine-matarskríbentsins
Samin Nosrat, Salt, Fat, Acid,
Heat, á Netflix, og nýt þess þá „að
sitja kyrr á sama stað en samt að
vera að ferðast“. Mér finnst
áhugavert og viðeigandi á heims-
faraldurstímum að horfa á dásam-
legu matreiðsluþættina Great De-
pression Cooking þar sem 98 ára
gömul húsmóðir
segir frá og eld-
ar mat sem eld-
aður var á æsku-
heimili hennar í
kreppunni miklu
í BNR. Mann-
kynið þjáist svo
sannarlega ekki
af sköpunar-
kreppu þótt tím-
arnir sem við lif-
um séu viðkvæmir, framboð á
listtengdu efni er ótæpilegt og svo
margt áhugavert gert á netinu til
að virkja sköpunarkraft okkar
sem heima sitjum. Fyrir rúmri
viku hóf ég svo að lesa skrif guð-
spekingsins Gretars Fells úr bók
hans Það er svo margt, frá 1974,
sem ég keypti og las fyrst sem
unglingur. Textinn talar inn í til-
finningu sem á sér samsvörun í
upplifun margra af veiruástand-
inu; innri skilning á dulvitund og
tengingu mannkyns sem eins lík-
ama.“
Mælt með í samkomubanni
AP
Úr Rínargullinu Birta fylgdist með streymi frá Metropolitan-óperunni.
Wagner og sam-
særiskenningar
Birta
Guðjónsdóttir
Gjörningar Listamaðurinn Karl
Holmqvist á vef gallerísins.
Bandaríski ljósmyndarinn John
Pfahl, sem var meðal annars þekkt-
ur fyrir hugvitssamlegan og form-
rænan leik í landslagsljósmyndun,
er látinn af völdum COVID-19-
veirunnar, 81 árs að aldri.
Löngu fyrir tilkomu mynd-
vinnsluforrita var Pfahl farinn að
stilla hversdagslegum hlutum inn í
landslag með markvissa og oft
spaugilega útkomu í huga, eins og í
þessu verki hér þar sem hann gerði
sína útgáfu af Bermúdaþríhyrn-
ingnum svokallaða með svörtu
snæri. Þá fann hann og vann með
óvænta fegurð á stöðum á borð við
hjólbarða- og sorphauga.
Verk eftir Pfahl eru í mörgum
helstu listasöfnum vestanhafs sem
safnað hafa ljósmyndaverkum auk
þess sem þau má sjá í mörgum safn-
ritum um ljósmyndalist. Hann starf-
aði sem prófessor í ljósmyndun í
Buffalo og hafði áhrif sem slíkur.
Ljósmyndarinn John Pfahl allur
John Pfahl - Janet Borden Gallery
Formleikur Verkið „Triangle, Bermuda,
August 1975“ eftir John Pfahl.
Plan B er hnyttin saga, full afhúmor og hreinskilni. Þarsegir frá Gyðu, afkastamikluskáldi sem hefur gengið
erfiðlega að fá útgáfusamning. Þegar
hún ætlar loks að skrifa stóra skáld-
sögu sem hún er viss um að muni slá í
gegn hrjáir hana mikil ritstífla og hún
fer þess í stað að skrifa bók fulla af
atvikalýsingum úr lífi sínu.
Persónusköpun í bókinni er virki-
lega góð en þar skjóta upp kollinum
ýmsar áhugaverðar persónur eins og
Jesper, danskur sonur klámbúðareig-
anda sem bíður dauða föður síns með
eftirvæntingu, og Ahmed, fúllyndur
karlmaður sem neitar að tjá sig um
uppruna sinn. Einstaka lýsingar í bók-
inni eru einnig líflegar og skemmti-
legar. Söguþráður bókarinnar er þó
ekki upp á marga fiska og er höfundur
bókarinnar, þ.e.a.s. Gyða sjálf, ekki
Guðrún Inga, fullkomlega meðvitaður
um það:
„Ég er búin að draga lesendurna á
asnaeyrunum alla söguna, lofa upp í
ermina á mér að eitthvað fari loks að
gerast, en svo gengur ekkert upp.“
Gyða er mjög meðvituð um lesendur
bókarinnar og útgefendur sem gætu
lesið söguna yfir.
Þannig grátbiður
höfundur útgef-
endur um að lesa
söguna og afsakar
sig í sífellu við les-
endur.
Þessi sterka við-
vera höfundarins
er að vissu leyti
nauðsynleg per-
sónu Gyðu en á sama tíma verður hún
fljótlega leiðigjörn og er til þess fallin
að lesandinn á erfitt með að gleyma
sér í sögunni. Hann er í sífellu minntur
á að hann sé að lesa bók, þó atburðir
hennar séu settir fram sem sannir at-
burðir, og nær því ekki að festast í
söguheiminum sjálfum.
Persóna rithöfundarins er gamal-
gróin í bókmenntum. Í hvert skipti
sem undirrituð les sögu þar sem höf-
undurinn er í aðalhlutverki þá velti ég
fyrir mér hvort ímyndunarafl höfund-
arins sé svo ótrúlega takmarkað og
hann svo sjálfhverfur að hann geti ekki
skrifað um neitt annað en sinn eigin
veruleika. Sú er þó eflaust ekki raunin
í tilfelli Plans B því hugmyndaauðgin
er alltumlykjandi og óreiðukenndur
söguþráður hennar sannarlega ekki
fyrirsjáanlegur.
Plan B er fyrsta skáldsaga Guð-
rúnar Ingu. Þar má finna mikinn kraft
og verður spennandi að sjá framtíðar-
ritverk Guðrúnar Ingu sem aug-
ljóslega hefur margt til brunns að
bera.
Spennandi persónur
í slöppum þræði
Höfundurinn Rýnir hrósar hugmyndaauðginni í sögu Guðrúnar Ingu.
Skáldsaga
Plan B
bbbnn
Eftir Guðrúnu Ingu Ragnarsdóttur.
JPV útgáfa, 2019. Kilja, 341.
RAGNHILDUR
ÞRASTARDÓTTIR
BÆKUR
Bretarnir rígfullorðnu í hljómsveit-
inni Rolling Stones sendu fyrir
helgi frá sér fyrsta nýja lagið í átta
ár. Nefnist það „Living In a Ghost
Town“. Söngvarinn Mick Jagger lét
hafa eftir sér að lagið kallaðist á við
tímana sem við nú lifum og ástand-
ið vegna kórónuveirunnar en í text-
anum segir meðal annars að lífið
hafi verið fagurt, þangað til við vor-
um öll lokuð inni.
Gítarleikarinn Keith Richards
sagði á samfélagsmiðlum að lagið
væri hluti af upptökum sem hljóm-
sveitin gerði í Los Angeles fyrir ári
og ætti að vera á væntanlegri plötu.
Sökum þess hvernig það talaði inn í
tímann kæmi það nú út.
Fyrsta nýja lag Rolling Stones í átta ár
AFP
Sprækir Rolling Stones á sviði í fyrra.