Olympíublaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 3

Olympíublaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 3
OLYMPlUNEFND ISLANDS 3 OLYMPÍUBLAÐIÐ 1. tölublað - 1. árgangur Utgefandi: Olympíunefnd Islands Abyrgðarmaður: Gísli Halldórsson Ritstjóri: Kjartan L. Pálsson Setning og prentun: V íkingsprent EFNISYFIRLIT Fylgt úr hlaði 3 Saga Olympíunefndar Isl. 5 Þau hafa tekið þátt í Vetrar-olympíuleikunum fyrir íslands hönd .... 6 Þau kepptu í Sarajevo .. 8 Góðir gestir í heimsókn . 9 Þau hafa tekið þátt í Sumar-olympíuleikum fyrir Islands hönd .... 10 Olympíufundurinn í Los Angeles 14 Styrkir frá olympíunefnd 18 099 Það eru nú liðlega 60 ár síðan Olympíunefnd íslands var stofnuð. Það er langur tími miðað við endurreisn íþrótta hér á landi, en segja má að síðan séu 120 ár. A þessum 60 árum hefur margt gerst í starfi Olympíunefndarinnar, sem er snar þáttur í íþróttasögu okkar ogfrelsisbaráttu okkar til þess að fá leyfi til að taka þátt í Olympíuleikunum sem sjálfstœð þjóð. Þessvegna hefur nefndin nú ráðist í það að gefa út Olympíublað. Utgáfan á ekki að vera umfangsmikil, aðeins er gert ráðfyrir einu blaði á ári, nema þegar Olympíuleikar fara fram þá komi út tvö blöð. Blaðið á ekki að vera fréttablað í þeim skilningi, en í því œttu að birtast sögulegar heimildir um störf Olympíunefndarinnar, þátttöku okkar í leikunum frá upphafi og fróðlegar upplýsingar um Alþjóða- olympíunefndina og Olympíuleikana frá upphafi. Tilþess að blaðið geti flutt slíkan fróðleik er óskað eftir að eldri þátttakendur í leikunum sendi okkur greinargóðar upplýsingar um leikana og þátt Islands íþeim, svo og aðrir sem fylgst hafa með þessari mestu œskulýðs- og friðarhátíð heims - Olympíuleikunum. Efmargir leggjast á eitt og styðja blaðið með greinum og upplýsingum, gœti hér orðið vísir að sögu afréksíþrótta- manna okkar, en þá höfum við átt marga á liðnum árum. Olympíunefndin hefur ráðið hinn kunna íþróttafréttaritara og íþróttamann Kjartan L. Pálsson sem ritstjóra blaðsins. Hann mun sjá um endanlegt efnisval og umbrot blaðsins. Þá mun Ingvar JV. Pálsson safna efni í blaðið í samráði við ritstjórann. Það er von Olympíunefndar Islands að íþróttamenn og landsmenn allir fagni þessari útgáfu Olympíublaðs, styrkiþað ogstyðjisvo það geti orðið enn einn traustur hlekkur í íþróttasögu okkar. Gísli Halldórsson

x

Olympíublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Olympíublaðið
https://timarit.is/publication/1457

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.