Olympíublaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 9

Olympíublaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 9
OLYMPlUNEFND ISLANDS 9 Q9P Fulltrúar á fundi olympíunefndar Norðurlandanna sem haldinn var hér í sumar, heimsótti forseta Islands Vigdísi Finnbogadóttur að Bessastöðum. Hér má sjá hluta af fulltrúunum ásamt forseta Alþjóða olympíunefndarinnar Juan Antonio Samaranch frá Spáni. Góðir gestir í heimsókn Á undanförnum árum hefur norræna samstarfið aukist mjög mikið á íþróttasviðinu. Nú halda olympíunefndir Norðurlanda þing árlega, til skiptis í löndunum, þar sem fulltrúar nefndanna koma saman, svo og fulltrúar land- anna í Alþjóða olympíunefndinni. Einn slíkur fundur var haldinn hér sl. sumar, og var það í annað sinn sem slíkur fundur er haldinn hér á landi. I tilefni fundarins sýndi forseti Alþjóða olympíunefnd- arinnar, hr. Juan Antonio Samaranch, okkur þann heiður að koma hingað og setja Norðurlandaþingið. Er það í fyrsta skipti sem forseti AON kemur til Islands. Sérstök dagskrá var gerð fyrir hann, m.a. heimsótti hann menntamálaráð- herra, Ragnhildi Helgadóttur, og ræddi við forsætisráð- herra, Steingrím Hermannsson, í hádegisverði er hann hélt í ráðherra bústaðnum, honum til heiðurs ogöðrumerlend- um gestum. Farið var með hann til Þingvalla og söfn skoðuð. Þá var efnt til blaðamannafundarmeð honum, þar sem hin margbrotnu olympíumál voru rædd. Eftirtaldir aðilar hafa styrkt útgáfu Olympíublaðsins Albert Guðmundsson, heildverslun Björgvin Schram, heildverslun Gunnar Eggertsson hf. Henson, sportfatnaður íspan hf. Nathan & Olsen Samvinnuferðir - Landsýn Scana, fataverksmiðja Sjóvátryggingarfélag íslands hf. Sveinn Egilsson hf. Teiknistofan hf. Ármúla 6 Um leið og Olympíunefnd Islands þakkar ofan- stofnunum og öðrum fyrirtækjum, sem styrkt hafa greindum fyrirtækjum fyrir skilning og velvilja í starfsemi nefndarinnar á olympíuári með einum garð íslenskra íþróttamanna, þakkar hún einnig eða öðrum hætti.

x

Olympíublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Olympíublaðið
https://timarit.is/publication/1457

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.