Olympíublaðið - 01.04.1984, Qupperneq 11

Olympíublaðið - 01.04.1984, Qupperneq 11
íslensku keppendumir ganga inn á leikvanginn á olympuileikunum í Moskvu 1980. Fánaberi er Birgir Borgþórsson. sund, Sigurður Jónsson (KR) 200 m bringusund, Sigurður Jónsson (Þingeyingur) 200 m bringusund. Arið 1952 fóru fímmtándu Olympíuleikarnir fram í Helsingfors. Fararstjórn: Benedikt G. Wáge, formaður OI, Jens Guðbjörnsson, farar- stjóri, Garðar S. Gíslason, Benedikt Jakobsson. Frjálsíþróttir: Ásmundur Bjarnason, 100, 200 og 4x100 m boðhlaup, Friðrik Guðmundsson, kringlukast, Guðmundur Lárusson, 400 og 800 m hlaup, Hörður Haraldsson, 100 og 200 m hlaup, Ingi Þorsteinsson, 110 og 400 m grindahlaup og 4x100 m boðhlaup, Kristján Jóhannsson, 5000 og 10000 m hlaup. Pétur Fr. Sigurðsson, 100 m og 4x100 m boðhlaup, Torfi Bryngeirsson, stangarstökk, Þorsteinn Löve, kringlu- kast, Orn Clausen var skráður í tugþraut. Arið 1956 fóru sextándu Olympíuleikarnir fram í Melbourne. Fararstjórn: Olafur Sveinsson, fararstjóri. Frjálsíþróttir: Hilmar Þorbjörnsson, 100 m hlaup, Vilhjálmur Einarsson, þrístökk. Á þessum leikum vann Vilhjálmur Einarsson það afrek að verða annar í þrístökki, stökk Vilhjálmur 16,25 m í annarri tilraun, sem var þá Olympíumet, en í næstsíðustu tilraun tókst Da Silva að stökkva 16,35 m og þar með að sigra í keppninni. Árið 1960 fóru sautjándu Olympíuleikarnir fram í Róm á Ítalíu. Fararstjórn: Benedikt G. Wáge, forseti ÍSÍ ogfulltrúi íCIO, Brynjólfur Ingólfsson fararstjóri, Erlingur Pálsson flokksstjóri sund- fólks, Benedikt Jakobsson flokksstjóri frjálsíþróttamanna, Jens Guðbjörnsson gjaldkeriÓÍ, Jónas Halldórsson þjálfari sundfólks, Gabriel Simonyi Gabor þjálfari frjálsíþrótta- manna. Frjálsíþróttir: Björgvin Hólm, tugþraut, Hilmar Þorbjörnsson, 100 m hlaup, Jón Pétursson, hástökk, Pétur Rögnvaldsson, 110 m grindahlaup, Svavar Markússon, 800 og 1500 m hlaup, Valbjörn Þorláksson, stangarstökk, Vilhjálmur Einarsson, þrístökk og langstökk. Sund: Ágústa Þorsteinsdóttir, 100 m skriðsund, Guðmundur Gíslason, 100 m skriðsund. Árið 1964 fóru átjándu Olympíuleikarnir fram í Tokyoí Japan. Fararstjórn: Benedikt G. Wáge, fulltrúi íCIO, Ingvi Þorsteinsson, farar- stjóri. Frjálsíþróttir: Jón Ólafsson, hástökk, Valbjörn Þorláksson, tugþraut.

x

Olympíublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Olympíublaðið
https://timarit.is/publication/1457

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.