Olympíublaðið - 01.04.1984, Page 13
OLYMPÍUNEFND ÍSLANDS
13
099
Keppendur íslands á olympíuleikunum 1968 en þeir fóru fram í Mexico. Þangað sendi ísland 3 frjálsíþróttamenn, 1 lyftingamann og 4
sundmenn.
Frjálsíþróttir:
Hreinn Halldórsson, kúluvarp, Oskar Jakobsson, kúluvarp
og kringlukast. Oddur Sigurðsson, 100 m og 400 m hlaup,
Jón Diðriksson, 800 og 1500 m hlaup.
Lyftingar:
Guðmundur Helgason, 100 kg flokkur, Þorsteinn Leifsson
90 kg flokkur, Birgir Borgþórsson, 85,5 kg flokkur.
Júdó:
Bjarni Friðriksson, 95 kg flokkur,
Halldór Guðbjörnsson, 75 kg flokkur.
LUKKUTRÖLL
OLYMPÍULEIKANNA
Það hefur verið siður áolympíuleikum síðari ára, að hafa
einskonar lukkutröll, eða ,,maskott“ sem tákn fyrir leikana.
Hafa þessi lukkutröll verið til í allskonar útgáfum og seld
sem mynjagripir fyrir leikana.
Fyrsta lukkutröllið sást áleikunum íMunchen 1972. Var
það hundurinn ,,Waldi“. A leikunum í Montreal 1976 var
það oturinn ,,Amik“. Lukkutröll leikanna í Moskvu var
björninn ,,Misha“ en lukkutröll leikanna í Los Angeles
verður örninn ,,Sam“. . .