Olympíublaðið - 01.04.1984, Side 14
14
OLYMPÍUNEFND ÍSLANDS
OLYMPÍUFUNDURINN
I LOS ANGELES
Olympíufundur var haldinn í Los Angeles í Banda-
ríkjunum dagana 14. til 21. janúar 1983. Fundþennan
sóttu fyrir hönd Islands þeir Sveinn Björnsson og Bragi
Kristjánsson. Þeir sóttu þar marga fundi og ræddu við
fjölmarga aðila um margvísleg efni er varða bæði Sum-
ar- og Vetrar-olympíuleikana 1984. Einnig skoðuðuþeir
íþróttamannvirki svo og gististaði í Los Angeles. Var
þessi ferð í alla staði mjög vel heppnuð.
Eftir heimkomuna gáfu þeir mjög ítarlega skýrslu um
ferðina. Er skýrsla þessifróðleg lesning og því tókum við
okkur það bessaleyfi að taka úr henni nokkra punkta, en
skýrsla þessi var upp á 10 vélrituð blöð:
Mannvirkin skoðuð
Laugardaginn 15. janúar áttum við fund með fulltrúum
stjórnar Olympíuþorpanna, þeim Lee D. Aurich og
Charles M. Russell. Rætt var um væntanlega dvöl íslensku
þátttakendanna í Olympíuþorpi, en þá var ekki ákveðið
hvort hópurinn yrði á svæði UCLA (University of
California Los Angeles) eða USC (University of Southern
California).
Farið var yfir áætlun um fjölda þátttakenda og dvalar-
tíma. Ennfremur komu þeir með margar spurningar til við-
bótar við spurningalista sem Island hefur þegar svarað. Við
spurðum þá m.a. um dvalarkostnað í Olympíuþorpinu og
sögðu þeir að unnið væri að því að hann verði $35,00 á dag,
ef Olympíunefnd viðkomandi lands tilkynnir endanlega
heildarþátttöku fyrir 1. mars 1983 og greiðir helming fyrir-
fram fyrir 1. apríl 1984 og tryggir vegna skemmda $100,00
á mann fyrir 1. júní 1984.
Farið var í skoðunarferð um íþróttamannvirkin í Los
Angeles. Aðalleikvangurinn The Los Angeles Memorial
Coliseum, þar sem setning og lokahátíð Olympíuleikanna
1984 á að fara fram, var byggður fyrir Olympíuleikana
1932 og tekur um 100 þúsund manns. A þeim íþróttaleik-
vangi á einnig að fara fram frjálsíþróttakeppni Olympíu-
leikanna 1984. Eins og völlurinn lítur út í dag, er ekki hægt
að segja, að hann sé beint glæsilegur, og engan veginn hægt
að líkja honum t.d. við aðalleikvanginn í Montreal né í
Moskvu, enda vantar mikið á að svo sé. Þetta stendur þó
allt til bóta, eins og þeir tjáðu okkur.
Síðan var skoðað íþróttamannvirkið The Los Angeles
Memorial Sports Arena, þar sem hnefaleikarnir munu fara
fram, íþróttamannvirki byggt árið 1939 og tekur 16.200
manns í sæti, en íþróttamannvirki þetta stendur við hlið-
ina á aðalleikvanginum. Daglega er það notað fyrir
hnefaleika, körfuknattleik, íshokkí og sýningar.
Næst var USC Olympíuþorpið skoðað. Verið er að
byggja Olympíusundlaugina, sem á að kosta 4 milljónir
dollara, en sundlaugin stendur á umráðasvæði USC, milli
Olympíuleikvangsins og Olympíuþorpsins.
Selning olympíuleikana í Moskvu 1980 var rnikilskrautsýning, sern
erfitt verður að slá út. Bandaríkjamenn œtla se'r pó að gera betur en
Sovétmenn hvað þetta varðar á leikunurn í Lo.s Angeles.