Olympíublaðið - 01.04.1984, Qupperneq 15

Olympíublaðið - 01.04.1984, Qupperneq 15
Sveinn Björnsson og Bragi Kristjánsson á olympiufundinum í Los Angeles. USC Olympíuþorpið er ákaflega vinalegt og á eftir að verða það enn meir. Hér búa nú um 30 þúsund stúdentar. Aðstaða er til æfinga fyrir frjálsar íþróttir, svo og sund en æfingavöllinn á eftir að endurbæta og m.a. leggja á hann nýtt gerviefni. Frá USC Olympíuþorpinu er mjögstutt t.d. á aðalleikvanginn, en okkur fannst loftslagið vera mun meira mengað en t.d. í UCLA Olympíuþorpinu. Umferð um borgina var ekki sérstaklega mikil á þeim leiðum sem við keyrðum, eða okkur fannst það að minnsta kosti ekki, má e.t.v. þakka það því að það var sunnudagur. Olympíuþorpin vinaleg Síðan var ekið til Olympíuleikvangsins fyrir hjólreiðar og var snæddur þar hádegisverður. Þetta er útileikvangur, byggður fyrir tveimur árum og notaður allt árið um kring. A þessum velli var okkur sýnd hjólreiðakeppni milli þeirra manna, er munu æfa undir keppni fyrir USA á leikunum. Þá var keppnisaðstaða fyrir lyftingar sýnd, í nýju íþrótta- húsi, sem byggt var sem keppnishús í körfuknattleik og tekur 4500 manns í sæti. Eftir er að byggja við það viðbygg- ingu, en í henni eiga að vera ^á æíingavellir fyrir lyftingar svo og til undirbúningskeppni. I þessari byggingu á einnig að vera sérstakt herbergi fyrir „doping“ prufur sem hægt verður að taka á staðnum. Næst var UCLA Olympíuþorpið skoðað, þar eru nú 33 þúsund stúdentar og landsvæðið 375 ekrur. Þar virtist loftslagið veramun betraeníUSC Olympíuþorpinu. Tvær mjög stórar og góðar útisundlaugar og mikið landsvæði umhverfis. Vallaraðstaða er mjög góð fyrir frjálsar íþróttir, íþróttavöllur með níu brautum lögðum tartanefni og áhorfendasvæði fyrir þúsundir manna. Hluti af áhorfendasvæðinu, svo og svæðið þar um kring, mun verða notað undir veitingaaðstöðu og verslunar- miðstöðvar Olympíuþorpsins. Stórt og mikið svæði er einnig fyrir ýmsar aðrar íþróttir, svo sem knattspyrnu. Því miður var ekki hægt að skoða aðstöðu til gistingar, í hvorugu Olympíuþorpinu, þar sem Olympíuþorpin vænt- anlegu eru fullskipuð stúdentum á þessum árstíma, en hún virðist vera mjög góð, að minnsta kosti ef dæma má eftir myndabæklingi sem við fengum við komu okkar til Los Angeles. Síðan var okkur sýnd iþróttahöllin Pauley Pavilion, í UCLA Olympíuþorpinu, þar sem fimleikar eiga að fara fram á Olympíuleikunum, en hún er í eigu UCLA háskólans. Þetta er stórglæsileg íþróttahöll sem tekur 11.200 manns í sæti, og er fyrst og fremst notuð fyrir körfu- knattleik á þeim tíma sem háskólinn starfar. Að lokum var farið í Universal kvikmyndaverið og okkur sýnd kvikmynd sem gerð var um sögu Olympíuleikanna frá upphafi, svo og um Los Angeles og kynningu á Olympíu- leikunum þar. Kostar 2500 dollara á mann II. ANOK Olympíufundurinn var settur af formanni ANOK 17. janúar 1983. Forseti IOC Juan Antonio Samaranch ílutti stutta ræðu og yfirgafsíðan fundinn. 138 lönd voru mætt við setningu fundarins. Lögð var fram skýrsla frá fundinum í Baden Baden. Búið er að senda $5.000,00 til þjóðanna, sem lofað haíði verið á sl. ári. Opnuð hefur verið skrifstofa ANOK í París, en þar eru tveir starfsmenn starfandi. Síðan voru lagðir fram reikningar ANOK frá sl. starfsári.

x

Olympíublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Olympíublaðið
https://timarit.is/publication/1457

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.