Hvöt - 01.03.1953, Síða 20
18
H V Ö T
Árni Óla:
Ferðamenn og vínveitingar
Síðan dómsmálaráðherra afnám,
góðu heilli, undanþágur til vínveitinga
og tók jafnframt vínveitingaleyfið af
Hótel Borg frá áramótum, hefur mik-
ið verið rætt um vínveitingar í blöð-
um og á mannfundum. Hafa þar mjög
haft sig í frammi þeir, sem helzt vilja
að öll vínveitingahús fái vínveitinga-
leyfi, meðal annars vegna þess, að það
muni auka straum ferðamanna hing-
að til Islands, en aftur á móti muni
hann alveg stöðvast, ef ferðamenn-
irnir geti ekki fengið vín alls staðar.
Þessi röksemdafærsla er í sjálfu
sér afkáraleg, og móðgandi fyrir ferða-
menn. Þeim eru með þessu gerðar
getsakir og óvirt sú þekkingarþrá, sem
knýr menn til að ferðast land úr landi,
til þess að kynnast þessari merkilegu
jörð, sem vér byggjum.
Hér er einnig verið að niðra hinni
sönnu ferðamenningu. Þegar menn
taka ákvörðun um eitthvert ferðalag,
þá eru þeir ekki að velta vöngum
yfir því hvað þeir fái að eta og drekka
á leiðinni. Það er aukaatriði, sem eng-
inn sannur ferðamaður gefur hinn
rninnsta gaum, nema því aðeins að
hann verði að nesta sig sjálfur. En
hann athugar vandlega hvaða gagn
hann geti haft af ferðinni, hvers þekk-
ingarauka hann muni geta aflað sér
og hverjar horfur eru á því, að margt
nýtt og merkilegt muni fyrir augu
bera.
Hingað koma ferðamenn vegna þess
að þeir hafa heyrt að Island sé merki-
legt land. Þeir koma hingað til þess
/ að kynnast stórbrotnu landslagi, foss-
um og fjöllum, jöklum með eld í
barmi, hraunum og hverum og heit-
um laugum. Þeir koma til að kynn-
ast hinni dásamlegu náttúrufegurð
náttleysunnar, þegar landið er í hin-
um glæsilegustu litklæðum og loftið
er eins og gull og eldur. Þeir koma
til að kynnast lifnaðarháttum lítillar
þjóðar, sem megnað hefur að vernda
menningu sína við hin erfiðustu lífs-
kjör.
Þetta erindi eiga ferðamenn hingað
og það er skylda okkar að stuðla að
því, að þeir hafi sem mest gagn af
komunni. En ráðið til þess er ekki
að hampa framan í þá ,,Svartadauða“.
Áfengi og ferðamenning á ekki sam-
an. Þetta verður þeim mun ljósara
eftir því sem samgöngur aukast og
ferðamönnum fjölgar.
Þeir, sem tönnlast á áfengi fyrir
ferðamenn, hafa alls ekki gert sér
ljóst, hver reginmunur hefur orðið
á ferðalögum á þessari öld.
Á árunum fyrir styrjaldirnar ferð-
uðust ekki aðrir en auðmenn. Nú ferð-
ast allir. Og langsamlega mestur hluti
þeirra, sem nú fylla skip og flugvélar
á sumrin, er fátækt fólk, sem hefur
lagt hart að sér og sparað til þess