Hvöt - 01.03.1953, Blaðsíða 26
24
H V ö T
Stúlkan og ljóðið
Hún var lýrisk eins og ljóðið
ljóðið sem dó.
Kvæðið mitt var kvöldbæn
kveðið í ró.
Um lýrisku stúlkuna litlu
og ljóðið sem dó.
Mig hrifu hennar ljósu lokkar,
er léku ótt.
Nú eru draumarnir dánir,
þeir dóu í nótt.
Mín bernskuvon er brostin,
hún brast svo skjótt.
Um lýrisku stúlkuna litlu
og ljóðið sem dó í nótt.
Hjörtur Guðmundsson.
Hverjir voru fluttir?
Einu sinni sátu nokkrir ungir menn
á járnbrautarbiðstofu í Englandi, og
voru að tala um bindindi og bindindis-
félög. í sama bili kemur lögregluþjónn
inn með fanga, sem handjárn höfðu
verið sett á. I herbergi þessu sat einnig
prestur, sem hlustað hafði á samræð-
ur ungu mannanna. Nú gekk hann
til lögregluþjónsins og sagði: Hvert er
álit yðar á bindindi, herra minn?“ Lög-
regluþjónninn svaraði: „Hið eina svar,
sem ég get gefið yður, er þetta: Ég hef
aldrei flutt einn einasta bindindismann
til fangahússins York Castle og heldur
ekki til betrunarhússins í Whatefield.
Þýtt.
Um ástina
Vegna hreinnar ástar til saklausrar, ynd-
islegrar stúlku er dásamlegt að geta öllu
fórnað.
Virðing, fé og frægð. Hvers virði er slíkt
án ástar. — Pope.
Ég skil ekki. — Ég elska. — Tennyson.
Stjörnurnar eru dýrð himinsins, vegna
þess að þær hafa elskað.
Margurite de Novarre.
Hvílík guðsgjöf hefur fallið þeim manni
í skaut, sem elskar konu, sem er bæði góð-
lynd og fögur. — Octave Uzanne.
Ekkert er fegurra en draumur hinna ungu
um ástina. — Moore.
Fögur kona getur alltaf leyft sér að vera
eins og hún á að sér. Henni verður fyrir-
gefin sérhver heimska. — Balzac.
Við þiggjum dýrmætustu gjafirnar af þeim,
er hafa ekkert annað að gefa en sjálfa sig.
Neil Munroe.
Þýzki heimspekingurinn, Oswald
Spengler, framdi sjálfsmorð 1936, þá 58
ára gamall, í mótmælaskyni við naz-
isma. Kenning hans var: menningin rís
og hnignar.
Sameiginlegt með mönnum og fisk-
um er, að fiskarnir synda hugsunar-
laust um sjóinn og mennirnir ráfa hugs-
unarlaust um í tilverunni.
Dásamlegast af öllu er að vera sak-
laus stjarna á himni.
Hvar sem maðurinn er, og hvert
sem hann fer, er hann alltaf einn.