Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Blaðsíða 2
IJtgeíandi:
Samtökin 78.
Pósthiílf 416(>
124 Re.vkjavík
«l r felum» kemur út fjórum sinn-
um á ári.
Verð i lausasölu : 40 kr. eintakið.
Verð í áskrift: 120 kr. fyrir fjögur
tölublöð.
Að blaðinu unnu: Guðni, Ketill
Magnús, Olafur. Ragnhildur,
Rúnar og Þorvaldur.
\ i stablað kemur út iapríl 1983.
Offsetprent prentaói
Eftir nokkurt hlé hafa Samtökin
78 aftur fengið húsnæði undir
starfsemi sina. Það er að Skóla-
vörðustíg 12, Reykjavik og hýsir
flestöll fundarhöld okkar og þar er
opið hús einu sinni í viku. Þangað
eru menn velkomnir til að koma og
spjalla yfir kaffibolla eða kók. Ef
ykkur finnst það erfið tilhugsun að
banka uppá án þess að þekkja
nokkurn þá væri ráð að hringja
fyrst í síma Samtakanna og mæla
sér mót við þann sem þið talið við
í opnu húsi.
Opnunartímar eru þessir:
Skrifstofa og upplýsingar,fimmtu-
dagakl. 17-19.
Opið hús, laugardaga kl. 16-18.
Þá er i ráði að halda sérstaka
kynningarfundi fyrir nýja félags-
menn yfir vetrarmánuðina. Á
þeim fundum bjóðum við alla þá
velkomna sem óska eftir að koma
til starfa með okkur. Menn geta
þá skipað sér í starfshópa um
áhugasvið sín eftir því sem þrek,
hugrekki og áhugi leyfa. Hér má
nefna starfshópa um blaðaútgáfu,
skemmtanahald, fræðslufundi
með skolum og félagasamtökum
og hvað annað sem menn telja
málefnum okkar homma og lesbía
til framdráttar.Þá hvetjum við alla
nýja félagsmenn til að reyna að
koma á fót grunnhóp (basis-
grúppu) þar sem menn hittast
reglulega til að ræða sín mál og
reyna að læra af reynslu hvers
annars.
Kynningarfundir fyrir konur eru
haldnir fyrsta virkan mánudag í
hverjum mánuði kl. 20.
Kynningarfundir fyrir karla eru
haldnir fyrsta virkan þriðjudag í
hverjum mánuði kl.20.
I nokkur ár hafa Samtökin '78 haft
símaþjónustu. Hún er einkum
hugsuð sem tengiliður við allt það
fólk sem ennþá er í
felum eða þá sem ekki hafa gert
upp við sig hvar þeir standa i til-
finningamálunum. Öllum er
nefnilega frjálst að hringja og
ræða það sem liggur þeim á hjarta
og þeir ráða þvi hvort þeir segja til
nafns eða ekki. Mörg okkar sem
starfa i Samtökunum höfum stigið
fyrsta skrefið með því að hringja
og ræða líf okkar og tilfinningar
við fólk sem hefur reynslu og
þekkingu á málefnum homma og
lesbía. Sum okkar höfum hringt
nokkrum sinnum til að spjalla áður
en við hertum upp hugann og hitt-
um okkar líka augliti til auglitis.
Símatíminn er á þriðjudögum
milli kl. 18-20 og á laugardögum
milli kl. 14-16. Simanúmerið er
91-28539. Eitt lítið simtal og þú
hefur stigið fyrsta skrefið
Fræðslu og kynningarfundir eru
einn þáttur í starfi Samtakanna 78
Þetta starf hefur einkum farið
fram í skólum og eru það nemend-
ur eða einstakir nemendahópar er
hafa beðið okkur um að koma i
heimsókn. Á þessum fundum
kynnum við starf okkar litillega en
leggjum aðaláherslu á opnar um-
ræður um hvað það sem menn
fýsir að ræða. Einnig viljum við
benda á að ef hommar og lesbiur í
hópi nemenda eða kennara verða
fyrir aðkasti eða ofsóknum i skól-
anum fyrir tilfinningar sinar þá er
tilvalið að fá nokkra félaga sam-
takanna okkar til liðs við sig og
halda fund.
Við viljum hvetja nemendur og
skólastjórnir um allt land til að
efna til umræðufunda um lif lesb-
ía og homma í skólum sínum.
2