Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Blaðsíða 29
- NRH ■
NORÐURLANDARAÐ
LESBÍA OG HOMMA
Norðurlandaráð lesbía og homma
kom saman í Oslo dagana 29. - 31.
október. Þetta var þriðji fundur
ráðsins en það var stofnað í Hels-
inki 1981. Norðurlandaráðinu er
ætlað að vera samstarfsvettvang-
ur hagsmuna- og baráttusamtaka
hómósexúalfólks á Norðurlöndum.
Annar fundur ráðsins var svo
haldinn í Kaupmannahöfn i lok
síðasta árs. Þess má geta að næst
kemur það saman til fundar hér í
Reykjavik dagana 17. -19. júní 19-
83.
Á fundinum i Oslo voru mættir
um 35 fulltrúar, 3 frá Islandi, 1 frá
Finnlandi, 6 frá Sviþjóð, 4 frá
Danmörku en hinir voru Norð-
menn. - Ýmis mál vor á dagskrá
fundarins að þessu sinni en segja
má að aðalmálið hafi verið: «Mis-
rétti í garð homma og lesbía».
Finnski fulltrúinn lagði fram í því
sambandi heilmikið plagg þar sem
hann skýrði frá þv
i misrétti sem hommar og lesbíur
eru beitt á Norðurlöndum. Var
fallað um þessi mál í hópum og
samin áskorun til hins eiginlega
Norðurlandaráðs (NR) um að taka
málin fyrir á fundum sinum og
vinna að eftirfarandi atriðum:
- Gera könnun á stöðu homma
og lesbía á Norðurlöndum.
- Fara í gegnum lög og fella úr
gildi þau lagaákvæði sem við-
halda misrétti í garð homma og
lesbía.
- Vinna að gerð laga sem vernda
hómósexúal fólk gegn misrétti og
semja einnig lög sem tryggja
hómósexúal fólki í sambúð jafnan
rétt á við heterósexúal fólk.
- Stuðla að upplýsingamiðlun og
fræðslu til að draga úr þvi misrétti
sem hómósexúal fólk er beitt.
- Gera könnun á stöðu hómósex-
úal flóttamanna.
- Vekja máls á mannréttindum
hómósexúal fólks á vettvangi Sam-
einuðu þjóðanna og hjá öðrum al-
þjóðlegum stofnunum.
Þessi áskorun var siðan afhent
fulltrúum i Norðurlandaráði á
undirbúningsfundi ráðsins sem
haldinn var á Álandseyjum í nó-
vember sl. og fékk hún allgóðar
viðtökur fulltrúanna þannig að
segja má að málið sé komið á rek-
spöl.
Önnur mál, sem til umræðu
voru á fundinum, voru þessi:
.1. NRH án lesbía er ekki NRH.
Hvað er hér til úrbóta? - A fundin-
um í Oslo voru aðeins mættar 8
lesbiur en 27 hommar. Hvað veld-
ur þessu? - Það er ljóst að ekki eru
nógu mörg mál á dagskrá sem sér-
staklega snerta málefni lesbía og
dregur það úr áhuga þeirra á
störfum ráðsins. Þær hafa einnig
oft áhuga á öðrum málum en karl-
arnir. - Þá ber að hafa í huga að
þær eru oft i láglaunastörfum og
hafa því ekki fjárhagsleg tök á að
sækja fundi til jafns við karlana.
Spyrja má hvað hægt sé að gera til
að bæta úr þessu. - Hér gætu hin
ýmsu samtök tekið inn í reglur
sinar ákvæði sem taka sérstaklega
tillit til lesbía.Taka mætti upp sér-
stakan kynjakvóta við kosningu i
stjórnir baráttu- og hagsmuna-
samtaka innan NRH og sjá til þess
að samtök innan NRH veiti ráðinu
upplýsingar um stöðu lesbia.
Þessi ályktun var send til samtak-
anna sem þátt taka i störfum NRH
sem nokkurs konar ráðgjafarpési.
2. Efla þarf samvinnu á menn-
ingarsviðinu, bæði hvað varðar
bókmenntir, kvikmyndir, ýmiss
konar rannsóknir og sameiginlega
blaðaútgáfu fyrir löndin öll. I því
sambandi var vakin upp gömul
hugmynd um að blöð hverra sam-
taka fyrir sig gæfu út eitt sam-
norrænt tölublað. Þá kom fram sú
tillaga að norska blaðið «Love-
!tann» gæfi út eitt tölublað á
norsku og sænsku með greinum
frá öllum löndunum fimm sem
sitja nú i ráðinu.
3. Kynna þarf samnorrænar
sumarbúðir lesbia og homma bet-
ur og skipuleggja þær með það
fyrir augum að fá fleiri þátttak-
endur frá öllum löndunum. Danir
hafa staðið fyrir slíkum búðum á
eyjunum sínum hvert sumar í
nokkur ár og eru þær góður vett-
vangur til betri og meiri kynna
fólks.
4. Nokkuð var rætt um stöðu
lesbía og homma innan verkalýðs-
hreyfingarinnar, en margt hómó-
sexual fólk á þar í vök að veijast. -
Einnig voru fleiri mál á dagskrá
sem of langt mál yrði upp að telja.
En fleira var gert en að sitja á
fundum. Menn sóttu matarboð,
veisluhöld og brugðu sér á ball. -1
heild má segja að þessir dagar
hafi verið mjög lærdómsríkir og
skemmtilegir og maður kynntist
þar mörgu fólki.
Brátt munu svo Samtökin ' 78
hefjast handa um að skipuleggja
fundinn sem haldinn verður í
Reykjavík n.k. sumar.
Baráttukveðjur - ÓG.
29