Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Page 8

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Page 8
f ftl Hommar og lcsbíur efndu lil mólmælaslöðu við Alþingishúsið á fullveldisdaginn. Þau voru að minna á samþykkl þingmannafundar F.vrópuráðsins um af- nám misréttis í sinn garð, og andmæla auglýsingahanni sem samtök þeirra hér á landi hafa verið sell í úlvarpi. Tímamvnd: Róberl LESBIUR HOMMAR MÓTMÆLI 1. DESEMBER 1982 Stokkhólmur: Hommar og lesbíur með fund við ísl. sendiráðið Stokkhólmi, 1. desvmber. Frá frétta- ritara Mbl. (audfmnu Kagnarsdótlur. HOMMAR og lesbíur mótmæltu í dag vid sendiráð íslands i Stokk- hólmi meðferð íslenzkra stjórnvalda og íslenzks útvarps á íslenzkum hommum og lesbíum. Það voru sam- tök þeirra, sem berjast fyrir kynferð- islegu jafnrétti, sem stóðu fyrir mót- mælunum. Lítill hópur þeirra safnaðist saman við íslenzka sendiráðið með kröfuspjöld sem á stóð meðai ann- ars: „Stoppið niðurlægjandi með- ferð íslenzka útvarpsins á hornm- um og lesbium" og „Sömu aldurs- takmörk við kynmök lesbía og homma og gagnstæðra kynja“. Mótmælendahópurinn kallaði fram mótmæli sín í kór og dreifði kröfublöðum til vegfarenda. Síðan var sendiherra íslands, Benedikt Gröndal, afhent mótmælaskjal til íslenzku ríkisstjórnarinnar. Þar er þess krafizt að íslenzka ríkisstjórnin aflétti banni íslenzka útvarpsins á að nefna lesbíur og homma í fundarauglýsingum og tilkynningum sem beinast til þess- ara hópa. „Aðgerðir ríkisútvarpsins skerða tjáningarfrelsi minni- hlutahóps og möguleika hans á að taka á móti upplýsingum. Þetta er skýlaust brot á tjáningarfrelsinu og brot á Mannréttindaskrá Sam- einuðu þjóðanna,“ segir í mót- mælaskjali samtakanna. Samtök- in benda einnig á, að Evrópuráðið hafi í október 1981 mælzt til þess, að aðildarlöndin kæmu á sömu aldurstakmörkunum við kynmök fyrir alla hópa, en á Islandi er ald- urstakmarkið átján ára fyrir homma og lesbíur en sextán ára fyrir aðra. iHróóleikur og JL skemmtun fyrirháa sem lága! 8.

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.