Samtökin '78 - Úr felum

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Qupperneq 28

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Qupperneq 28
á (JCUtcUlHK Kæra Blíða! Eftir að hafa gengið í gegnum hjónaband og alið börn hef ég nú fyrst um þrítugt horfst í augu við að ég er lesbia. Já, ég hef meira að segja orðið innilega ástfangin að konu og fengið tilfinningar minar endurgoldnar þótt ekki yrði hún nú eilif, ástin sú. - Þegar ég var skilin við manninn minn og farin að geta glaðst yfir þeim til- finningum sem ég hafði áður skammast mín svo fyrir, þá fannst mér um tíma ég hafa himin hönd- um tekið en nú verð ég að játa að það renna oft á mig tvær grímur. Ekki svo að skilja að ég hitti ekki oft sætar og skynsamar konur sem ég gæti hugsað mér að kynnast nánar. En vandinn er sá að ég fæ varla frið til að nálgast þær tyrir karlmönnum. Einkum eru það karl menn, sem ég þekki frá fyrri tíð, karlmenn sem ég hef kannski sofið hjá einhvern tíma í fyrndinni og setjast nú éð mér eins og mý á mykjuskán þégar þeir hitta mig á skemmtistöðum eða i partíum og vita að ég er fráskilin. Nú er ég orðin nógu hugrökk til að segja þeim eins og er, að ég hafi kosið að lifa lífinu sem lesbía en á því taka fæstir þeirra minnsta mark. Þeir líta á þetta sem einhvetjar kenjar í mér og að hlutverk þeirra sé að koma fyrir mig Vitinu með því að sýna mér hvað ærlegur karlmaður geti í rúminu. Þegar ég sé hvernig margir indæhr kunn- ingjar mínir frá fyrri tí '' breytast i tilfinningasljóa rudda þá liggur mér beinlínis við að ö ænta um framtiðina. Oft imynd; ég mér að allt væri miklu auðvel iara ef við lesbíur gætum komið saman og rætt um reynslu okkar, mér finnst ég oft svo hræðilega ein á báti. Sú fráskilda. Kæra «fráskilda»! Nei, þú ert svo sannarlega ekki ein á báti. Flestar ef ekki allar lesbíur hafa kynnst þessum viðhorfum karlmanna á einn eða annan hátt. Því miður virðist lítið við þessu að gera, við verðum bara að horfa bjartsýnar fram á við og vona að viðhorfin breytist smám saman. Mikilvægast er það þó að lesbíur skuli í æ ríkara mæli viðurkenna eðli sitt, bæði fyrir sjálfum sér og öðrum. Eftir þvi sem það verður algengara, hljóta aðrir að fara að gera sér grein fyrir að lesbíur eru ekki konur sem hafa verið svo ógæfusamar að hafa aldrei hitt «góðan» karlmann, heldur konur sem er það eðlilegt að elska aðrar konur. Ég óska þér til hamingju með hugrekki þitt, það þarf tölu- vert til að horfast í augu við þá staðreynd að blekkingin i hjóna- bandinu getur ekki gengið til leng- dar. f þvi efni mættu margar lesb- íur taka þig til fyrirmyndar. Við lesbíur getum svo sannar- lega hist og rætt reynslu okkar og ég held að það sé hverri okkar nauðsynlegt að við höldum hópinn að einhverju leyti. í Samtökunum ' 78 eru þó nokkrar lesbiur og ég trúi ekki öðru en að einhveijar þeirra vilji ræða við þig og aðrar sem eiga í svipuðum vanda. En við byggjum ekki upp sjálfsörygg- ið á einum degi. Því finnst mér við ættum að taka aðferðir kvenna- hreyfingarinnar til fyrirmyndar og stofna grunnhóp (basisgrúppu) þar sem við hittumst reglulega og ræðum líf okkar og reynslu, og gera það vel að merkja án þess að drekka fyrst í okkur kjark. Mundu að styrkur okkar er að miklu leyti fólginn í fjölda okkar.Ég hvet þig til að bætast í hópinn. Blíða Vandamál? Spurningar? Geðillskukast? Bliða leggur sig fram við að svara öllum af einlægni. Utanáskriftin er: Bliða, Pósthólf 4166, 124 Reykjavík. - Ekki er verra að eiga Sval að, hann er stoð og stytta karlmannanna. Svalur hefur sama pósthólf og Bliða. 28

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.