Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Blaðsíða 5

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Blaðsíða 5
Það er vel þekkt staðreynd aö diskótekin urðu fyrst til meðal homma markvissa og meðvitaða afstöðu til þeirra ofsókna sem þeir verða fyrir. En stundum verður aðferð auðmýk- ingarinnar sýnileg og kunnug fleirum en hommum og fordómarnir koma fram í dagsbirtuna. Um það má taka skýrt dæmi frá liðnum misserum. Safari í fyrrasumar tók nýr eigandi við skemmtistaðnum Safari sem notið hafði vinsælda eftir að hann var opnaður veturinn áður og m.a. verið vel sóttur af þeim hommum og lesbíum sem stunda skemmtana- lífið á annað borð. Nýi eigandinn, Jóhannes Lárusson, þekkir mætavel eðli markaðslögmálanna og þá staðreynd að í reykvísku skemmtanalífi er framboðið meira en eftirspurnin með harðnandi ár- ferði. Samkeppnin um hylli við- skiptavinanna er hörð og í baráttu bissnessmannanna helgast öll meðöl af tilganginum - að græða. Meðal eigenda skemmtistaða gengur sú goðsaga að þegar hommar og lesbíur fari að sækja einhvern stað þá missi sá staður orðstír sinn. Og ef skemmtistaður gengur illa þá á það að vera hommum að kenna, þeir fæli siðprútt fólk frá. Dæmigert bergmál af fáfræði- og fyrirlitningarröddum samfélagsins. Jóhannes og fyrirtæki hans greip nú til næsta fyrirlitlegra aðferða til að útiloka homma í að skemmta sér með öðru fólki. Einn rigningardag á liðnu sumri birtist sú auglýsing í Morgunblaðinu frá Safari að þar væru „næstum því allir velkomnir” og þegar gengið var á Jóhannes Lárusson lýsti hann því yfir í blöð- um að við homma væri átt. Fleiri auglýsingar birtust svo í sama dúr, í einni þeirra gaf t.d. að líta tilraun til að semja misheppnaðan homma- brandara sem raunar vitnar fyrst og fremst um kynferðisbælingar þeirra er sömdu hana. Alveg er það maka- laust að þeir Safari-menn skuli vera svo skyni skroppnir að afhjúpa bælda kynóra sína á svo augljósan hátt. Um líkt leyti mátti lesa viðtal við eiganda Safari í Tímanum þar sem hann fullyrðir að yngri menn á Safari verði fyrir miklu ónæði frá hommum (á máli skemmtistaðaeig- enda heitir það að verða fyrir ,,ónæði‘‘ ef hommi yrðir á aðra karlmenn). Við þessa hommagrýlu- sögu sína bætir maðurinn við: ,,Að- farir þeirra hér voru bara frá hrein- 5

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.