Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Blaðsíða 35

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Blaðsíða 35
Ef kvenlegur þýðir blíöur og nærgætinn þá eru það prýöilegir eiginleikar... Kæri vinur. Þakka þér fyrir bréfið. Ég sé að þú ert kominn allvel af stað með að leita að sjálfum þér. Mér sýnist því að ég þurfi ekki að hjálpa þér að yfirvinna þá tregðu sem hindrar svo marga í því að hefjast handa um það. Vindum okkur því beinustu leið í spurningarnar. Síðustu spurning- unni svara ég fyrst. Ég er sammála þér að ekki sé ráðlegt að segja fjöl- skyldunni frá vangaveltum þínum fyrr en þú ert nokkuð farinn að ná áttum sjálfur. Þú þarft ekki að bíða með það þangað til að þú hefur náð fullkomnum tökum á ástamálun- um, en þegar þú veist með sjálfum þér að þú stefnir að því, og ert bú- inn að setja þér svona nokkurn veg- inn hvernig, þá skaltu endilega ræða við fjölskylduna, þyki þér að þvi fengur. Og það hygg ég að flest- ir vilji njóta góðs trúnaðarsam- bands i fjölskyldunni. En færirðu að opna hug þinn núna, þá er hætt við að ráðaleysi hennar yrði engu minna en þitt, og atburðarásin gæti leiðst út á óheppilegar brautir. Til þess að ná þessari afstöðu, sem ég nefndi, að vita hvert þú vilt stefna og hvernig, er traust sam- band við einhverja persónu vissu- lega mikils virði, þó að ekki sé það algert skilyrði. Við vorum einmitt að ræða þetta um daginn, nokkrir vinir, hvort þyrfti að koma á und- an, ástin eða afstaðan. Okkur sýnd- ist sitt hverjum, en sættumst á, að á þessu væri allur gangur. Enda hlýt- ur það að styðja hvort annað, svo að dafni annað, þá blómgist hitt. Þetta er reyndar kjarni þess sem ég vil segja þér. — Það sem á eftir kemur eru vangaveltur varðandi spurningar þínar, og er þess eðlis að ekki er víst að þér þyki mikið leggj- andi uppúr því. Þú notar orðin kvenlegur og karl- mannlegur. Þessi orð hafa margar og ólíkar merkingar, en þó svo skyldar, að oft er örðugt að átta sig á. Kvenleg kona, er hún blíð og nærgætin, eða fyrst og fremst fag- urvaxin og andlitsfríð, eða kannski eftirlát og ístöðulaus, eða þá ósín- gjörn og fórnfús, eða klók, eða heimsk, eða ...? Karlmannlegur strákur, er hann íturvaxinn og fagurlimaður, eða frekur og ófyr- irleitinn, eða hlýlegur og traustvekj- andi, eða ágengur og tillitslaus, eða altekinn bíladellu, eða gáfumaður, eða refur, eða ...? Og ekki verður greiðara að átta sig þegar þessi ó- ljósu lýsingarorð eru höfð um hitt kynið. Ef kvenlegur þýðir blíður og nærgætinn, þá eru það prýðilegir eiginleikar sem við karlmenn ættum að gera tilkall til líka. Þýði það í- stöðulaus eða heimskulegur, þá finnst mér konum gert rangt til að kenna þá eiginleika þeim sérstak- lega. Á ég að segja þér það, að ég held að ég sé löngu hættur að nota þessi orð, nema ég sé sérstaklega að leggja áherslu á einhverja þá þætti, sem mér geðjast vel að hjá viðkom- andi persónu. Af því leiðir að þá sjaldan að ég nota þau, þá nota ég orðið kvenlegur um konur og orðið karlmannlegur um karlmenn. — Af því sem þú segir um sjálfan þig, þá skilst mér að þú sért ekki ruddaleg- ur, ekki karlrembusvín, ekki yfir- gangssamur. Þetta er kostur, sem ég held að flestum körlum og konum falli í geð. Ég veit ekki hvort þú átt við að þú sért heldur ekki ýkja kjarkmikill eða framtakssamur. Ef svo er þætti sumum körlum og sum-

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.