Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Blaðsíða 28
Spjallað við kvennahópinn
Laugardaginn 5. nóvember var opið hús á vegum kvennahóps
Samtakanna ’78. Nú er þessi kvennahópur hér samankominn
og ætlunin er að rekja úr þeim garnirnar.
Jæja stelpur, þið eruð fimm tals-
ins sem stóðuð að þessu kvöldi.
Hvernig byrjuðuð þið að starfa
saman?
— Þetta byrjaði nú eiginlega allt
utan Samtakanna. Við höfum
þekkst í nokkurn tíma og kynnt-
umst í gegnum skóla og þvíumlíkt.
Samt kynntumst við eiginlega ekki
vel fyrr en opið hús Samtakanna
tók til starfa í lok júlí. Okkur fannst
ómögulegt að í Samtökunum störf-
uðu bara karlmenn og þar að auki
mjög ,,þröngur“ hópur karlmanna.
Sá af strákunum sem hefur starfað
einna mest með okkur er Ketill,
góðvinur okkar, og hann hefur
styrkt okkur mikið og komið með
ýmsar hugmyndir því að við erum
allar byrjendur á þessu sviði. Það
hefur háð okkur mikið við skipu-
lagningu og undirbúning þessa
oppa húss sem við stóðum að.
I framhaldi af þessu má þá spyrja
hvernig þið hafið hagað undirbún-
ingnum?
— Eins og við sögðum þá vissum
við eiginlega ekki hvar við ættum
að byrja og eflaust hefur okkur orð-
ið á mörg mistök. En við verðum þá
bara að bæta fyrir þau í næsta
skipti. En við byrjuðum á að gera
auglýsingar og ákváðum að hengja
þær upp í flestum framhaldsskólum
og setja þar að auki smáauglýsingu í
DV. Eins og okkur hafði grunað
lentum við í smávandræðum með
þær. í sumum skólum eins og Fjöl-
brautum Breiðholts og Kvennaskól-
ans og sömuleiðis MS voru þær
rifnar niður.
í DV vorum við líka neyddar til
að fella úr orðið LESBÍUR í yfir-
skrift auglýsingarinnar STELPUR
—KONUR—LESBÍUR. Það kom
nú reyndar ekki í ljós fyrr en við
fórum að athuga kvittunina og urð-
um því að gera okkur aukaferð inn
á DV til að fá málið útskýrt. Heldur
voru rökin bágleg fyrir brottfalli orð-
28