Samtökin '78 - Úr felum

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Qupperneq 10

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Qupperneq 10
Út að „skemmta” sér Meðlimir í Samtökunum '78...” Það vildi svo til að laugardagskvöldið 4. desember 1982 létum við tveir verða af því að rölta niður í Óðal, svona rétt til þess að fá smjörþefinn af stemmningunni í bænum. Stilltir og prúðir eins og ævinlega tókum við því sem sjálfsögðum hlut að mjakast heila klukkustund í biðröð, veðrið var ekki vont og það voru engir uppáþrengjandi hetróar hið næsta okkur í röðinni. En viti menn, þegar við loksins komum að dyrunum, þá hætta þær alveg að opnast. Dyraverðir sem höfðu staðið sig einsog herforingjar að skipa biðraðarmönnum í réttstöðu tók að snúast um sjálfa sig i ráðaleysi. Fjötrarnir féllu ekki af þeim fyrr en þeir áttuðu sig á því að dyrnar höfðu verið opnaðar, fólk gekk út og ég inn. Þá flugu þeir á mig og felldu mig í tröppunum að miðasölunni, og skelltu í lás á eftir mér, svo að þeir sem á eftir mér voru yrðu ekki vitni að fyrirgangin- um. Þarna varð stundarfjórðungs töf að aðrir gestir kæmust inn, en í þeim samræðum er urðu milli mín og dyravarða kom fram að mér væri óheimill aðgangur sökum þess að það hefði verið ákveðið að hleypa hommum ekki inn. Þess má geta, að ég hafði ekki sótt þennan stað reglulega og aldrei átt nokkur samskipti við dyraverði þar, en fáum dögum áður höfðum við nokkrir félagar staðið með kröfu- borða okkar á Austurvelli, það var við Alþingishúsið 1. desember. Næstu daga á eftir þekktu mig all- margir af myndum með fréttum af því. ,,Er yður kappsmál...?“ Strax á mánudagsmorgni hélt ég suður í Kópavog með skriflega kæru til rannsóknarlögreglunnar, annars vegar bað ég um að fram- ferði dyravarðanna gagnvart mér yrði rannsakað, hins vegar ákvörð- un fyrirtækisins að veita mér ekki sömu þjónustu og öðrum vegna þess að ég væri hommi. Svo sem vant er sendi rannsóknarlögreglan kæruna rétta boðleið til ríkissak- sóknara til að bera undir það embætti hvort ástæða væri til rann- sóknar. Þá er 28 vikur voru liðnar af meðgöngutíma málsins þykir mér löngu orðið tímabært að frétta af framgangi þess. í ljós kemur að málið er enn hjá ríkissaksóknara, og rannsókn því ekki hafin. Ég hringi þangað, skýri frá því að ég vilji vita hvernig rannsókn málsins standi. Málið finnst ekki eftir dag- setningunni, ekki eftir nafni staðar- ins, ekki eftir nöfnum dyravarð- anna, og ekki í möppum annarra skemmtistaða. Ég er beðinn að hringja næsta dag. Næsta dag hringi ég og rifja upp erindið. ,,Já, ég gef þér samband við Þórð Björnsson, gjörðu svo vel.“ Ég kynni erindið. ,,Já, ég man eftir þessu máli. Það er hérna í skúffu hjá mér.“ Ég undrast það. ,,Er yður eitthvert kappsmál að komast þarna inn?“ Ég bendi á að hér sé um prinsíp- mál að ræða, mannréttindamál sem þurfi að fá skorið úr um. „Menn verða að halda aga á stöðunum...“ Samtali okkar lauk í styttingi, áreiðanlega hefur ekki hallast á að hvorum um sig þótti hinn auðvirði- legur. Fáum dögum seinna erum við báðir, ég og Helgi sem var með mér, kallaðir hvor í sínu lagi, til að gefa skýrslu hjá rannsóknarlögreglunni, ég sem kærandi, hann sem vitni. Rannsóknarlögreglumaðurinn, sem annaðist skýrslutökuna einn, kom fram af fyllstu kurteisi, en heldur þóttu okkur báðum spurningarnar, sem hann hafði tilbúnar á blaði, fordómafullar. Þær snerust fyrst og fremst um klæðaburð og annan slíkan hégóma. Dyraverðirnir þrír, er ég hafði nafngreint í kærunni, voru einnig kallaðir til skýrslugjaf- ar, svo og eigandi staðarins. Skýrslur þeirra voru bornar undir mig og ég beðinn að gera athuga- semdir við þær eftir þörfum. Að lokinni þriggja tíma setu við skýrslutökuna undirritaði ég skýrsl- una, svo og rannsóknarlögreglu- maðurinn og vitundarvottur sem var sóttur í annað herbergi. Þremur mánuðum seinna berst mér bréf frá rannsóknarlögreglu- 10

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.